Morgunblaðið - 21.09.2000, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.09.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 13 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Kynning á landbúnaði fyrir nemendur í 7. til 10. bekk Dagur með bónda í skólanum Reykjavík NEMENDUM í 7. til 10. bekk í grunnskólum Reykja- víkur verður í vetur boðið upp á kynningu á landbúnaði með því að fá starfandi bónda í heimsókn í einn dag. „Dagur með bónda“ er samstarfs- verkefni útgáfu- og kynn- ingarsviðs Bændasamtak- anna og Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur, en verkefnið hófst í fyrravetur, að því er fram kemur í nýjasta tölu- blaði Bændablaðsins. „Petta tókst með eindæm- um vel og ákveðið var að halda áfram í vetur. Um tíu skólar tóku þátt í fyrra og við gerum fastlega ráð fyrir því að fleiri skólar taki þátt núna,“ segir Heiða Björk Sturludóttir hjá útgáfu- og kynningarsviði Bændasam- takanna. Skenimtilegl hvað bænd- urnir eru persónulegir Bóndinn kynnir sveita- störfín fyrir nemendunum og er lögð áhersla á að þeir læri hvar landbúnaður er stundað- ur, hver munurinn er á mis- munandi búgreinum, hvernig störfín eru og hvaða áhöld eru notuð. Einnig er þeim kennd- ur munurinn á ólíkum jurta- tegundum og dýrategundum. „Nemendunum finnst mjög gaman að þessari nýjung. Ungt fólk er líka orðið svo fjarlægt sveitinni, það þekkir þetta svo lítið og fyrir vikið er þetta helmingi meira spenn- andi,“ segir Heiða Björk. „Svo er líka skemmtilegt hvað bændurnir eru persónulegir í kennslunni. Sumir koma jafn- vel í fjósagallanum, eða með hundinn sinn með sér.“ Nemendur spyrja hvenær þeir megi koma Heiða Björk segir að bænd- urnir spili kennsluna að miklu leyti af fingrum fram, en styðjist jafnframt við kennsluefni sem útbúið er að danskri fyrirmynd. Einnig býr hver bóndi til stutt myndband þar sem hann sýn- ir bæinn sinn og segir Heiða Björk kennslustundirnar iðu- lega enda með því að nemend- urnir spyrji hvenær þeir megi koma í heimsókn. Hún segist telja afar mikil- vægt að börn og unglingar fái að kynnast lífi í sveitum og að það hafi sýnt sig í þessari fræðslu að þau hafi mikinn áhuga á því. Því standi til að auka jafnvel enn við fræðsl- una og bjóða upp á heimsókn- ir í sveitina, enda hafi margir unglingar jafnvel aldrei kom- ið á sveitabæ. • W : | - | i——í TTf Bömin í Selásborg skemmtu sér vel á opnunardaginn. Morgunblaðið/Þorkell Nýr leikskóli fyrir 88 börn I Selásborg er að finna nýstárlegar útfærslur í byggingu leikskóla. Seláshverfi LEIKSKÓLINN Selásborg var formlega opnaður af Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur, borgarstjóra, í fyrradag. Þetta er fyrsti leikskólinn sem opnaður er í borginni á árinu, en annar verður opnaður í Víkur- hverfi fyrir áramót. Selásborg er við Brekkn- ás 4 og geta 88 börn dvalið þar samtímis á fjórum deildum. Áætlaður kostnað- ur við bygginguna er 131 milljón króna, að meðtöld- um búnaði. Þrjár deildanna eru þeg- ar fullmannaðar og er gert ráð fyrir að starfsemi hinn- ar fjórðu komist í fullan gang innan tíðar en um þessar mundir er verið að taka á móti börnum og for- eldrum, sem hafa fengið vil- yrði fyi'ir leikskólaplássi, að því er fram kemur í frétt frá Leikskólum Reykjavíkur. Ai'kitekt Selásborgar er Manfreð Vilhjálmsson og arkitektastofan Arkitektar ehf en Dagný Bjarnadóttir og Landslag ehf sáu um hönnun lóðar. Skipulag hússins er nýstárlegt að ýmsu leyti, m.a. eru útidyr í viðeigandi stærð fyrir börn- in og speglar eru í sameig- inlegu í'ými. Leikskólastjóri er Margrét Elíasdóttir. Hafnfírð- ingar keppa um merk- ingar Hafnarfjördur NÚ STENDUR yfir í Hafn- arfirði opin hugmyndasam- keppni um merkingar í bæn- um til að ná fram sem bestri heildarlausn merkinga í bænum og vekja athygli á sérstöðu hans og sérkennum. Fyrstu verðlaun verða a.m.k. hálf milljón króna. Verkefnið tekur til merk- inga á bæjarmörkun, bæjar- korta í miðbæ og við leiðir inn í bæinn, svo og til merk- inga á opinberum bygging; um og þjónustusvæðum. I keppnislýsingunni kemur fram að niðurstöður verði til hliðsjónar við áframhaldandi þjónustumerkingar svo og við merkingar tilkynninga- standa, áhugaverðra staða, gönguleiða, reiðleiða, hjóla- leiða og „sér-hafnfirskar merkingar, eftir því sem efni og ástæður gefa tilefni til“, segir í keppnislýsingu. „Ætlunin er að ná fram aðlaðandi og eftirtektar- verðu heildaryfirbragði, jafn- framt því sem áhersla verður lögð á vandaða og hag- kvæma hönnun," segir enn- fremur. Nánari upplýsingar um samkeppnina er að finna á vef Hafnarfjarðarbæjar, hafnarfjordur.is. Morgunblaðið/Kristinn fbúar við Fjörugranda hafa óskað eftir því við borgaryfirvöld að endurbótum við þvottahús- ið Grýtu verði lokið á næstu vikum, að viðlagðri riftun starfsheimildar. Ibúar kvarta yfír ástandi lóðar og húss Vesturbær ÍBÚAR við Fjörugranda hafa sent skipulags- og umferðar- nefnd Reykjavíkur bréf þar sem gerð er athugasemd við ástand lóðar og húss þvotta- hússins Grýtu við Keilugranda 1. _ I bréfinu segir að þegar þvottahúsið Grýta hafi fengið heimild fyrh’ starfsemi sinni hafi verið „tíundað að starf- semi þvottahússins yrði mikl- um mun hreinlegri en sú sem þarna var áður. Lóð yrði lag- færð og snyrt, trjágróður sett- ur, húsið málað o.fl.“ I bréfinu segir síðan að á þeim tíma sem liðinn er frá því að starfsemi þvottahússins var heimiluð hafi ekkert verið gert til úr- bóta og öllu hafi hrakað þannig að óviðunandi sé. Engin lag- færing hafi verið gerð á lóð eða húsi og úrgangsgámi hafi verið stillt upp næst húsum við Fjörugrandann, þrátt fyrir mótmæli. Ibúarnir við Fjörugranda óska þess að borgaryfirvöld sjái svo um að eigendum eða umráðamönnum verði gert að ljúka öllum umræddum endur- bótum á næstu vikum, að við- lagðri riftun starfsheimildar. Bréfið var lagt fram á fundi skipulags- og umferðamefnd- ar borgarinnar nýlega og vísað til byggingafulltrúa. Kvikmyndasafn Islands í Bæjarbíói Endurgerð hússins lokið í vor Hafnarfjörður KVIKMYNDASAFN ís- lands hefur sótt um um fjár- veitingu til ríkisins, Hafnar- fjarðarbæjar og annarra sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu, til að ljúka við fram- kvæmdir við endurgerð Bæj- arbíós. Áætlað er að fram- kvæmdirnar kosti um 27 milljónir, en ríkið og Hafnar- fjarðarbær hafa á síðustu fjórum árum veitt 13 milljón- ir í þær. Sigurjón Baldur Haf- steinsson, safnstjóri Kvik- myndasafnsins, segir að gangi allt eftir og fjárveit- ingar fáist verði hægt að ljúka framkvæmdum og hefja starfsemi í húsinu í vor. Hlutverk kvikmynda- safnsins er meðal annars að safna íslenskum kvikmynd- um og varðveita þær, en safnið mun einnig safna er- lendum kvikmyndum sem taldar eru hafa listrænt eða kvikmyndasögulegt gildi. Safnið mun jafnframt safna gripum, svo sem töku- og sýningarvélum og prentuðu efni sem tengist kvikmynd- um og kvikmyndamenningu. Kvikmyndasafnið mun einn- ig sinna rannsóknum á ís- lenskri kvikmyndasögu. Sigurjón segir að fræðsla muni vega þungt í starfsemi safnsins og ætlunin sé að vera í samstarfi við skóla á öllum skólastigum, frá leik- skóla til háskóla. I Bæjar- bíói verði einnig kynningar og reglubundnar sýningar á sem breiðustu úrvali kvik- mynda frá sem flestum skeiðum kvikmyndasögunn- ar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.