Morgunblaðið - 21.09.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.09.2000, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 MORGIINBLAÐIÐ FRÉTTIR Dilkar vænni í ár en í fyrra DILKAR koma almennt vænir af íjalli, að sögn Sverris Ágústssonar, sláturhússtjóra hjá Sláturfélagi Suðurlands á Selfossi. Hann sagð- ist telja að dilkar væru vænni nú en í fyrra. Ástæðan væri einstak- lega gott sumar. Grös væru vart fallin enn þótt komið væri fram yf- ir miðjan september. Sverrir sagði að slátrun væri að komast á fullt skrið á Selfossi og eftir helgina yrði sláturhúsið keyrt á fullum afköstum. Þá væri stefnt að því að slátra 1.600-1.800 dilkum á dag. Samtals væri áformað að slátra 65.000 fjár á Selfossi í sumar sem væri heldur meira en í fyrra. Sverrir sagði að eins og annars staðar hefði verið erfítt að fá nægi- lega marga menn til starfa við slátrun. Hann sagði að enn vantaði mannskap til starfa í sláturhúsinu. Áframhaldandi tengi- flug tryg'gt til áramóta SAMKOMULAG náðist í gær milli Flugfélags ís- lands og samgönguráðuneytisins um áframhald- andi tengiflug frá Akureyri til Egilsstaða, Vopna- fjarðar, Þórshafnar og Isafjarðar til ársloka. Þá mun niðurstaða útboðs á þessum flugleiðum sem ráðuneytið er með í undirbúningi liggja fyrir. Flugfélagið tilkynnti í fyrradag að ákveðið hefði verið að fella niður flugið frá og með 1. októ- ber næstkomandi. En samkvæmt samkomulag- inu, sem gildir frá 1. september, fær Flugfélagið greiðslu fyrir flugið fram að áramótum frá samgönguráðuneytinu sem miðast við niðurstöðu útboðsins. Að sögn Árna Gunnarssonar, sölu- og markaðs- stjóra Flugfélags íslands, eru útboðsgögn tilbúin hjá ráðuneytinu og verða þau send út innan tíðar. Flugfélagið hyggst bjóða í allar leiðirnar en sjúkraflug og tengiflug verða boðin út saman. Það þýðir, að sögn Árna, að ríkið greiðir flugrekanda grunnþóknun fyrir það að hafa flugmenn og flug- vélar til reiðu. Síðan er greitt sérstaklega fyrir hvert sjúkraflug. Frumskilyrði að hafa flugsamgöngur í lagi Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri í Vopnafjarð- arhreppi, sagðist í samtali við Morgunblaðið vera ákaflega feginn því að heyra að flugið félli ekki niður enda væri það frumskilyrði fyrir sveitarfé- lagið að hafa flugsamgöngur í lagi því vegakerfið væri það slakt. „Þessar niðurstöður eru í tákt við það sem ég hélt að myndi gerast. Nú leggjumst við hins vegar öll á eitt að þjónustan verði ekki lakari en hún hefur verið þegar niðurstöður út- boðsins eru fengnar en hingað er flogið sex sinn- um í viku með 19 sæta vél.“ Bæjar- og sveitarstjórar áfangastaðanna fjög- urra voru á einu máli um mikilvægi tengiflugsins þegar Morgunblaðið ræddi við þá í gær. Magnús Már Þorvaldsson, sveitarstjóri Þórshafnar- hrepps, tók í sama streng og Þorsteinn og sagði flugið mjög mikilvægt í ljósi lélegs vegakerfis og þess hve íbúar svæðisins væru háðir því að sækja sér þjónustu annars staðar frá. í Morgunblaðinu í gær kom fram að tap hefur verið á rekstri tengiflugsins undanfarið, vegna hækkunar kostnaðar og fækkunar farþega. Árni Gunnarsson sagði að sem dæmi hefði farþegum til Vopnafjarðar í ágústmánuði fækkað úr 157 í fyrra í 129 í ár, en farþegum á milli ísafjarðar og Akur- eyi'ar fækkað úr 377 í 248 á tímabilinu. Farþegum til Þórshafnar fjölgaði hins vegar úr 159 í 204. Ef marsmánuðir í ár og í fyrra eru bornir sam- an þá var einnig fækkun á tengiflugi til Vopna- fjarðar og ísafjarðar, farþegum til Vopnafjarðar fækkaði úr 293 í 216 og til ísafjarðar úr 318 í 222. Farþegum til Þórshafnar fjölgaði hins vegar einn- ig á því tímabili úr 141 í 152. Morgunblaðið/Kristján Zophontasson Um siðustu helgi var réttað í Þverárrétt í Borgarfirði og eins og sjá má á myndinni er enn margt fé í Borgarfirði þrátt fyrir að fé hafi þar fækkað á síðustu árum. Fjármálaráðuneyti hafnar beiðni borgarstjóra um upplýsingar Samkeppnis- stofnun hafí af- skipti af málinu FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur hafnað beiðni borgarstjórans í Reykjavík um upplýsingar er varða viðskipti ráðuneytisins og ríkisíyrir- tækja við Landssíma íslands hf. og önnur íýrirtæki sem veita sömu þjón- ustu. Borgarstjóri segir hins vegar að málinu verði haldið áfram og vill að Samkeppnisstofnun dragi þessar upplýsingar fram. Tildrög málsins eru þau að Ingi- björg Sólrún Gísladóttii- borgai-stjóri lagði fjórar spurningar fyrir fjár- málaráðuneytið með bréfi 6. septem- ber sl. varðandi útboð og viðskipti á fjarskiptasviði. í synjun sinni vísar ráðuneytið til upplýsingalaga og segir rétt að synja erindinu þar sem viðkomandi upplýs- ingar snúi að mikilvægum þáttum er varði rekstur og samkeppnisstöðu umræddra íyrirtækja. Stjórnvöldum sé í tilvikum sem þessum óheimilt að veita upplýsingai- um mikilvæga fjár- hags- og viðskiptahagsmuni fyiir- tækja og annarra lögaðila hvort sem um sé að ræða fyrirtæki sem sé að hluta eða að fullu í eigu opinberra að- ila eða ekki. „Þess skal jafnframt getið að sam- kvæmt upplýsingalögum er stjóm- valdi ekki skylt að vinna úr frum- gögnum sundurliðaðar upplýsingar í hendur beiðanda upplýsinga svo sem þér farið fram á,“ segir í niðurlagi bréfs fjármálaráðuneytisins. Borgarstjóri ekki sáttur Færeyingar læra verkfræði í fjarkennslu frá Háskólanum HÁSKÓLI íslands og Fróðskapar- setrið í Færeyjum hafa frá í haust staðið sameiginlega að fjar- kennslunámskeiði í rafmagnsverk- fræði og er Netið notað til kennsl- unnar. Tíu nemendur sitja námskeið um raforkuverkfræði á hvorum stað fyrir sig og er hér um að ræða tilraunaverkefni sem Egill Hreinsson, prófessor í rafmagns- verkfræði við Háskóla íslands, kveðst vonast til að marki upphafið að frekari samstarfsverkefnum á þessu sviði. Kennsla fer fram með þeim hætti að Egill sér um fyrirlestra í nám- skeiðinu og kemur þeim til skila til nemenda sinna bæði í Færeyjum og á íslandi um Netið, þó að þeir ís- lensku fái reyndar einnig hefð- bundna kennslu í þessum lið nám- skeiðsins. Færeyskur kollega Egils sér hins vegar um gerð verkefna sem nemendum er ætlað að leysa, og kemur hann þeim til nemend- anna í gegnum Netið sömuleiðis. Þeir skila síðan úrlausnum sínum með sama hætti. Með þessu segir Egill að sé hægt að samnýta og spara kennslukrafta. Meiningin er að vísu að hvor kenn- ari um sig heimsæki nemendur sína í hinu landinu eins og einu sinni á önn en eftir stendur að hér er verið að gera tilraun með að kenna nám- skeiðið í fjarkennsluformi. „Munur- inn er sá að það þarf ekki neina reglulega, vikulega miðlun, nem- endur og kennarar þui-fa ekki að hittast tvisvar í viku eins og venja er í hefðbundinni kennslu," sagði Egill. Námið fer fram á ensku enda seg- ir Egill að um sérhæft tæknimál sé að ræða og enskan henti því best. Ingibjörg Sólrún segist ekki sátt við svör fjármálaráðuneytisins. „Við erum búin að setja fram þá kröfu að Samkeppnisstofnun leiti svara við þessum spurningum og við munum halda málinu áfram og reyna að sjá til þess að þessi svör fáist,“ sagði hún. Hún segist telja að nauðsynlegt sé að umbeðnar upplýsingar liggi fyrir þannig að menn hafi heildstæða mynd af þessum fjarskiptamarkaði og þeim vinnubrögðum sem þar tíðkast. „Við höfum sett fram í umsögn til Samkeppnisstofnunar að við teljum ómögulegt að stofnunin geti fjallað hlutlægt um kæru Landssímans án þess að hún hafi heildarmynd af fjarskiptamarkaðinum og þeim samn- ingum sem þar hafa verið gerðir. Við gerum þá kröfu til Samkeppnisstofn- unar að hún leiti svara við þessum spumingum,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Sérblöð í dag iÞsámR Rússinn Nemov sigraði í fjölþraut fimleikanna í Sydney/B9 Þjálfari Arnar segir að allt verði lagt undir í úrslitunum/B7 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.