Morgunblaðið - 21.09.2000, Side 56

Morgunblaðið - 21.09.2000, Side 56
56 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Pegar sorgin knýr dyra LÍFIÐ er ferðalag um augnablik já- kvæðrar upplifunar og sársaukafullrar reynslu sorgarinnar. Augnablik, sem setja mark sitt á líf einstakl- ingsins, inntak þess og þroska. Að vera manneskja er að finna til. Sorgin hlífir engum og birtist að óvörum. Hún tekur á sig ýmsar myndir, hefur djúpstæð áhrif á hugsun og hegðun og tengist því fyrst og fremst að vonir og væntingar hafa brugð- ist og framtíðaráform raskast. Sorg er hluti heilbrigðs lífs og henni þarf að finna farveg, sem mið- ast að því að læra að lifa með þeim missi sem á okkur er lagður og lifa í sátt við það ör sem myndast við miss- inn. Að finna þennan farveg getur reynst flókid og tekur langan tíma. Næturnar eru langar og dagarnir stuttir ef þá dagar yfirhöfuð. lyrgjandinn lifir í djúpum dal myrk- irs, sársauka og vanlíðanar, sem á ér enga samsvörun við neitt sem ann hefur upplifað áður. Atorka og lífsgleði eru víðsfjarri, depurð og vonleysi grípur um sig og starfshæfni skerðist. Með þessa reynslu í farteskinu var lagður grunnur að stofnun Nýirar dögunar, samtaka um sorg og sorg- arviðbrögð, 1987. Kraftmikill og samstilltur hópur sjálfboðaliða reið á vaðið og sýndi fram á brýna þörf á slíkum vettvangi fyrir syrgjendur. Vettvangi, þar sem þeir gátu komið saman og með sameiginlegum stuðn- ingi oi'ðið að liði við úr- vinnslu eiTiðra sorgar- tilfinninga. Farvegur var fundinn í formi sam- veru og fræðslu um mál, sem lítill gaumur hafði verið gefinn að. Fram til þessa höfðu syrgjendur, á Islandi, átt í fá hús að venda og kynslóð fram af kynslóð ríkti það viðhorf að sorg snerti einungis þá sem fyrir henni urðu. Það vill svo til að sorg snertir' alla og mætir flestum okkar á lífsleiðinni. Tjáning tilfinninga og samskipti við þá sem andstreymið hafa reynt, ásamt markvissri faglegri fræðslu, tengd sorg og sorgarviðbrögðum, skiptir höfuðmáli í viðleitni til sjálfshjálpar, eftir átakalegan missi. Með því öðlast Sorg Við viljum að samtökin, segir Kristín Eyjólfsdóttir, séu vettvangur nýrrar dög- unar fyrir syrgjendur. syrgjandinn frekari skilning á sorg- arferlinu og einkennum þess og verð- ur hæfari til að takast á við lífið, án þeirra sem farnir eru. Með þetta að leiðarljósi hefur Ný dögun byggt upp starfsemi sína og stuðningsþjónustu og sett sér markmið sem miða að því að styðja syrgjendur, á leið sinni til sjálfshjálp- Kristín Eyjólfsdóttir - Gœðavara Gjafavara — maiar- og kaflistell. Allir verðflokkar. + Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. 3 VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 552 4244. Full búð af nýjum bútasaumsefnum ! M.a. jólaefhi, handlituð efni, Thimbleberries- efni og efnifrá Debbie Mumm. VIRKA Mörkin 3, sími 568 7477. Opið Mánud.-föstud. kl. 10-18, laugard. frá 1. sept.-31. maí frá kl. 10-14. ar. Starfsemi samtakanna lýtur fyrst og fremst að fræðslu, stuðningi, ráð- gjöf og upplýsingaþjónustu og og eru þau öllum opin. Ný dögun hefur, um árabil, staðið fyrir reglubundnum fræðslufundum yfir vetrartímann og fengið til liðs við sig fagfólk, sem miðlað hefur af þekk- ingu sinni og persónulegri reynslu. Félagið hefur nú verið starfrækt í 13 ár og hefur fjárhagslegur grund- völlur, starfsemi og rekstur byggst á velvilja styrktaraðila og öflugu starfi sjálfboðaliða. Það er löngu orðið ljóst að brýn þörf er á samtökum á borð við Nýja dögun og mikilvægt að fjárhagslegar stoðir félagsins verði styrktar enn frekar. Þakka ber stjórnvöldum, sveitar- félögum, félagsmönnum, sem og öðr- um, er veitt hafa félaginu fjárhags- legan og siðferðilegan stuðning í gegnum árin. Þrátt fyrir þann velvilja sem Nýrri dögun hefur verið sýndur, með fjár- framlögum, er enn langt í land að samtökin hafi fjárhagslegt bolmagn til að starfa, að fullu, í þeim anda sem þau voru stofnuð til. Til þess að það geti orðið þarf fé- lagið áfram að geta leitað til hinna ýmsu styrktaraðila með von um já- kvæð viðbrögð og skilning. Ljóst er að auka þarf fjárframlög til mannúðarmála á Islandi og koma á öflugu samstarfi íslenskra fyrir- tækja og mannúðarsamtaka, til hags- bóta fyrir báða aðila. Almenn siðferðileg þátttaka og sameiginleg ábyrgð á velferð ein- staklinga þessa lands hlýtur að vera mál okkar allra. Með auknum fjárhagslegum stuðningi er Ný dögun betur í stakk búin til þess að takast á við markmið sín og þróa áfram og byggja upp starfsemi sína. Það er ósk okkar, sem störfum á vettvangi sorgarinnar, að mögulegt verði að þróa áfram þýðingarmikið starf Nýrrar dögunar, gera það sýni- legra og aðgengilegra þeim sem það sækja og í samræmi við þai-fir syrgj- enda á Islandi. Við viljum að samtök- in séu vettvangur nýrrar dögunar fyrir syrgjendur. Höfundur er þroskaþjálf! og starfsmaður Nýrrar dögunar. Vagnhöfða 17 ■ 112 Reykjavík 3 Sími: 587 2222 ■i Fax: 587 2223 Gerið verðsamanburð Tölvupústur: sala@hellusteypa.is Fjölskyldan, félagsráðgjöf og krabbamein DÆMI um við- fangsefni félagsráð- gjafa á krabbameins- lækningadeild: Fertugur kvæntur maður sem á þrjá drengi á aldrinum 10, 13, og 15 ára greinist með krabbamein. Þessi maður rekur íyr- irtæki með konu sinni. Reksturinn gengur þokkalega og þau lifa góðu lífi ef ekkert óvænt gerist. Þau eiga nýtt hús og jeppa og börnin þeirra eru í tónlistarnámi og íþróttum. Þessi hjón hafa ekki lagt til hliðar í varasjóð, þau hafa fremur kosið að ferðast og lifa lífinu, eins og þau segja sjálf. Það er reiðarslag að greinast með ki-abbamein og það verða miklar breytingar í lífi fjölskyldunnar. Eig- inkonan ber nú rneiri ábyrgð. Hún er ekki aðeins að hjálpa manni sín- um við að takast á við sjúkdóm og erfiða krabbameinsmeðferð, hún gerir einnig hluti ein sem þau hjón deildu áður, bæði í fyrirtækinu og á heimilinu. Þá hefur hún áhyggjur af líðan barnanna og af fjárhagnum en vill hlífa manninum sínum við því sem og öðru. Við þetta bætast stöð- ugar hringingar og spurningar frá áhyggjufullum vinum og ættingjum. Hjá unglingunum í fjölskyldunni eru veikindi og dauði fjarlæg hug- tök. Mörgum kann að finnast þeir ósnortnir af veikindunum en líklega hugsa þeir því meira. Yngsti dreng- urinn virðist skyndilega háðari for- eldrum sínum en áður og vill sofa í hjónarúminu þeirra. Af og til fær hann heiftarleg reiðiköst. Heimilisfaðirinn hefur miklar áhyggjur af fjölskyldu sinni og af- komunni því hann veit að fjarvera hans frá vinnu getur kostað hann húsið og fyrirtækið. Hann hefur ekki greitt í sjúkrasjóð eða lífeyris- sjóð og hann er illa tryggður. Aldrei datt honum í hug að hann gæti orð- ið alvarlega veikur, það er eitthvað sem hendir aðra. Ovissan hræðir hann en hann veit ekki hvaða spurninga hann getur spurt. Hann reynir að að fela óttann og bera sig vel. Á sjúkrahúsinu hittir hann ótal heilbrigðisstarfsmenn sem veita mikið af upplýsingum sem hann gleymir jafnóðum. Hann finnur fyr- ir reiði og vill skamma einhvern. Framkoma vina og kunningja breytist. Sumir verða vandræðaleg- ir og segja eitthvað óviðeigandi og skrýtið. Þetta er ekki illa meint, þetta er óöryggi. Margir verða nán- ari en áður, aðrir hverfa alveg. Þessi fjölskylda hefur lent í áf- allakreppu sem flestir kynnast fyrr eða síðar á lífsleiðinni. þær að- stæður skapast og sú tilfinning birtist að skyndilega er eins og fótunum sé kippt und- an okkur og tilverunni. Við getum ekki lengur treyst á þær forsendur sem við höfðum og ekkert verður eins og það var áður. Aðstoð félags- ráðgjafa Meginhugsunin í starfi félagsráðgjafa er virðing fyrfr manngildi og sérstöðu hvers einstaklings með faglega heildarsýn að leiðarljósi. Þetta felur í sér að alltaf beri að skilja manneskjuna í sínu samhengi og í samspili við umhverfið og að- Ráðgjöf Hlutverk félagsráðgjafa á krabbameinslækn- ingadeild er að styðja þann veika og ástvini hans, segir Anna Rósa Jóhannesdóttir, við að takast á við þær breytingar og erfíðleika sem illkynja sjúkdómur leiðir af sér. stoða út frá þeim aðstæðum sem einstaklingurinn býr við. Á sjúkra- húsum er þessi þjónusta kölluð sál- félagsleg þjónusta þar sem hugtök- in félagsleg ráðgjöf og tilfinningalegur stuðningur fara saman. Á þann hátt er reynt að taka tillit til þeirra þátta sem hafa áhrif á líf þess veika og ástvina hans. Félagsleg ráðgjöf er að upplýsa einstaklinga og fjölskyldur um fé- lagsleg réttindi og samræma þá þjónustu sem fjölskyldan á rétt á. Það er dýrt að veikjast m.a. vegna læknis- og lyfjakostnaðar og vinnu- taps. Félagsleg ráðgjöf í dæminu hér að framan er að kynna sér rétt- indi fjölskyldunnar vegna veikinda og tekjumissis og aðstoða hana við að nýta sér þau bjargráð sem finn- ast. T.d. geta þetta verið Tryggingastofnun ríkisins, sjúkra- og lífeyrissjóðir, félagsþjónusta, skólar barnanna og skattayfirvöld. Anna Rós Jóhannesdóttir VILT ÞÚ BESTU FRAMKÖLLUNINA? Fujifilm Ijósmyndapappír endist 334% lengur en sá næst besti* jik FUJI FRAMKÖLLUN Ljósmyndavörur, Skipholti 31 • Úlfarsfell, Hagamel 67 • Barna og fjölskylduljósmyndir, Núpalind 1 • Ljósmyndastofa Grafarvogs • Framköllun Mosfellsbæjar • Framköllunarþjónustan, Borgarnesi U UM Í.AND ALLT Ljósmyndavörur, Akureyri • Myndsmiðjan, Egilsstöðum • Ljósey, Höfn • Filmverk, Selfossi • Fótó, Vestmannaeyjum • Geirseyrarbúðin, Patreksfirði • Myndastofan, Sauðárkróki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.