Morgunblaðið - 21.09.2000, Side 64
>4 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerd
Blómkálsréttir
Grænmetið í garði Kristínar Gestsdótt-
ur hefur sprottið svo vel í sumar að hún
segist vera græn í geffli.
EINMUNA blíða hefur verið all-
an fyrri hluta septembermánað-
ar, þótt kuldaboli sé eitthvað að
baula núna. Hann bítur ekki fast
hér sunnanlands, þótt blómkálið
kveinki sér aðeins, en sprotakál-
ið (brokkálið) sýnir nýja sprota
nær daglega og hvítkálið gefur
honum langt nef og heldur
áfram sinni sprettu. Helst er það
kartöflugrasið sem lætur á sjá
enda kominn tími á það. Nú loks
sjást haustlitir á trjánum, öspin
og ýmsar víðitegundir hafa
klæðst gulri kápu fyrir nokkru
og nokkuð er síðan lyngið
skrýddist sínum fögru haustlit-
um og mátti finna það á berjum
að frostið hafði aðeins kysst þau.
Mófuglarnir hafa flutt sig um
set, sumir nær ströndinni, aðrir
hafa nú þegar flogið yfir hafið.
Tjaldurinn hópar sig og rauð-
brystingur er í breiðum við
Skógtjörnina. Margæsin er kom-
in frá Norður-Kanada á sinn
gamla stað í marhálminn, en hún
á aðeins stutta ferð eftir til
Skotlands.
Blómkálsbakstur
með hakki
í. þennan rétt er best að nota
gott lambahakk, en stundum er
erfitt að fá það, einnig má nota
lambahakk og svínahakk til
helminga. Svo má nota bara
svínahakk, en nautahakk hentar
ekki.
_______500 g lambahakk______
______1 Vi isk. salt ó hakkið_
_________Vá isk. pipar______
_______1 Vi tsk. oregano______
500 g blómkál (án leggja)
__________21/2 dl vatn________
Vi tsk. salt á blómkálið
30 g smjðr (ekki smjörlíki)
% dl hveiti
2 dl blómkálssoð
3 dl mjólk eða 3 dl rjómobland
Vá tsk. múskat
____________2egg____________
__________Va tsk, salt________
2 msk, rifinn Parmigianoostur
100 g rifinn Óðalsostur
Vi dl brauðrasp
1. Takið blómkálið í litlar
hríslur og sjóðið í 2% dl af vatni
og salti í 3 mínútur, hellið soðinu
af og geymið. Saxið síðan blóm-
kálið örh'tið.
2. Steikið hakkið. Best er að
gera það í tvennu lagi, annars
verður of mikil kæling á pönn-
unni og hakkið brúnast illa.
Óþarft er að nota olíu á pönn-
una, hakkið er alltaf nógu feitt.
Hafið góðan hita. Stráið salti,
pipar og oregano út í.
3. Búið til þykkan uppbakaðan
jafning. Setjið smjör í lítinn pott,
setjið hveitið út í og þynnið með
2 dl af blómkálssoði og mjólk
eða rjómablandi. Hrærið eggin
út í og síðan salt, múskat og rif-
inn Parmigiano- og Óðalsost.
4. Smyrjið eldfasta skál, stráið
raspi inn í hana. Setjið síðan
þunnt lag af jafningi á botninn,
þá hakk og svo blómkál, síðan
aftur jafning, hakk og blómkál
og loks jafning efst. Stráið raspi
yfir.
5. Hitið bakaraofn í 200°C,
blástursofn í 190°C. Bakið í 30
mínútur.
Fljótlequr blóm-
kóls/nskréttur
_________500 g ýsuflak_______
__________1 Vi tsk, sali_____
1 msk. gott, milt sinnep
__________Vi dl rasp_________
________400 g blómkól________
________'A dl matarolíg______
______smjör (ekki smjðrlíki)_
1. Roðdragið ýsuflakið og
skerið beingarðinn úr. Stráið á
það salti og smyrjið með sinnepi.
Stráið raspi á báðar hliðar flaks-
ins.
2. Takið blómkálið í litlar
hríslur og saxið síðan örlítið.
Notið ekki leggi.
3. Notið stóra pönnu, hafið
hægan hita. Setjið olíu á hana
alla, setjið smjörið öðrum megin
á hana og setjið blómkálið þar
ofan á. Setjið fiskinn hinum
megin. Setjið lok á pönnuna og
veltið blómkálinu við öðru
hverju. Snúið fiskinum við eftir
4-5 mínútur. Hafið þetta á pönn-
unni í 10 mínútur en gætið þess
að hitinn sé ekki mikill.
ÍDAG
\i;iVAIvt\lll
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Einar Kristinn og er 6
ára. Ef einhver veit um
hjólið mitt vinsamlegast
hafið samband í síma 898-
3025.
Gullarmband
tapaðist í Glæsibæ
GULLARMBAND tapað-
ist lO.september sl. í Ás-
garði í Glæsibæ sem er fé-
lagsmiðstöð aldraðra.
Skilvis finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 553-2705.
Ósaumuð stramma-
mynd óskast
ER einhver sem á ósaum-
aða strammamynd af Hól-
um í Hjaltadal? Vinsam-
legast hafið samband í
síma 893-2167.
Veit einhver um
filmurnar?
MÁNAÐAMÓTIN maí-
júní voru tvær filmur sett-
ar í póst í Hveragerði.
Filmumar voru af tveimur
fermingarveislum, annarri
16.apríl og hinni 6. maí.
Filmurnar hafa ekki kom-
ið í leitirnar þrátt fyrir ít-
rekaða leit. Ef einhver
skildi vita um afdrif filmn-
anna vinsamlegast hafið
samband við Guðrúnu í
síma 483-4325.
Dýrahald
Tveir kettlingar
fást gefíns
TVEIR níu vikna kettling-
ar, fress, fást gefins á góð
heimili. Þeir eru kassa-
vanir og einstaklega ljúfir.
Upplýsingar í síma 564-
0445.
Páfagaukur
í óskilum
LÍTILL gulur og grænn
páfagaukur fannst í mið-
bæ Kópavogs fyrir rúmri
viku. Við höfum ekki rek-
ist á tilkynningu um hvarf
hans en einhver hlýtur að
sakna hans. Eigandi fugls-
ins hringi í síma 554-0916
eða 554-0915.
Grillað í
Þykkvabæ
FIMMTUDAGINN 17. ágúst sl. var hald-
inn sameiginlegur útigrilldagur við götuna
Þykkvabæ í Árbæ. Þetta er þriðja sumarið
í röð sem slíkur dagur er haldinn og nýtur
hann sívaxandi vinsælda enda fjölmenna
íbúamir ailtaf þegar slíkur dagur er. Það
er safnast saman á róiuvelli við götuna
með grillin og garðstóiana. Þarna er ekk-
ert kynslóðabil og allir skemmta sér hið
besta. Börnin una sér við leiktæki og hver
og einn finnur eitthvað við sitt hæfi enda
leikur veðrið jafnan við íbúana. Það er
mikil samkennd og samstaða meðal íbúa
götunnar en samt eykur það kynnin og
styrkir tengslin að halda hátíð sem þessa.
Fólkið verður samstillt og meðvitað við
það að kynnast störfum og áhugamálum
hvert annars. Það var griilað og borðað,
farið í leiki, flutt ljóð og sungið. Ljóð dags-
ins vakti mikla hrifningu eins og áður og
var tekið hraustlega undir það.
Ljóð dagsins:
Nú Þykkvabæjar hátíð haldin er
þvlhémakoma saman
ætlumvér.
Að grilla hér og grínast megum enn
það gleðjast ailir Þykkva bæjarmenn.
Á róluvelli reit ég góðan vel
þar rúmgott er og hentugt, að ég tei.
Og vegasaltið varla langt er frá
þarvel sér una bömin stór og smá.
í klifurgrind og kassabfl ég fer
og kannski mætti líka renna sér.
En braut er þröng og breiður rass hjá mér
svo botninn situr fastur, því er ver.
í trjánum svifa fuglar grein af grein
og gömul þrastamamma ei er sein.
Hér ómar loftið allt af tæram söng
því undir taka fuglar dægrin löng.
Ó.R.
Tapad/fundió
Dökkbrúnt
kvenveski tapaðist
DÖKKBRÚNT kven-
veski, sem er eins og bak-
poki í laginu, tapaðist
föstudaginn 15.september
sl. ef til vill við Skauta^
höllina í Reykjavík. I
veskinu voru öll skilríki,
pappírar og óframkölluð
filma sem er eigandanum
afar dýrmæt. Vinsamleg-
ast hafið samband í síma
562-1752 eða 899-3706.
Pro-Style hjól
hvarf frá Unufelli
ÉG fékk grænt Pro-Style
hjól í sumargjöf frá for-
eldrum mínum í sumar.
Hjólið hvarf frá húsinu
mínu að Unufeili 24. maí
sl. um kvöldið. Ég heiti
Víkverji skrifar...
AHUGAMENN um fótbolta
geta ekki látið framhjá sér
fara heimasíðu knattspyrnufélags-
ins Halifax Town, en hún er í um-
sjón útgefanda vikublaðsins
Skessuhorns, sem er gefið út á
Vesturlandi í rafrænu og prentuðu
formi. Fyrir þá sem ekki vita er
Halifax Town knattspyrnulið í 3.
deild á Bretlandi. Á síðunni er ítar-
lega greint frá gengi liðsins, en það
hefur ekki verið gott því Halifax-
hreppur, eins og liðið er kallað á
heimasíðunni, vermir nú botnsæti
deildarinnar. Liðinu hefur aðeins
tekist að vinna einn leik, á móti liði
„hinna spræku Laugamanna í Sæl-
ingsdal (Leyton Orient)“ eins og
komist er að orði. Leikurinn endaði
2-0, en það voru „Geirmundur
Hermannsson (Gerry Harrisson)
og Stefán Vagnsson (Steve Kerrig-
an)“ sem skoruðu.
Það kemur því kannski ekki al-
veg á óvart að búið er að reka
þjálfarann. Frá þessu er greint á
heimasíðunni með þessum orðum:
„Þau stórtíðindi gerðust í ensku
knattspyrnunni á mánudagskvöld
að knattspyrnustjóri hins ástsæla
en ógæfusama smáliðs Halifax
Town, Markús Liljuson (Mark Lill-
is) var brottrækur ger úr Kalda-
dalsskíri (Chaterdaleshire). Upp-
sögn Markúsar kemur í kjölfar
hörmulegrar byrjunar liðsins í
ensku 3. deildinni í ár en liðið hef-
ur aðeins unnið einn leik og var
það óviljaverk. Ekki hefur verið til-
kynnt um eftirmann Liljusonar en
ýmis nöfn, öll óþekkt með öllu,
hafa verið nefnd.“
Stjórn Halifax-hrepps fékk nóg
og rak Markús eftir að liðið tapaði
fyrír „Mannamótsflöt (Mansfield)“.
Jafnframt kemur fram á heimasíð-
unni að leikmennirnir Pétur Bryti
(Peter Butler) og Þórgnýr Kyrri
(Tony Parks) muni stýra liðinu
meðan leitað er að nýjum knatt-
spyrnustjóra.
Hægt er að kynnast gengi
Halifax-hrepps með því að fara inn
heimasíðuna www.skessuhorn.is.
XXX
ISÍÐUSTU viku voru gerðar op-
inberar skýrslur sem hafa að
geyma samanburðartölur um sam-
keppnishæfni landa og um spill-
ingu í nokkrum löndum heims.
Sjálfsagt eru þessar skýrslur gagn-
legar, en Víkverji telur þó að var-
ast beri að taka þær sem einhvern
stórasannleik. Víkverji var t.d. að
blaða í skýrslu um samkeppnis-
hæfni íslands. Þar er m.a. getið
um að einn af veikleikum íslenska
efnahagskerfisins sé járnbrauta-
samgöngur. Flestir myndu álykta
að í skýrslunni kæmi annað hvort
fram að hér á landi væru engar
járnbrautir eða þá að ísland væri
þar í neðsta sæti. Hvorugt er hins
vegar raunin. ísland er í 50. sæti af
59 samanburðarlöndum á lista þar
sem fjallað er um gæði járnbraut-
arsamgangna og í 56. sæti á lista
þar sem löndunum er raða upp eft-
ir lengd járnbrauta.
í annarri skýrslu var gerður
samanburður á spillingu í heimin-
um. Norðurlöndin eru þar efst á
blaði yfir lönd með minnsta spill-
ingu. í sjónvarpsfrétt þar sem
fjallað var um þessa skýrslu var
hins vegar dregin sú ályktun að
ísland og Noregur væru spilltu
löndin á Norðurlöndunum þó að
þau væru við toppinn á listanum.
XXX
VÍKVERJI getur ekki annað en
undrast viðbrögð við útboði á
rekstri Vestmannaeyjaferjunnar
Herjólfs. Umræða um tilboð Sam-
skipa hefur verið frekar á neikvæð-
um nótum. Næstum enginn hefur
hins vegar orðið til þess að fagna
því að ríkið skuli hafa fengið hag-
stætt tilboð í reksturinn. Víkverji,
sem er einn af skattborgurum
þessa lands, getur a.m.k. ekki látið
hjá líða að fagna því að Samskip
skuli hafa sent inn hagstætt tilboð
í reksturinn og að von sé til þess
að ríkissjóði takist að spara 133
milljónir króna á þremur árum.