Morgunblaðið - 21.09.2000, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAG UR 21. SEFI'EMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
t8 Come On Over
Christina Aguilera
Carmen Queasy
Maxim
■ 10 Disappear
Metallica
11 Could I Have This Kiss Forever
Whitney & Enrique
JL 12 Lets Get Loud
Jennifer Lopez
| 13 Jumpin Jumpin
Destinys Child
14 Music
Madonna
I 15 Try Again
Aaliyah
t16 Rock Superstar
Cypress Hill
17 Change
Deftones
18 Shackles
Mary Mary
19 The One
Backstreet Boys
20 Get Along With You
Kelis
Listinn er óformleg vinsældakönnun og byggist á vali gesta mbl.is.
® mbl.is topp20
SKJÁREINN
Getgátur uppi um flugslys í Mexíkóflóa
AP
Thad Allen, starfsmaður bandarísku strandgæslunnar, bendir fréttamönnum á hvar kúbanska flugvélin fór í
sjdinn en bandarisk yfirvöldu höfðu í gær hug á að yfirheyra farþega vélarinnar um för þeirra.
Flótti eða flugrán
kúbanskrar vélar?
Havana, Miami, Key West. AP, AFP.
KÚBÖNSK flugvél fór í sjóinn í
Mexíkóflóa á þriðjudag og náði
áhöfn nærliggjandi fraktskips að
bjarga níu þeirra tíu Kúbumanna
sem um borð voru í vélinni, en einn
fannst látinn í sjónum. Ýmsar
spurningar hafa vaknað í kjölfar
slyssins um ferðalag vélarinnar þar
sem upplýsingar hafa allar þótt
mjög brotakenndar.
í gær lá til að mynda ekki fyrir
hvort um flugrán hefði verið að
ræða, líkt og kúbönsk yfirvöld hafa
haldið fram, hvort farþegar og flug-
maður vélarinnar hafi verið á flótta
til Bandaríkjanna, eða hvort vélin
hafi einfaldlega villst af leið.
Skömmu áður en vélin fór í sjóinn
höfðu flugmálayfirvöld á Kúbu haft
samband við flugmálayfirvöld
Bandaríkjanna og_ tilkynnt um
mögulegt flugrán. Á þeim tíma var
talið að allt að 18 manns hefðu verið
um borð í vélinni og hafa yfirvöld á
Kúbu enn ekki viljað staðfesta
fjölda farþega. Fjarskiptasamband
við vélina, sem var rússnesk smíð af
gerðinni Anotonov AN-2, slitnaði
síðan um 15 mínútum síðar og lenti
vélin í sjónum um 80 km vestur af
strönd Kúbu.
Ekki lá í gær fyrir hvort vélin
hefði hrapað eða lent vegna elds-
neytisskorts, en flugstjórnarmenn í
Havana á Kúbu höfðu áður tilkynnt
flugumferðarstjórn á Miami að flug-
maður vélarinnar hefði sagst aðeins
hafa eldsneyti í hálfa aðra klukjku-
stund. Að sögn Konstantinos Kal-
atgis, skipstjóra flutningaskipsins
Chios Dream sem kom nímenning-
unum til hjálpar, hringsólaði vélin
um tíma yfir skipinu áður en hún
losaði sig við kassa í sjóinn og hrap-
aði skömmu síðar sjálf. Fólkið slapp
flest með minniháttar meiðsl, utan
einn mann er sendur var á sjúkra-
hús í Flórída með alvarlega höfuð-
áverka.
Síðdegis í gær var enn ekki búið
að yfirheyra Kúbumennina - þrjá
karlmenn, þrjár konur og þrjú börn
- um ferðalag þeirra, en búist var
við að starfsmaður bandarísku Al-
ríkislögreglunnar (FBI) hæfist
fljótlega handa. Ýmsar getgátur
voni því í gær uppi um ferðalag vél-
arinnar þótt yfirvöld á Kúbu segðu
ekki ljóst hverjir farþegar og flug-
maður vélarinnar hefðu verið.
Flótti eða flugrán?
Aina Cepero, kúbanskur flótta-
maður á Flórida, taldi þó víst að
tveir bræður hennar hefðu verið
meðal farþega vélarinnar. „Þau
komu af fúsum og frjálsum vilja,“
sagði Cepero. Tengdaforeldrar
Lenin Iglesias Hernandez, sem tal-
inn er hafa verið flugmaður vélar-
innar, voru ekki alveg jafn viss. En
Hernandez, sem hafði þann starfa
að úða eitri úr flugvél yfir akra, náði
í konu sína og tvo syni á flugvöllinn á
Pinar del Rio áður en vélin hélt yfir
hafið. „Hún talaði aldrei um að gera
þetta, ekki einu sinni í gríni,“ sagði
Jorge Martinez, bróðir Mercedes
Martinez, eiginkonu Hernandez.
Að sögn bandarísku strandgæsl-
unnar kann vélin þá að hafa villst af
leið þar sem hún var á vesturleið
burt frá bæði ströndum Kúbu og
Bandaríkjanna.
kynningarafsláttur af
serpöntunum frá 16-23 sept.
Vönduð húsgögn frá heimsþekktu
fyrirtækí á frábæru verði!
Kirsuber
Hlynur
Beyki
Tekk
Palesander
iSJh
usgogn
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Sími 581-2275 ■ 568-5375 ■ Fax 568-5275