Morgunblaðið - 21.09.2000, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 21.09.2000, Qupperneq 48
48 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 >> .i MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VIGDÍS PÁLSDÓTTIR, Kirkjuvegi 11, Keflavík, sem lést miðvikudaginn 13. september, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 23. september kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Minningarsjóð Kristjáns Ingibergssonar. Sveinn Guðnason, Guðbjörg Sigurjónsdóttir, Elín Guðnadóttir, Ellert Skúlason, Ingunn Guðnadóttir, Bjarni Jónsson, Gestur Guðnason, Oddrún Guðsveinsdóttir, Pálína Guðnadóttir, Guðmundur Hólmgeirsson, Kristín Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Grænumörk 1, Selfossi, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugar- daginn 23. september kl. 13.30. Greipur Ketilsson, Fjóla G. Ingþórsdóttir, Gunnar H. Reynarsson, Sigríður Greipsdóttir, Egill Sigurðsson, Vigdís Greipsdóttir, Daníel Kristinsson, barnabörn og barabarnabörn. t Eiginmaður minn, HALLGRÍMUR VIGFÚSSON, Borgarfirði eystra, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstu- daginn 22. september kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlegast bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Emilía L'orange, og fjölskylda. Lokað Lokað verður í dag, fimmtudag, frá kl. 12.00 vegna jarðarfarar SIGURJÓNS GUÐFINNSSONAR. Bílasalan Hraun, Kaplahrauni 2, Hafnarfirði. Lokað Lokað í dag milli kl. 13.00 og 16.00 vegna jarðarfarar KRISTJÁNS BJÖRNSSONAR, lögg. fasteignasala. Fasteignasalan Fasteign.is, Borgartúni 22. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. RSverrir Einarsson útfararstjóri, útfararstjóri. Baldur Frederiksen útfararstjóri, sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is JON SIGURGEIRSSON + Jón Sigurgeirs- son frá Helluvaði fæddist á Helluvaði í Mývatnssveit hinn 14. apríl 1909. Hann lést á Hjúkrunar- heimilinu Seli á Ak- ureyri hinn 11. sept- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akureyrar- kirkju 19. septem- ber. Jón Sigurgeirsson ólst upp á Helluvaði í Mývatnssveit við bú- skap og bústörf með foreldrum sín- um og systkinum. Þau störf urðu honum aldrei hugleikin eða áhuga- efni, hvorki fyrr né síðar. Þó sinnti hann þeim af skyldurækni og trú- mennsku eins og öllum þeim störf- um öðrum, er hann tók sér fyrir hendur á langri ævi. Það kom snemma í ljós að Jóni var ærið margt til lista lagt. Þegar ég fyrst man eftir honum ungum manni hafði hann þegar hlotið nafnbótina „þúsund þjala smiður". Um þær mundir voru tæknilegar nýjungar eins og sími, útvarp, vatns- og vind- aflsstöðvar óðum að ryðja sér til rúms landsmönnum til hagsbóta og velfarnaðar. Að sjálfsögðu voru menn almennt ekki viðbúnir bilun- um þessara tækja eða öðru því, sem úrskeiðis gat farið á þessum fram- andi sviðum. Þá voru menn eins og Jón á Helluvaði ómissandi og ómet- anlegir. Þeir handléku takka, skrúf: ur og víra og allt fór í lag. í Mývatnssveit sinnti Jón á Helluvaði hvers manns kvaki með þeirri upp- örvandi gleði og rósemi er gerði hann manna ástsælastan. Jón var félagslyndur og tók þátt í öllu félagsstarfi og lífi í Mý- vatnssveit. Hann var sérstaklega músíkalskur og lék á flest þau hljóð- færi er hann festi hönd á. Hann lék undir við söng og einnig fyrir dansi og var jafnframt góður dansmaður og hafði fagra tenórrödd. Þó minnist ég þess ekki að hafa heyrt hann leika á fiðlu sem var algengt hljóð- færi og til víða á bæjum. En hann lék á sög ýmist með áslætti eða fiðluboga. Á unglingsárum stundaði Jón nám í orgelleik hjá frænku sinni Guðfinnu Jónsdóttur að Hömrum í Reykjadal. Jón sagði, að þó sú námsdvöl hefði verið of stutt hefði hún haft afgerandi áhrif á tengsl sín við orgel, orgelleik og kirkjur síðar á ævinni. Á barnsárum Jóns var ekki komin lögbundin skólaskylda barna. Flest börn nutu þó nokkurs náms. Sum heimili - og stundum nokkur saman - tóku heimiliskennara handa börn- um sínum. Það gerðu Sigurgeir og Sólveig á Helluvaði. Jón fékk þannig góða undirstöðu í þeim greinum sem allt annað nám byggist á. Hann tók ekki stefnu á langskólanám fremur en flestir unglingar á hans heima- slóðum. En árið 1932 var hann send- ur til Reykjavíkur á námskeið sem Ríkisútvarpið, - þá nýstofnað - boð- aði og bauð til, til þess að kynna fyr- ir mönnum ýmiss konar útvarps- og fjarskiptanýjungar og tækni. Simi 564 4566 jliiixiiixxiiiiix^ h H H H H H H H H H Erfisdrykkjur H H H H H H Sími 562 0200 □t 11IIIXIXZIIIXXI P E R L A N Eftir þetta var Jón allsherjar „tæknir" sinnar heimabyggðar eins og áður er drepið á og raunar miklu víðar. Um miðjan fjórða áratuginn hófu þeir bræðrasynirnir Jón Sigurgeirsson og Jón Þorláksson á Skútu- stöðum nám hjá séra Hermanni Hjartarsyni á Skútustöðum. Hann var afburðamaður og kennari og hjálpaði mörgum til náms. Hann hvatti þá frændur til að fara í Menntaskólann á Akureyri og eftir áramótin 1936 innrituðust þeir í 3ja bekk og tóku gagnfræðapróf um vorið með vel- gengi. Ekki varð sú skólaganga þó lengri enda heimskreppan mikla í algleymingi og hindraði margan námsmann. Um þetta leyti gerðu nokkrir breskir vísindamenn og hefðarmenn sér tíðförult til Islands til þess að rannsaka lífríki Mývatns og þó eink- um Laxár. Jón sem að upplagi var næmur á náttúrunnar mál og kunni skil á umhverfi sínu frá blautu barnsbeini gerðist aðstoðarmaður þessara vísindamanna. Með þeim tókst löng og góð vinátta. Einn þeirra bauð Jóni með sér til Eng- lands og dvaldi hann þar um nokk- urt skeið og naut vel vistarinnar. Jón réð sig í vinnu á herragarði miklum og voldugum, sem átti allt nágrenni sitt þ.e.a.s. heilt þorp, lóðir þess og hús. Dvölin þarna, starfið og ekki síst lífshættir fólksins voru Jóni framandi og jafnframt afar áhugaverður fróðleiksbrunnur. Eig- endur og húsbændur herragarðsins vildu fá Jón til að dvelja lengur og helst setjast að. En þarna var komið fram á síðari hluta ársins 1938 og farið að grilla í aðra heimsstyrjöld, svo Jón ákvað að fara heim. Hefði styrjaldarvá ekki verið fyrir dyrum er óvíst um ferðir Jóns. Hann sagði jafnan að þessi ferð hefði menntað sig mikið. Ekki man ég hvaða ár eða með hverjum aðdraganda Jón tók þá ákvörðun að flytja til Akureyrar og gerast lögregluþjónn þar. I því starfi fylgdi honum slík farsæld að sögur fóru af. Hann beitti vand- ræðamenn aldrei harðræði heldur lempaði þá með glaðlegum viðræð- um ogsöng. Árið 1952 kvæntist Jón systur minni Ragnhildi. Þau bjuggu fyrstu búskaparár sín í Aðalstræti 50 á Ak- ureyri ásamt systur Jóns og fjöl- skyldu. Þegar gamla sjúkrahúsið við Spítalaveg var rifið stóð eftir nyrsti hluti þess, íbúðarhlutinn. Þau keyptu þennan húshluta og Jón gerði við hann listavel eins og hon- um var lagið. Fjölskyldan flutti á Spítalaveg 13 árið 1957 og síðan hef- ur verið þar „opið hús“ yfir „þjóð- braut þvera“. Það samþættist lífs- viðhorfi og viðmóti þeirra hjóna. Eftir að Jón Sigurgeirsson kvæntist þótti honum heimilislíf með börnum og lögregluþjónsstörf fara illa saman. Hann ákvað því að skipta um starf og réðst umsjónar- maður Sjúkrahússins á Akureyri. Og enn einu sinni var Jón Sigur- geirsson kominn sem réttur maður á réttan stað. Umsjónarsvið hans var allt sjúkrahúsið frá kjallara upp að risi og verkefnin allt frá því að þétta lekan krana og til þess að gera við röntgentækin, gleraugu læknanna og brýna skurðhnífa þeirra. Því var fleygt milli manna að Jón hefði leyst nokkra sérfræðinga af hólmi. Ekki ansaði hann svona marklausu hjali. Jón kom víðar við á sjúkrahúsinu en á viðgerðastofu sinni. Á stundum lék hann á hljóðfæri fyrir sjúklingana þeim til yndis og hressingar og á að- fangadagskvöld fór hann jafnan upp á sjúkrahús ásamt læknum og öðru starfsfólki til þess að spila, syngja og ganga í kringum jólatré. Börn Jóns voru oftast með í för og segja þennan þátt rísa hátt í jólahaldi bemskunnar. Á þessum árum tók Jón Sigur- geirsson stöku sinnum að sér organ- istastörf í forföllum og gerðist síðan fastur organisti við Hríseyjarkirkju hjá vini sínum séra Kára Valssyni. Hann hafði mikla gleði af því starfi og lagði sig mjög fram við það, löng- um minnugur námsins hjá Guðfinnu frænku sinni. Jón gerði líka upp orgel. Jón var áhugamaður um öll þjóð- leg fræði og hefur skrifað greinar um margvísleg efni þeirra. Sumar þeirra hafa birst í tímaritum. Ein greina hans er um heiðarbýlin á norðlenskum heiðum, einkum þing- eyskum. Hvernig búsetan sveiflað- ist þar eftir veðurfari og árferði. Það er lærdómsrík saga um lífið í land- inu. Enn eru mörg áhugamál og við- fangsefni Jóns ótalin þ.á m. Island, náttúra þess og ferðalög. Ég hygg að hann hafi ungur að árum skynjað landið sjálft, ef svo má að orði kom- ast, meðtekið það og náttúru þess bæði hrjúfa og ljúfa. Ég minnist þess er Jón lýsti fyrir mér lífi mý- flugulirfunnar, sem er áta silungsins í Laxá, og afdrifum hennar ef áin yrði stífluð. Síðar sá ég þetta sama ferli lirfunnar í tilraunaglösum hjá Geir Gígja náttúrufræðingi. Jón var aðeins 10-11 ára þegar hann var fyrst sendur í göngur/fjár- leitir. Hann kynntist því snemma þeim óbyggðum og öræfum, er síðar urðu honum sem heimahagar. Hann ferð- aðist vítt um landið, einkum þó um Norðurland og ástundaði ýmiss kon- ar náttúruskoðun og rannsóknir. Ber þar fyrst að nefna margra ára rannsókn þeirra Ólafs Jónssonar á Ódáðahrauni, uppruna þess, náttúrufari og sagnfræði. Jón var öflugur liðsmaður í Ferðafélagi Ak- ureyrar og oft fararstjóri í óbyggða og öræfaferðum þess. Einnar ferðar minnist ég með Ferðafélagi Akureyrar þar sem Jón var fararstjóri. Ferðinni var heitið í Kverkfjöll og Hvannalindir. Þetta var eins konar frumskoðunarferð um svæðið norðan Vatnajökuls og hugsanlegar ferðaleiðir þess fyrir bíla. Vitað var að Ósvaldur Knudsen hafði brotist með bíl austur yfir Jök- ulsá á Fjöllum mjög sunnarlega. Lá slóðin mjög til austurs og var enn vel skýr. Að öðru leyti var þetta svæði því sem næst ókannað og því „bros- andi land“ fyrir Jón. Við ferðuðumst á jeppum af ýmsum stærðum og gerðum og þar sem leið okkar lá að mestu um óvissusvæði fór Jón oftast fremstur í lest. Ég skrifaði á sínum tíma grein um þessa ferð og fund ís- hellisins í Kverkfjöllum. Þar stend- ur um fararstjórn Jóns: „Jón Sigur- geirsson fór oftast fyrir og svo virðist sem hann velji leiðir sam- kvæmt sérstakri eðlisávísan. Allir ferðafélagar hans treysta henni og ekki er vitað til að hún hafi brugðist. Það er mjög gaman að ferðast eftir þessum „áttavita" hans, sem stund- um, við fyrstu sýn virðist benda á ófæru, teflir þó aldrei í tvísýnu og vísar að lokum ætíð til rétts vegar.“ Þessi snjalli vegvísir Jóns Sigur- geirssonar kom ekki einungis ferða- félögum hans að gagni heldur reyndist hann verka eins konar stoðvefur í öllum störfum hans ekki síst björgunarstörfum sem hann var oft kvaddur til. Seint gleymist Geys- isslysið á Vatnajökli fyrir fimmtíu árum og dagurinn þegar fólkið fannst á lífi. Mývetningar sem voru að taka upp kartöflur í Bjarnarflagi neðan Námafjalls sáu langa bílalest með Jón Sigurgeirsson í fararbroddi þeysa fram hjá neðan úr sveit og hverfa austur fyrir Námafjall. Þetta var björgunarsveit frá Ak- ureyri á leið á óvissan slysstað á Vatnajökli. Við veifuðum og hrópuð- um heillakveðjur til björgunar- mannanna. Jón frá Helluvaði var lagður af stað til fólksins á Vatnajökli og þá vissu allir að því væri borgið. Hug- kvæmni og fyrirhyggja skipti þar máli því að á örskammri undirbún- ingsstund björgunarmanna tókst Jóni að skjótast út á Gefjun og fylla bfl sinn af lopa. í Herðabreiðarlind- um og á leið suður með Jökulsá tíndu menn sterka hvannarstöngla. Þegar leitarmenn komu komu suður á Vatnajökul í tvísýnu veðri og
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.