Morgunblaðið - 08.10.2000, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 08.10.2000, Qupperneq 25
.ía%ísjxm í MORGUNBLAÐIÐ Stórfenglegt dekur við bragðlaukana SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2000 B 2fe Búnaðarbanki íslands hf. a la (*i HARALDUR Ingi Haraldsson myndlistarmaður og stangaveiði- maður hefur gefið út athyglisvert blað/bók sem hefur hlotið heitið Lax og silungur - Rit um matar- gerðarlist og veiðigleði. Undirtitill er: Matur - Veiði - Vín - Myndlist. Hér er að finna 90 blaðsíður af efni sem skreytt er yfir 90 mál- verkum og teikningum Haraldar. Öll myndverkin tengjast stanga- veiði. Alls skiptist ritið í 11 kafla. Eft- ir tvo þá fyrstu sem heita Formáli og Fylgt úr hlaði, koma þeir næstu í þessari röð, Eldunaraðferðir, Að- alréttir, 18 bestu uppskriftirnar, Reyking, Laxmenn, Gallerí, Súpur, sósur og ýmsilegt annað, Vín og loks Veiðisaga af Jobba mági. Sum kaflanöfnin útskýra sig sjálf, en önnur ef til vill ekki, t.d. hefur Haraldur fengið 18 þjóð- kunna íslendinga til að miðla bestu uppskrift sinni í kaflanum 18 bestu uppskriftirnar. Þar ægir saman pólitíkusum, skemmtikröft- um og reytingi af fólki úr öðrum starfsgeirum. I kaflanum Reyking er m.a. að finna leiðbeiningar um hvernig menn geti komið á fót sínu eigin reykhúsi. Kaflinn Laxmenn er teiknimyndasaga úr undirdjúp- unum og Gallerí er samsafn mynd- verka sem öll eru stemmningar úr veiði. Allmargar virðast unnar með ljósmyndir að fyrirmyndum. Loks má nefna kaflann Veiðisaga af Jobba mági, en kaflinn hefur und- irskriftina, „Jobbi mágur er mikill veiðimaður, það er ég ekki“. Hressandi tilbreyting I formála ritsins segir Haraldur, að hugmyndin að útgáfunni hafi „ráfað á milli svefns og vöku í huga mér lengi. Fyrst án þess að ég vissi af, síðar alltaf skýrari og nú verður hún að veruleika,“ eins og hann kemst að orði. Hann segir enn fremur: „Framboð á laxfiskum í verslunum hefur verið misgott í gegnum tíðina og einungis feng- sælir veiðimenn haft jafnan að- gang að þeim krásum. Nú er fram- boð hins vegar orðið jafnt og stöðugt og verð hefur farið lækk- andi. Það eru því allar forsendur fyrir því að íslendingar geti stór- aukið neyslu sína á þessum eðal- fiski rétt eins og gerst hefur er- lendis. Rit sem eingöngu fjallar um matargerð á laxi og silungi ætti því að vera nytsamlegt.“ Stórfenglegt dekur Það er til að æra óstöðugan að velja einhverja eina uppskrift til að skreyta þennan pistil með, en við gerum það samt og það er Öss- ur Skarphépinsson alþingismaður sem hefur orðið: „Á Nesjavöllum hafa alltaf verið miklir veiðimenn. Ómar Gaukur Jónsson er einn þriggja veiði- bræðra þaðan. Hann færir mér stundum bunka af sílspikaðri kuð- ungableikju sem tekin er í net rétt undan Nesjahrauninu. En það kemur l'yrir að stöku 4-6 punda urriði, jafnvel stærri, slæðist með í Haraldur Ingi Haraldsson netin og þá bregst ekki að Ómar færir mér þá af alkunnu örlæti fjölskyldunnar á Nesjavöllum. Samkvæmt hefð Þingvellinga reykti ég þá yfii-leitt, eins og oftast er gert við stórlaxa. En urriðinn er öðruvísi í holdinu en laxinn, miklu mýkri og vöðvatrefjarnar minni. Ég fór að prófa að steikja þá, grilla eða baka í ofni, og datt þá niður á að nota þessa aðferð, sem yfirleitt hefur í ýmsum til- brigðum verið beitt á lax. Niðurstaðan er stórfellt dekur við bragðlaukana, þar sem sterkt bragð ostsins tekst á við mýkt urrið- ans sem er svo léttstíg- ur við bragðkirtlana að minnir á fima ballerínu. Sannarlega einstakur réttur." Síðan kemur upp- skriftin, sem heitir „Urriðaflök með gráð- osti.“ Uppskrift: Urriða- flök, gráðostur, smjör, salt og pipar. Aðferð: Silungsflök (með roði) eru sett í smurt eldfast form og skorin í u.þ.b. 8 cm sneiðar, þó ekki í gegn um roðið. I miðju hverr- ar sneiðar er skorin rifa sem er fyllt með gráð- osti. Flökin eru krydd- uð með salti og pipar og pensluð með smjöri. Þau eru síðan bökuð við u.þ.b. 180 gráður í 15 til 20 mínútur, eftir stærð flakanna. Gott er að bera fram með þessum rétti hrásalat, soðnar kartöflur og brætt smjör. mánudaginn 16. október Boðað ertil hluthafafundar Búnaðarbanka (slands hf. mánudaginn 16. október n.k. kl. 16:00. Efni fundarins ertillaga um hlutafjáraukningu til að fjármagna stofnun Bunadarbanki International S.A. í Lúxemborg. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Búnaðarbankans að Hafnarstræti 5, 4. hæð, Reykjavík. Dagskrá: LTillaga um að hlutafé í Búnaðarbanka (slands hf. verði hækkað um kr. 250.000.000,- með útgáfu nýrra hluta, og að bankaráð hafi heimild til að ákveða síðar gengi og framkvæmd aukningar að öðru leyti. Hlutafé bankans fer því úr kr. 4.100.000.000,- í kr. 4.350.000.000,-. Ennfremur er lagttil, vegna markmiðs um dreifða eignaraðild, að hluthafar í bankanum víki frá rétti sínum, samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 2/1995, til að skrá sig fyrir hinum nýju hlutum. 2.Önnur mál. Tiilögur frá hluthöfum sem bera á fram á fundinum skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti, eigi síðar en sjö dögum fyrir hluthafafund. ® BÚNAÐARBANKIÍSLANDS HF 1 i Fasteignir á Netinu v^mbl.is ALLTA.f= G/TTH\SAiE> NVTT ERT Þ Ú KONA Á BESTA. ALDRI? r* ’j .r-yjr.>*'§§ ' - *r .. x Kannast þú vid einhver eftirfarandi einkenna ? Ef þú kannast við einn eða fleiri ofangreindra kvilla þá getur Menopace öfluga vítamín- og steinefnablandan e.t.v. hjátpað þér Ef þú kaupir 90 daga skammt færðu 30 daga pakkningu með O*0A vitAMtnís cr VITABIOTICS Þar sem náttúran og vísindm vinna saman aðeins í lyfjaverslunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.