Morgunblaðið - 21.09.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 5í
UMRÆÐAN
Auglýst eftir vinum
fískvinnslunnar
EG AUGLYSI eftir
vinum fiskvinnslunnar.
Hvar eru þeir nú þegar
starfsumhverfi fisk-
vinnslunnar hefur
breyst, henni í mikinn
merkjanlegan óhag?
Ég vísa til fréttar
Morgunblaðsins sl.
föstudag um að útflutn-
ingur á óunnum, óseld-
um afla hafi aukist um
23% frá janúar til júlí í
ár vegna breytinga
sj ávarútvegsráðherra
á reglugerð um veiðar í
atvinnuskyni. Svanfríður
Sömuleiðis fréttar Jónasdóttir
Ríkisútvarpsins sl.
sunnudag þar sem fram kemur að
þrátt fyrir framangreind áhrif til
aukins útflutnings hafi verðmæta-
aukning einungis orðið um 5%. Þessi
mikla aukning á útflutningi kemur
mér satt að segja á óvart. Eftir alla
umræðuna um mikilvægi þess að
halda skipum og kvóta í byggðalög-
unum og allar áhyggjuræðurnar um
stöðu fiskvinnslunnar og atvinnu-
málin í sjávarbyggðunum þá hefði ég
haldið að meira þyrfti til áður en
breytingar af þessari stærðargráðu
yrðu. Og ávinningurinn fyrir útgerð-
ina virðist harla lítill.
fslensk fískvinnsla
fái að keppa
Þessi aukni útflutningur á óunn-
um afla, sem ekki hefur verið boðinn
íslenskri fiskvinnslu en er fluttur úr
landi óseldur upp á von og óvon,
þrengir líka augljóslega að mögu-
leikum vinnslunnar hér heima. Ef
hún ætti þess kost að bjóða í aflann
mætti ætla að meiri afli kæmi til
vinnslu hér heima og því myndi
fylgja aukið öryggi fyrir íslenska
fiskvinnslu. Með þessu er ég ekki að
segja að íslendingar eigi að sitja ein-
ir að aflanum. Erlendum fyrirtækj-
um er heimilt að bjóða í afla á ís-
lenskum fiskmörkuðum og þannig
ætti það að vera áfram. Það sem er
óþolandi er að útgerðin sendir aflann
óseldan beint á vit hinna erlendu
kaupenda án þess að á það sé látið
reyna hvort íslenska fiskvinnslan sé
samkeppnisfær.
Bent hefur verið á að það geti ver-
ið umhent fyrir erlend fyrirtæki að
bjóða í aflann á íslenskum mörkuð-
um, þeir þurfi þá að hafa hér um-
boðsmenn og ærinn kostnað. Nú er
það svo að um allt land bjóða menn
VÖÖ'íUS®©1'
»
Bókhaldskerfi
pq KERFISÞRÓUN HF.
II FÁKAFENI 11, s. 568 8055
http://www.kerfisthroun.is/
rafrænt í þann afla sem
seldur er um fiskmar-
kaðina. Hið sama
stendur hinum erlendu
fyrirtækjum opið. Og
aflinn bærist þeim jafn-
ferskur og nú. Flutn-
ingaskipin sigla bara
einu sinni í viku núna
með gámana þannig að
menn verða að haga
kaupum og skipulagi
eftir því nú þegar. Eini
munurinn fyrir hina er-
lendu kaupendur væri
sá að í stað þess að fá
aflann með flutninga-
skipi og bjóða hann upp
erlendis væri aflinn
boðinn upp hér heima og síðan væri
það sem seldist til útlanda sett um
borð í flutningaskipið. Munurinn fyr-
ir íslensku fískvinnsluna væri hins
vegar sá að hún hefði átt þess kost að
bjóða í þann afla sem veiddur er í
okkar lögsögu og útgerðarmenn
hafa ekki samið um sölu á fyrirfram.
Verðið svipað
og hér heima
í umfjöllun um þessi mál vísar
Logi Þormóðsson fiskverkandi í
Sandgerði til þess að það sé óréttlátt
að þeir sem eiga auðlindina, íslend-
ingar, fái ekki einu sinni að bjóða í
þann afla sem úr henni er veiddur.
Hann vísar einnig til þess að verðið á
Útflutningur
Útgerðin sendir aflann
óunninn og óseldan
beint á vit hinna erlendu
kaupenda, segir
Svanfrfður Jónasdóttir,
án þess að á það sé
látið reyna hvort
íslenska fiskvinnslan
sé samkeppnisfær.
erlendu mörkuðunum sé svipað því
sem gerist hér heima.
Síðan eigi eftir að borga flutnings-
kostnað auk þess sem tollar leggist á
sumar tegundir. Aukning á útflutn-
ingi á óunnum og óseldum afla um
23% um leið og ráðherra minnkar
álagið lítillega setur sannarlega
spurningarmerki við innihald um-
ræðunnar um flskvinnslu í landinu.
Hver er hin raunverulega ástæða
þess að útgerðin kýs að haga málum
með þessum hætti? Og hvar eru vinir
flskvinnslunnar?
FKsa-
tilboð
Gólfflís Genova
stærð 33,3x33,3
kr. 1.695 m
HÚSASMIDJAN
Sími 525-3000 • www.husa.is
Snertifrí
blöndunartækJ
Rafeindastýrt, snertifrítt blöndunartæki sem fer i gang við
rof innrauðs geisla. Hentar sérlega vel fyrir matvælaiðnað,
læknastofur, veitingastaði o.fl. þar sem hreinlæti skiptir
öllu máli. Einnig fyrir heimili.
Geberit - svissnesk gæði
T€nGI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 564 1088 • Fax: 5641089 • tengi.is
www.ljosmyndir.net
Aukavinna!
Viltu eiga frí á daginn og hafa góðar tekjur á kvöldin?
Traust fyrirtæki og góð vinnuaðstaða.
Upplýsingar gefur Þórunn í síma fCA