Morgunblaðið - 21.09.2000, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐífí
MINNINGAR
FIMMTUDAGUK 21. SEPTEMBER 2000 4 i
........t
unni, hvað þú værir samviskusam-
ur og umfram allt heiðarlegur
ungur maður. Við vorum hreykin
af þér þegar þú kláraðir fasteigna-
námið samhliða álagsvinnu á
auglýsingadeildinni í desember sl.
Eg man eitt kvöldið þegar ég
kom niður á Morgunblað, þú varst
á kvöldvakt og við lentum á spjalli.
Þú varst svo ánægður að segja
mér frá íbúðinni sem þið Helga
voruð að kaupa og hvað þið ætluð-
uð að gera áður en þið flyttuð inn.
Þú gerðir grín að sjálfum þér, að
þú yrðir ekki lengi að flytja, þvi þú
ættir nú bara rúmið þitt. En það
sem ég skynjaði eftir spjallið var
hvað þú varst ánægður með hana
Helgu.
Takk fyrir að hafa verið svara-
maður hjá Matthíasi þegar við
giftum okkur á gamlársdag sl. Þið
voruð glæsilegir bræðurnir.
Elsku Helga, elsku Sigrún,
Björn, Oddgeir, Matthías, Birna,
Hildur og fjölskyldur, megi góður
guð veita okkur styrk til að takast
á við þessa miklu sorg.
Anna Elínborg.
Elsku Stjáni minn, ég man þeg-
ar ég sá þig fyrst, þú varst tíu ára,
ég sá þig tilsýndar þar sem þú
komst til að tala við Ogga stóra-
bróður þinn. Þú varst með eld-
rauðar eplakinnar eftir að hafa
leikið þér í snjónum. Eftir að hafa
horft smástund á þig færðist yfir
mig bros, þú varst svo sætur.
Seinna þegar ég og Oggi byrjuðum
að búa í efra-Breiðholti lá leið þín
til okkar. Þú komst oft eftir skól-
ann og settist niður með litlu
frændsystkinunum þínum, svo ró-
legur og blíður.
Það er eins og gerst hafi í gær
allar minningarnar um þig.
En svo fengum við frétt um and-
lát þitt, við erum harmi slegin.
Hvernig gat þetta gerst, þar sem
framtíðin var þín, svona ungur og
hraustur. Þetta er svo óréttlátt.
Spurningarnar hrannast upp.
Elsku Stjáni, ég vil trúa því að
Guð ætli þér stærra hlutverk ann-
ars staðar.
Því þeir sem guðirnir elska
deyja ungir.
Ég er þakklát forsjóninni fyrir
góðan dreng sem færði öllum bros
og hlýju.
Guð geymi þig Kristján.
Elsku Helga, Sigrún, Björn,
Soffía, Jón, systkini, ættingjar og
vinir, við sendum ykkur innilegar
samúðarkveðjur.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börn þín svo blunda rótt.
(M. Joch.)
Rósa Ingibjörg Jónsdóttir og
fjölskylda.
Það er erfitt að sætta sig við að
vinur okkar og fyrrverandi sam-
starfsfélagi skuli vera fallinn frá
langt um aldur fram. Kristján var
góður félagi og áttum við margar
góðar stundir saman, bæði í vinnu
og utan hennar. Samstarfi okkar
lauk í byrjun júlí, þegar Kristján
hóf störf á fasteignasölu, orðinn
löggiltur fasteignasali. Það nám
hafði hann stundað ötullega með
vinnu og lauk náminu með prýði í
vor. Við vorum svo lánsamar að fá
að hitta Kristján og Helgu við opn-
un fasteignasölunar og áttum þar
skemmtilega samverustund, sem
er okkur mjög dýrmæt núna.
Helgu, ættingjum hans og öllum
þeim sem eiga um sárt að binda
sendum við okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Eftir standa góðar
minningar um góðan vin og þakk-
læti fyrir að hafa fengið að kynn-
ast honum Kristjáni. Guð geymi
þig-
Elín og Helga.
Það var einn góðan haustdag
1978 að ég átti að hefja skóla-
göngu mína. Stóri bróðir minn átti
að fylgja mér upp að skólanum en
skildi mig eftir hjá grindverkinu
rétt hjá skólanum. Þar stóð ég og
grét mikið. Þá kom allt í einu kona
að nafni Sigrún (mamma Krissa)
með jafnaldra minn Kristján. Hún
huggaði mig og fylgdi mér í skól-
ann. Á þessu augnabliki byrjaði
vinátta mín og Krissa eins og ég
hef kallað hann öll okkar ár sem
við áttum saman. Við vorum skóla-
bræður allan grunnskólann, í
Breiðholtsskóla. Okkar vinátta var
mjög góð þessa tvo áratugi sem
við þekktumst, það gekk á með
skini og skúrum. Þú varst sannur
vinur og þér get ég ekki gleymt,
þín minning verður alltaf í mínu
hjarta, kæri vinur. Guð blessi þig.
Þinn vinur að eilífu,
Þorbjörn Unnar Oddsson
(Bjössi).
Kallið er komið,
komin er stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja,
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Elsku Helga okkar, megi allir
sterkir andar hjálpa þér í gegnum
þessa miklu sorg sem var svo
ótímabær. Minningin um Krissa
mun ætíð lifa í huga okkar.
Öllum ættingjum og vinum vott-
um við okkar dýpstu samúð.
Sigrún, Sigurður og Harpa Sif.
varalaust. Óhætt er að segja að
maður lærir að meta lífið að nýjú
og hættir að taka hlutina sem
sjálfsagða þegar svona áfall dynur
yfir, við erum víst ekki svo af guði
gerð að við vitum hvenær kallið
kemur. Fyrstu kynni okkar af
Kristjáni voru er við stunduðum
saman nám við Háskóla íslands til
löggildingar í fasteignasölu. Þá
strax vakti eftirtekt okkar að þar
fór mjög hæglátur en ákveðinn og
góður námsmaður. Kristján var
ekki mikið fyrir að vera áberandi,
heldur ávann hann sér virðingu og
jákvætt álit annarra með ljúf-
mennsku og góðri framkomu.
Hann var með okkur frá stofnun
fyrirtækisins og reyndist mjög
góður og skemmtilegur starfsmað-
ur. Kristján var mikill húmoristi
og mjög gaman að fá að kynnast
honum smám saman og sjá betur
og betur hversu góður drengur
hann var. Því miður, Kristján, átt-
um við ekki því láni að fagna að fá
að njóta samvista við þig eða
starfskrafta þinna nema í stuttan
tíma, en fyrir þann tíma viljum við
þakka þér og óhætt er að segja að
við erum ríkari eftir í skugga frá-
falls þíns.
• Unnustu, foreldrum, systkinum
og öðrum aðstandendum viljum við
votta okkar dýpstu samúð á þess-
um erfiðu tímum og biðjum guð að
geyma góðan dreng.
Eigendur og starfsfólk fast-
eignasölunnar fasteign.is.
Kveðja til vinar.
Ef þú kæri vinur værir blóm
á engi eitt af þúsundum fallegra
blómstrandi blóma þá myndi ég velja þig.
Það var haustið 1998 að Kristján
hóf störf á auglýsingadeild Morg-
unblaðsins. Hann varð fljótt einn
af hópnum, duglegur samstarfsfé-
lagi sem gott var að vinna með og
spjalla við. Hann var alltaf tilbúinn
til að aðstoða, jákvæður og þægi-
legur í öllu samstarfi, traustur fyr-
ir með sína djúpu rödd. Kristján
var metnaðarfullur og það virtist
ekki vefjast fyrir honum að ljúka
kröfuhörðu námi með vinnunni, og
fyrr en varði hafði hann lokið lög-
gildingarprófinu. Við kvöddum
hann í sumar með söknuði þegar
hann færði sig yfir á nýjan vinnu-
stað en glöddumst þó yfir því að
geta haldið áfram sambandi og
heyrt í honum reglulega í gegnum
nýja starfið hans. Það var dýr-
mætt að fá að gleðjast með honum
og nýjum starfsfélögum í opnunar-
hófi fasteignasölunnar, og þarna
sáum við ungan mann sem fram-
tíðin virtist brosa við og allir
möguleikar standa opnir.
Fátt er eins þungbært og þegar
ungt fólk í blóma lífsins fellur frá,
og missir fjölskyldu Kristjáns og
unnustu hans er mikill. Við viljum
færa þeim okkar innilegustu sam-
úðaróskir. Minningin lifir um góð-
an dreng.
Starfsfélagar á auglýsinga-
deild Morgunblaðsins.
Góður drengur er fallinn frá.
Það dró skyndilega fyrir sólu þeg-
ar þær fregnir bárust okkur að þú
værir kominn til framtíðarheim-
kynna, svona ungur, svona fyrir-
Ef þú kæri vinur værir málverk
sem prýddi vegg í stóru listasafni
þá myndi ég velja þig til að prýða heimili
mitt.
Ef þú kæri vinur værir rifierk eitt
af þúsundum ritverka í hillu í verslun
þá myndi ég veþa þig til að lesa og vera
á besta
stað í bókahillunni minni.
Ég k\'eð þig með trega og tárum
kæri vinur og þú veist að
minning þín mun ætíð lifa í
huga mér og hjarta.
Guð blessi minningu þína.
Rebekka Símonardóttir.
GARÐH EIMAR
BLÓMABÚO STtKKJARBAKKA 6
^ SÍMI 540 3320 ^
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is |
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
. , ^
„,.-'y sólarhringinn.
Wmm: t *
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
/Uga\cV’
ÚTFARARSTOFA
KIRKIUGARÐANNA EHF.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS BAKKMANN ANDRÉSSON
frá Drangsnesi,
Suðurgötu 121,
Akranesi,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 19. septem-
ber.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sófus Magnússon, Andrés Magnússon,
tengdabörn, barnabörn
og langafabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
systir,
SIGRÍÐUR ÁGÚSTSDÓTTIR
frá Baldurshaga,
Vestmannaeyjum,
Hjálmholti 3,
Reykjavík,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn
17. september, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstu-
daginn 22. september kl. 13.30.
Ólöf Erla Óladóttir, Ari Bergmann Einarsson,
Sigrún Fríða Óladóttir, Ævar Guðmundsson,
Einar Baldvin Arason, Sigríður Sunna Aradóttir,
Óli Vernharður Ævarsson, Þórunn Ævarsdóttir,
Guðrún Ágústsdóttir, Lóa Ágústsdóttir.
+
Hjartkær unnusti minn, sonur okkar, bróðir,
mágur, frændi og tengdasonur,
KRISTJÁN BJÖRNSSON
löggiltur fasteignasali,
Langholtsvegi 186,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag,
fimmtudaginn 21. september, kl. 13.30.
Helga Berglind Valgeirsdóttir,
Sigrún Oddgeirsdóttir, Björn B. Kristjánsson,
Oddgeir Björnsson, Rósa I. Jónsdóttir,
Matthías Björnsson, Anna E. Gunnarsdóttir,
Birna Rún Björnsdóttir,
Hildur Rún Björnsdóttir, Hallur G. Hilmarsson,
systkinabörn,
Soffía R. Ragnarsdóttir,
Valgeir Ingi Ólafsson, Kristín Anný Jónsdóttir,
Jón Ómar Valgeirsson.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og systir,
INGIBJÖRG HJARTARDÓTTIR,
Blesugróf 6,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 22. september kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja
minnast hennar, er bent á MS-félagið.
Björn Jóhannsson,
Anna Hjördís, Kyle Kledis,
Ingunn Hafdís, Kári H. Einarsson,
Birna Dís, Steingrímur Ó. Einarsson,
Ingi Björn, Ari Bragi og Einar Húnfjörð,
Unnur Hjartardóttir, Steindór Hjörleifsson,
Hjörtur Örn Hjartarson, Hrefna Hrólfsdóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
MARGRÉT ÁGÚSTA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Mosabarði 2,
Hafnarfirði,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut fimmtudaginn 14. september,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstu-
daginn 22. september kl. 15.00.
Júiíus Hinriksson,
Sigrún Júlíusdóttir, Guðmundur Kort,
Katrín Gerður Júlíusdóttir, Gylfi Norðdahl,
Valgerður Júlíusdóttir, Jens Guðbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
...................—... i i