Morgunblaðið - 21.09.2000, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 27
ERLENT
Ríflegur
afgang'ur
í Svíþjóð
RÍKISSTJÓRN jafnaðai--
manna í Svíþjóð kynnti í gær á
þingi fjái'lögin fyrir næsta ár en
í þeim er gert ráð fyrir nokkurri
skattalækkun þrátt fyrir aukin
útgjöld til ýmissa mála. Búist er
við, að hagvöxturinn verði 4% á
þessu ári en 3,5% á því næsta.
Atvinnuleysið, sem hefur verið
mikið í Svíþjóð í allmörg ár, er
nú komið niðm' í 5% og verð-
bólga er rúmlega 2%. Er ekki
búist við neinum verulegum
breytingum í því efni út árið
2002. Því hafði verið spáð, að
fjárlagaafgangurinn yrði 2,5%
af þjóðarframleiðslu næsta árs
en líklega verður hann öllu
meiri og um 2% á næstu árum.
Ætlai' stjórnin að lækka tekju-
skatta um 118 milljarða ísl. kr.
og þá aðallega á lág- og meðal-
tekjufólki. Þá er stefnt að því að
lækka skuldir ríkisins úr 59% af
þjóðarframleiðslu eins og nú er
og í 53%. Aftur á móti verða
barnabætur hækkaðar og fram-
lög til menntamála aukin.
Sænska stjórnarandstaðan
gagnrýndi fjárlagafrumvarpið
og sagði útgjöldin of mikil en
skattalækkunina of litla.
Bandaríkin
vildu
Dani í ESB
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjun-
um áttu mikinn þátt í því á bak
við tjöldin að Danir gengu í
Evrópusambandið á sínum
tíma. Kemur þetta fram í
bandarískum skjölum, sem nú
hafa verið gerð opinber. Eftir
stríðið studdu Bandaríkjamenn
og styrktu með fé ýmis evrópsk
samtök, sefn börðust fyrir ná-
inni samvinnu Evrópuríkjanna,
og aðallega í gegnum nefnd,
sem William Donovan herhöfð-
ingi veitti forstöðu. Stýrði hann
áður stofnuninni, sem var und-
anfari CIA, bandarísku leyni-
þjónustunni. I skjölunum kem-
ur fram, að Jens Otto Krag, sem
var forsætisráðherra Danmerk-
ur er landið gekk í Evrópusam-
bandið 1972, hafi verið gestur
Bilderberg-hópsins en hann
skipuðu ýmsir áhrifamenn í
Bandaríkjunum og Evrópu.
Komu þeir saman árlega til að
ræða um aukna samvinnu
Evrópuríkjanna og aukið við-
skiptafrelsi. Hefur Bilderberg-
hópurinn raunar breyst mikið
síðan því að nú eru þar ýmsir
evrópskir efasemdamenn um
samrunaferlið í álfunni og Ijóst
er, að í Bandaríkjunum líkar
ekki öllum hugsanleg tilkoma
evrópskra Bandaríkja.
Loksins á íslandi!
Frönsku svejhherbergishúsgögnin frá Gerstyl.
Við kynnum THER-A-PEDIC,
bandarískar heilsudýnur,
sem unnið hafa til margra verðlauna
fyrir hönnun og gæði.
Komdu og leggðu þig!
elska og njóta...
Að sofa,
... að hætti franskra. Frakkar eru kröfuharðir. Góður matur, gott vín og
góður svefn skiptir þá verulegu máli - en umgjörðin þarf að vera sú rétta.
Ameríski draumurinn?
ÍJróttir á Netinu
<§> mbl.is
Da?$ferð til Kulusuk
* alla virka daga'
Bókaðu í síma 570 3030
FLUGFELAG ISLANDS
'Takmarkaö sætaframboö. Gildir til 29. september. 570 3001 • websales&siricelgnd.is • WWW.fluglelag.is