Morgunblaðið - 10.11.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
259. TBL. 88. ARG.
FOSTUDAGUR 10. NOVEMBER 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Embættismenn segja að endanleg úrslit í Flórída verði vart ljós fyrr en í næstu viku
Yfir 19.000 atkvæði voru lýst ógild
í sýslunni, þar sem kjósendurnir
höfðu merkt við tvo írambjóðendur.
Víst þykir að stór hluti þessara kjós-
enda hafi ætlað að kjósa Gore, en
óvart merkt við Buchanan. Þeir hafi
síðan áttað sig á mistökunum og einn-
ig merkt við Gore. Þar að auki hafa
margir kjósendur komið fram sem
aðeins merktu við einn frambjóðanda
og ætluðu að kjósa Gore, en töldu sig
hafa gert þau mistök að merkja við
Buchanan.
Asakanir hafa einnig komið fram
um að blökkumenn hafi kerfisbundið
verið hindraðir í að njóta atkvæðis-
réttar síns í Flórída, en svartir kjós-
endur styðja almennt demókrata
fremur en repúblikana. Hafa samtök
blökkumanna í Bandaríkjunum hvatt
dómsmálaráðherrann Janet Reno til
að rannsaka málið.
Repúblikanar vísa ásökunum
demókrata á bug
Don Evans, kosningastjóri Bush,
vísaði í gærkvöld ásökunum demó-
krata um kosningamisferli í Palm
Beach-sýslu á bug. „Demókratar eru
að gera of mikið úr þessum atburðum
og afbaka þá, á kostnað lýðræðisins í
landinu," sagði Evans. „Lýðræðisleg-
ir stjórnarhættir krefjast þess að úr-
slit séu ráðin á kjördeginum sjálfum,
þeir gera ekki ráð fyrir að haldið
verði áfram að greiða atkvæði þar til
einhverjum líkar útkoman."
James Baker, fyrrverandi utanrík-
isráðherra og sérlegur fulltrúi Bush
vegna endurtalningarinnai’ í Flórída,
sagði í gær að hann hefði hvorki orðið
var við ásakanir um kosningasvik né
vísbendingar um að þau hefðu verið
framin. Benti hann á að fulltrúar
demókrata hefðu lagt blessun sína yf-
ir uppsetningu kjörseðilsins í Palm
Beach-sýslu fyrir kosningarnar.
Repúblikanar vöktu einnig athygli
á því að fleiri sýslur í Bandaríkjunum
hefðu notað svipaða kjörseðla og þá
sem deilt er um í Palm Beach-sýslu
og þeir íhuga að fara fram á endur-
talningu atkvæða í Wisconsin, Oreg-
on, Iowa og Nýju-Mexíkó og jafnvel í
fleiri ríkjum, þar sem Gore sigraði
mjög naumlega.
Repúblikanar hafa einnig bent á að
í síðustu forsetakosningum, sem
fram fóru árið 1996, hafi 16 þúsund
atkvæði verið ógild í Palm Beach-
sýslu og því sé ekki hægt að halda því
fram að ógild atkvæði séu óvenju
mörg nú.
Carter hvetur til þolinmæði
Jimmy Carter, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, hvatti í gær til þess
að vandlega yrði farið ofan í saumana
á því hvort eitthvað hefði farið úr-
skeiðis í kosningunum í Flórída.
Hann bað jafnframt alla hlutaðeig-
andi um að sýna þolinmæði. Carter,
sem er demókrati, gegndi forsetaem-
bætti frá 1976 til 1980, en á síðari ár-
um hefur hann verið eftirlitsmaður
með kosningum víðs vegar um heim.
A1 Gore fékk um 175.000 fleiri at-
kvæði en George W. Bush á lands-
vísu, en það er hins vegar saman-
lagður fjöldi kjörmanna í sambands-
ríkjunum sem ræður úrslitum, og
þeir 25 kjörmenn sem Flórída ræður
yfir skipta því sköpum.
■ Baráttan um/28
MORGUNBLAÐIÐ 10. NÓVEMBER 2000
690900 090000
Demókratar segja að
„þjóðarvilji“ eigi að ráða
Repúblikanar
íhuga að krefjast
endurtalningar í
nokkrum ríkjum
Reuters
A1 Gore lét óvissuna um kosningaúrslitin ekki hindra sig í að fara út að skokka með dætrum sínum, Kristin og
Karennu, í miðborg Nashville í Tennessee-ríki í gær.
Tallahassec, Washington. AFP, AP.
KJÖRSTJÓRN í Flórída tilkynnti í
gærkvöld að hugsanlegt væri að end-
anleg niðurstaða atkvæðatalningar í
ríkinu yrði ekki Ijós fyrr en í næstu
viku, en úrslit bandarísku forseta-
kosninganna velta á henni. Demó-
kratar hafa farið fram á handtalningu
atkvæða í fjórum sýslum í ríkinu og í
gærkvöld var tilkynnt að ný talning
hæfist á laugardagsmorgun í Palm
Beach-sýslu. Repúblikanar íhuga
einnig að krefjast endurtalningar at-
kvæða í ríkjum þar sem A1 Gore,
frambjóðandi demókrata, sigraði
naumlega og greindi CNN-frétta-
stofan frá því í gærkvöld að endur-
talning væri þegar hafin í Nýju-
Mexíkó. Þá er Ijóst að mál munu
verða höfðuð fyrir dómstólum í Flór-
ída vegna villandi uppsetningar kjör-
seðla í Palm Beach-sýslu, þar sem
talið er að þúsundir kjósenda sem
studdu Gore hafi af misgáningi greitt
Pat Buehanan atkvæði sitt.
Demókratar styðja máls-
höfðanir kjósenda í Flórída
Kjörstjómin í Flórída hefur veitt
sýslum ríkisins frest fram á þriðju-
dag til að ljúka endurtalningu at-
kvæða, en auk þess geta utankjör-
staðai’atkvæði borist fram á föstudag
í næstu viku. Engar opinberar upp-
lýsingar hafa verið gefnar út um
gang endurtalningarinnar, en
AP-fréttastofan greindi frá því í
gærkvöld að eftir að atkvæði hefðu
verið endurtalin frá 65 sýslum af 67
hefði George W. Bush, frambjóðandi
repúblikana, einungis 225 atkvæði
umfram A1 Gore. Eftir fyrstu taln-
ingu í 53 sýslum hafði kjörstjórn til-
kynnt að Bush hefði 1.784 atkvæða
forskot á Gore.
William Daley, kosningastjóri Gor-
es, sagði á fréttamannafundi í gær-
kvöld að demókratar hefðu farið fram
á að atkvæði yrðu handtalin í Palm
Beach-sýslu, Dade-sýslu, Broward-
sýslu og Volusia-sýslu, þar sem sam-
tals um 1,8 milljónir manna greiddu
atkvæði. „Tækniatriði ættu ekki að
skera úr um hver verður forseti
Bandaríkjanna, heldur þjóðarvilji,"
sagði Daley. Hann lýsti því yfir að
Demókrataflokkurinn myndi styðja
fyrirhugaðar málshöfðanir kjósenda í
Palm Beach-sýslu, sem telja að óskýr
hönnun kjörseðilsins hefði orðið þess
valdandi að þeir gerðu seðilinn ógild-
an eða greiddu Pat Buchanan at-
kvæði sitt fyrir mistök. Daley gagn-
rýndi stuðningsmenn Bush harðlega
fyrh’ að „gera lítið úr því að þúsundir
Flórídabúa hefðu í raun verið sviptir
kosningarétti sínum“.
Lögfræðingar demókrata hafa
einnig vakið máls á þeim möguleika
að endurtaka atkvæðagreiðsluna í
Palm Beach-sýslu.
Yasser Arafat átti fund með Bill Clinton BandaiTkjaforseta í Washington
Þrír falla í
eldflaugaárás
Beit Sahur, Hebron, Jerúsalem. AFP, AP.
ÞRÍR Palestínumenn fórust í gær, er
ísraelsk árásarþyrla skaut eldflaug að
bifreið í Beit Sahour, einu úthverfa
Betlehemborgar á Vesturbakkanum.
Fjórir embættismenn heimastjómar
Palestínumanna voru í bifreiðinni, en
ísraelsher gaf þá skýringu á tilræð-
inu að pallbíllinn hefði verið notaður
til skotárása á ísraelska hermenn í
Jerúsalem.
Einn farþegi bifreiðarinnar, Huss-
ein Abayat, beið bana, en hann var
háttsettur meðlimur í skæruliða-
hreyfingunni Fatah. Að auki fórust
tvær konur, önnur var vegfarandi en
hin bjó í nálægu húsi.
Yfirmaður ísraelska heraflans á
Vesturbakkanum, Yitzhak Eitan,
sagði að Abayat hefði skipulagt ijöl-
mörg hi-yðjuverk og að allir farþegar
biíreiðarinnar hefðu verið eftiriýstir
fyrir aðild að skotárásum á ísraelska
hermenn. Leiðtogi Fatah-hreyfingar-
innar, Hussein Sheikh, fordæmdi til-
ræðið og varaði ísraela við því að þeir
mættu búast við „harkalegum við-
brögðum".
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, ræddi við BUl Clinton Banda-
ríkjaforseta í Washington í gær. Að
fundinum loknum kvaðst Arafat hafa
ítrekað stuðning sinn við frið.
AP
Vopnaður Palestínumaður við bifreiðina sem varð fyrir eldflaugaárás
Israelshers í Beit Sahour í gær.
„Það var ekki ég sem átti frum- ar mínir sitja ekki um borgir ísraela
kvæði að ofbeldinu," sagði Arafat. ... Við erum þjóð sem aðeins á eina
„Ég ræðst ekki á ísraela. Skriðdrek- flugvél."