Morgunblaðið - 21.09.2000, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 21. SERTKMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Vestmannaeyingar nidur
Athafnamenn bæjarins verða varla lengi að koma eina þingmanni kjördæmisins sem
þorði að strögla íþessu máli á stall.
Aðalmiðstöð sjúkraflugs
verður á Akureyri
AÐALMIÐSTÖÐ sjúkraflugs verð-
ur á Akureyri samkvæmt útboðslýs-
ingu vegna sjúkra- og áætlunar-
flugs sem lokið er á vegum
heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis,
og liggur hún frammi hjá Ríkis-
kaupum til sölu og sýnis.
I útboðslýsingu er gerð sú al-
menna krafa að tveir flugmenn
skuli vera í áætlunar- og sjúkra-
flugi. Auk þess er ætlast til að flug-
rekandi hafi a.m.k. eina 16 manna
flugvél til taks í áætlunarflugi allt
árið og aðra um sumarmánuðina
vegna Grímseyjarflugs. í útboðslýs-
ingu eru gerðar ríkar kröfur um
tæknilegan búnað og getu vélanna.
Samkvæmt tilkynningu frá heil-
brigðisráðuneytinu hefur verið unn-
ið að útboðslýsingunni frá því fyrr í
sumar og sé um að ræða samstarf-
sverkefni á vegum heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytis, sam-
gönguráðuneytis, Tryggingastofn-
unar ríkisins og Flugmálastjórnar,
sem Ríkiskaup sá um.
Tillit tekið til ábendinga
Drög að útboðslýsingu voru form-
lega send til umsagnar til heilbrigð-
isstofnana, tiltekinna sveitarfélaga
og flugrekstraraðila í júlí, en auk
þess hafi fjölmörgum verið gefinn
kostur á að segja álit sitt á drögun-
Ný og skemmtilega hönnuð
staeða frá Pioneer sem
hverfur léttilega í landslagið
heima hjá þér, festist
hæglega á vegg og er
kraftmikil prýði hvar sem er.
etJag
NSF-10 hljómflutningstæki
• 2x50W RMS-útvarpsmagnari með
24 stöðva minni • Einn diskur
• Aðskilinn bassi og diskant
• Stafræn tenging • Tvískiptur hátalari
(2 way) • Djúpbassi
BRÆOURNIR
ORMSSON
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.ls
um. Farið var yfir athugasemdir og
ábendingar og var tekið tillit til
þeirra á ýmsan hátt. I tilkynning-
unni segir að af hálfu heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins hafi
verið lögð áhersla á að með útboði
væri sjúkraflug í landinu tryggt
með hagsmuni allra landsmanna í
huga, að sjúkraflugið hefði tafar-
lausan forgang, að aðalmiðstöð
sjúkraflugsins væri á Akureyri og
að fullt tillit væri tekið til öryggis-
og heilbrigðissjónarmiða. Stefnt sé
að því að heilbrigðisstarfsmenn fari
í auknum mæli með sjúkraflugvél-
um til þeirra byggðarlaga þar sem
aðeins er einn læknir. Læknir stað-
arins þurfl því ekki að yflrgefa
héraðið. Sjúkraflutningamenn á Ak-
ureyri hafl farið í sjúkraflug á þenn-
an hátt og hafl það reynst mjög vel.
Gerð krafa um tvo flugmenn
I útboðslýsingu er gerð sú al-
menna krafa að tveir flugmenn
skuli vera í áætlunar- og sjúkra-
flugi. Auk þess er ætlast til að flug-
rekandi hafi a.m.k. eina 16 manna
flugvél til taks í áætlunarflugi allt
árið og aðra um sumarmánuðina
vegna Grímseyjarflugs. Segir í til-
kynningu ráðuneytisins að þessi
skilyrði gildi um norðursvæðið eins
pg það sé skilgreint í útboðslýsingu.
í útboðslýsingu séu gerðar ríkar
kröfur um tæknilegan búnað og
getu vélanna. Útboðssvæðin eru
fjögur, þ.e. norður-, suður-, Vest-
fjarða- og Vestmannaeyjasvæði.
Hverju svæði tilheyrir eitt aðal-
sjúkrahús sem sjúklingar skulu að
jafnaði fluttir til, nema annað komi
fram í beiðni heilbrigðisstarfs-
manns um sjúkraflug. Þungi áætl-
unarflugsins er innan norðursvæðis,
en árstíðabundið áætlunarflug er þó
innan Vestfjarðasvæðis. Hægt er að
bjóða í öll svæðin eða tiltekin svæði
miðað við þau skilyrði sem tilgreind
eru.
Tilboðin verða opnuð hjá Ríkis-
kaupum 23. október nk. að við-
stöddum þeim bjóðendum sem þess
óska. Stefnt er að því að nýir samn-
ingar til þriggja ára taki gildi um
áramótin. Utboðið er auglýst á
EES-svæðinu.
Ráðstefna um upplýsingatækni
Hjúkrunarfræð-
ingar þinga
Ásta Thoroddsen
DAG klukkan 13.00
verður haldin ráð-
stefna um upplýs-
ingatækni og hjúkrun á
Grand Hótel í Reykjavík.
Það er hjúkrunarfræði-
deild Háskóla íslands sem
stendur fyrir ráðstefn-
unni. Ásta Thoroddsen
lektor hefur haft umsjón
með undirbúningi og var
spurð hvert væri helsta
markmið ráðstefnunnar?
„Tilgangurinn er að
kynna fýrir hjúkrunar-
fræðingum og öðru fag-
fólki nokkra af möguleik-
um upplýsingatækn-
innar.“
- Hvaða möguleika opn-
arhún t.d. í hjúkrun ?
„Upplýsingatækni
skapar möguleika á að
fræða sjúklinga eða skjólstæð-
inga og miðlar upplýsingum inn í
hjúkrunarstarfið. Upplýsinga-
tækni hefur opnað nýjar víddir í
að nýta gögn úr hjúkrun til þess
að bæta þjónustu og skapa nýja
þekkingu. Þessi tækni skapar
líka alveg nýja möguleika í
kennslu, ráðstefnan sprettur ein-
mitt upp úr því. Upplýsingatækn-
in skapar og nýja möguleika í
fjarlækningum og fjarheilbrigðis-
þjónustu. Af því að byggðir eru
svo dreifðar á íslandi þarf að
færa þjónustuna heim í hérað til
fólksins en fagmenntað fólk á öll-
um sviðum er ekki í hverju hér-
aði. Þessi tækni skapar nýja
möguleika, bæði fyrir þá sem búa
á viðkomandi stað og líka fyrir þá
sem eiga að þjóna íbúunum. Þetta
nær auðvitað til margvíslegra
sviða auk heilbrigðisþjónustunn-
ar.“
- Hvað fer fram á ráðstefnunni
í dag á Grand Hótel?
„Fyrirlesararnir eru allir
hjúkninarfræðingar. Fjallað
verður um Netið sem samskipta-
leið í kennslu, sem upplýsinga-
miðlun til sjúklinga og aðgengi að
upplýsingum fyrir hjúkrunar-
fræðinga. Stór hluti erinda fjallar
um rafræna skráningu í hjúkrun.
Einnig verður fjallað um gagna-
grunn á heilbrigðissviðien hann
hefur skapað alveg nýja mögu-
leika til að bæta þekkingu í hjúkr-
un. En til að það sé unnt verður
að búa upplýsingar úr hjúkrun út
á þann veg að hægt sé að nýta
þær á rafrænan hátt. Til þess
þurfa upplýsingar að vera kóðað-
ar, það er ekki hægt að nota
frjálsan texta. Mikil umræða hef-
ur átt sér stað meðal hjúkrunar-
fræðinga um flokkunarkerfi í
hjúkrun."
-Hvernig eru svona upplýs-
ingar flokkaðar?
„Það sem skráð er um ástand
sjúklings eða hjúkrunarvandamál
hans er skráð með stöðluðum
hætti. Á sama hátt er hjúkrunar-
meðferð skráð með aðstoð flokk-
unarkerfa sem og árangur með-
ferðar. Mikil þróun hefur átt sér
stað í þessum efnum í hjúkrun á
undanförnum árum á alþjóðavett-
vangi. Þessi tækni hef-
ur skapað möguleika á
að bera saman hjúkrun
á milli landa eða lands-
væða. Tilgangurinn
með því að skrá þetta
svona er meðal annars
að geta sýnt fram á
hvað hjúkrun kostar og hvort
munur er á hjúkrunarþjónustu
frá einum stað til annars."
-Er það vandiega skipulagt
hvað er skráð niður um sjúkiinga,
eru þaðalltaf sömu atriðin?
„Það eru ákveðnir lyklar sem
reynt er að fylgja alltaf. En svo
eru aðrar upplýsingar að auki en
► Ásta Thoroddsen fæddist í
Reykjavík 24. apríl 1953. Hún
lauk stúdentsprófí frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1973 og
B.S.-prófi í hjúkrunarfræði frá
Háskóla íslands 1979. Hún hefur
einnig lokið meistaraprófi frá
Rochesterháskóla í New York
1989. Ásta hefur starfað sem
hjúkrunarfræðingur og er nú
lektor við hjúkrunarfræðideild
Háskóla íslands. Hún er gift
Bolla Héðinssyni hagfræðingi og
eiga þau fjögur börn.
maður nálgast þær líka út frá
kerfisbundinni flokkun. Miklu
máli skiptir þó að nálgunin sé á
einstaklingsbundinn hátt, t.d. sé
aflað upplýsinga um hversu sjálf-
bjarga hver og einn er. Áfram-
haldið ræðst svo talsvert af þeim
upplýsingum."
- Hvað er fleira á dagskrá ráð-
stefnunnar?
„Með tilkomu gagnagrunns á
heilbrigðissviði hafa hjúkrunar-
fræðingar rætt um hvernig þeir
geti best nýtt gagnagrunna.
Kynntir verða RAI-gagnagrunn-
ar. Einnig sagt frá upplýsingum
sem Landlæknisembættið lætur
sjúkrastofnanir safna. Þar er litl-
ar upplýsingar um hjúkrun að
flnna. Á ráðstefnunni verða
kynntar leiðir til þess að bæta úr
slíku. Þá verða kynntar hug-
myndir um samræmda skráningu
á öllu landinu, m.a. í mæðra-
vernd. Rætt verður um mikilvægi
skráningar og þá möguleika sem
rafræn skráning skapar. Síðasta
umfjöllunarefni á ráðstefnunni er
um rannsóknir sem gerðar hafa
verið á viðhorfum hjúkrunar-
fræðinga til tölvuvæðingar."
-Er þetta efni sem brennur
mjög á hjúkrunarfræðingum nú
um stundir?
„Já, það er óhætt að segja það.
Sjúkraskráin er að verða rafræn
og til að sem best mynd skapist af
ástandi sjúklings þurfa upplýs-
ingar um hjúkrun hans að liggja
fyrir ásamt upplýsingum frá
læknum og öðrum heilbrigðis-
starfsmönnum sem annast hann.
Unnið er að því í heil-
brigðisráðuneytinu að
semja kröfulýsingu
fyrir rafræn sjúkra-
skrárkerfi og miklu
skiptir að hjúkrunar-
upplýsingar verði hluti
af því verkefni. Þess
má geta að ráðstefna þessi
sprettur upp úr námskeiði sem
haldið var sl. vor á vegum hjúkr-
unarfræðideildar H.Í., háskólans
í Örebro í Svíþjóð, háskólans í
Ósló og háskólans í Iowa. Þetta
var net- og fjarkennslunámskeið
sem 60 hjúkrunarfræðingar frá
þessum löndum tóku þátt í.“
Miklu skiptir
að nálgunin
sé á einstakl-
ingsbundinn
hátt
i