Morgunblaðið - 10.11.2000, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 10.11.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2000 11 39. þing Alþýðusambands Islands verður haldið í næstu viku undir yfírskriftinni „Nýtt afl - nýir tímar“ Miðstjórn vill að ESB-að- ild verði tekin á dagskrá . , Morgunblaðið/Golli Forystumenn Alþýðusambands Islands kynntu í gær ASI-þingið sem fram fer í Kópavogi í næstu viku. Frá vinstri Rannveig Sigurðardóttir hagfræðingur, Ari Skúlason framkvæmdastjóri, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir varaforseti og Grétar Þorsteinsson forseti. Skipulagsmál verða eitt meginverkefni þings ASI þar sem m.a. á að samþykkja ný lög um sambandið. Búist er við fjörlegum umræðum um Evrópu- og byggðamál. Um 520 fulltrúar sitja þingið. Nýtt rafrænt kosningakerfí verður tekið í notkun. ÞING Alþýðusambands íslands, ASÍ, verður haldið í íþróttahúsinu í Digra- nesi í Kópavogi í næstu viku. Þingið, sem er hið 39. í röðinni, verður sett að morgni mánudagsins 13. nóvember og því á að Ijúka síðdegis fimmtudag- inn 16. nóvember. Kjörbréf hafa verið send út til 639 þingfulltrúa innan 111 aðildarfélaga ASI en samkvæmt því sem kom fram á kynningarfundi for- ystumanna sambandsins í gær er von á um 520 fulltrúum frá um 100 félög- um. Þeir munu fara með atkvæði um 77 þúsund félagsmanna ASÍ um allt land. Meðal erlendi-a gesta á þinginu verður framkvæmdastjóri Alþjóða- sambands fijálsra verkalýðsfélaga, Bill Jordan, sem kemur frá BÚTning- ham í Bretlandi. Yfirskrift þingsins er „Nýtt afl - nýir tímar“ þar sem skipu- lagsmál verkalýðshreyfingarinnar verða í brennidepli, staða hennar í samfélaginu í nútíð og framtíð og af- greiðsla á heildstæðu frumvarpi að nýjum lögum um Alþýðusambandið. Þetta verðiu- síðasta þingið með þessu sniði þar sem lagt er til að framvegis verði haldnir ársfundir ASÍ í stað þinga sem haldin hafa verið á fjög- urra ára fresti. Þingið mun nú standa í fjóra daga en ekki fimm eins og verið hefur. Meðal nýjunga í þingstarfinu er að málstofur verða haldnar um ým- is hagmunamál hreyfingarinnar og nýtt rafrænt kosningakerfi verður tekið í notkun, sem hannað er hér á landi af EJS hf. og nefnist Kjarval. Hver þingfulltrúi mun fá nafnspjald með strikamerki sem hann rennir í gegnum skanna sem verður við tölvur í tuttugu kjörklefum á þingstað. Kjar- vah er ætlað að einfalda fyrirkomulag kosninga og auðvelda talningu sem hefur verið tafsöm vegna mismun- andi vægis á bak við hvert atkvæði. Fram kom á kynningarfundinum í gær að þinghaldið mun kosta ASÍ tæpar 11 milljónir króna, samkvæmt fjárhagsáætlun, og er þá kostnaður hvers verkalýðsfélags ekki talinn með. ASÍ greiðir t.d. fyrir ferðir full- trúa til og frá þingstað. Fyrir kosn- ingakerfið greiðir Alþýðusambandið E JS hf. um 700 þúsund krónur. Styrking EES ijarlægnr kostur Fyrir þinginu liggur ejn heildstæð tillaga miðstjórnar ASÍ að helstu áherslum og verkefnum sambandsins á næstu ái-um. Þar er m.a. vikið að Evrópumálum og lagt til af miðstjórn að umræðuna um aðild að Evrópu- sambandinu, ESB, verði að taka á dagskrá. ísland þurfi að taka virkan þátt í Evrópusamstarfinu, annað- hvort með því að styrkja þátttökuna í EES eða með beinni aðild að ESB. Styrkmg EES-samningsins virðist vera „fjarlægur pólitískur mögu- leiki“, eins og það er orðað í tillög- unni. Þar segir einnig að umsókn Is- lands um aðild að ESB hafi engan tilgang nema full alvara sé þar að baki og fyrir liggi upplýst samþykki þjóð- arinnar. í ályktun um efnahags- og kjara- mál segir m.a. að í upphafi áratugar- ins hafi verkalýðshreyfingin lagt sitt af mörkum til þess að skapa forsend- ur fyrir jöfnum hagvexti, stöðugu verðlagi og stígandi kaupmætti með kjarasamningum við samtök atvinnu- rekenda og loforðum frá stjómvöld- um um ýmsar aðgerðir. Síðan segir: „Því miður hefur stjórnvöldum ekki tekist að nýta sér þann grunn sem að- ilar á vinnumarkaði hafa lagt og við- haldið stöðugleikanum á síðustu mis- serum. Þrátt fyrir ítrekaðar áskor- anir aðila vinnumarkaðar, Seðla- banka og Þjóðhagsstofnunar hefur ríkisstjórnin ekki nýtt sér þau hag- stjómartæki sem hún getur beitt til að koma á varanlegum stöðugleika." Allt aðrar leikreglur Grétai- Þorsteinsson, forseti ASÍ, sagði við Morgunblaðið að sambandið stæði írammi fyrii- allt öðmm leik- reglum en áður yrðu þær tillögur um skipulagsmál samþykktar sem lagðar era fyrir þingið í næstu viku. „Þessar leikreglur eiga að okkar mati að gagnast okkur betur í starfi og vera meira í takt við það umhverfi sem við hræramst í og þá tíma sem við lifum. Að því leytinu einu saman er þetta tímamótaþing. Ef þetta gengur allt saman eftir þá er þetta síðasta þingið með þessu yfirbragði sem við höldum áður en við fóram yfir í ársfundina. Ég held að langflestir, ef ekki allir, telji það mikið framfara- spor, að hægt verði á hveiju ári að fjalla um mál sem óhjákvæmilegt er að taka ákvarðanir um í þessari æðstu valdastofnun verkalýðshreyfingar- innar. Þá gefst færi á því á hveiju ári í stað þess sem við höfum búið við, á fjögurra ára fresti," sagði Grétar. Grétar sagði að þingið væri nú haldið á þeim tíma sem horfur í efna- hags- og kjaramálum væra ótryggar. Óvíst væri hvernig kaupliðir kjara- samninga héldu á næstu mánuðum. Kaflaskipti í sögu ASÍ Ari Skúlason, framkvæmdastjóri ASI, sagði við Morgunblaðið að þing- ið í næstu viku yrði eitt hið mikilvæg- asta í sögu ASÍ. „Horfum til þess að fyrir ári vorum við með Alþýðusambandið í nærri því algjörri upplausn, skipulagslega séð. Við voram með Rafiðnaðarsambandið og Samiðn fyrir utan. Þrátt fyrir allt erum við búin að koma hópnum nú saman og erum að leggja fram tillög- ur sameiginlega um skipulagsbreyt- ingai', sem virðist hafa verið töluverð sátt um. Þingið á síðan eftir að fjalla um þær tillögur. Ef þetta tekst þá held ég að nokkuð mikil kaflaskipti verði í sögu ASÍ. Þá verðum við kom- in með umgjörð utan um sambandið sem er miklu betri en verið hefur. Við verðum sterkari í því að standa sam- an sem afl og uppfylla þær kröfur sem nýir tímar gera til okkar. Tím- arnir og aðstæðumar breytast ótrú- lega hratt og við þurfum að hafa möguleika á því, skipulagslega, að takast á við þessar breytingar. Við er- um að taka mjög stórt skref í þá átt,“ sagði Ari. A fundinum kom fram að umræða um byggða- og Evrópumál gæti orðið lífleg í næstu viku. Ari sagði að vissu- lega kæmu íleiri málaflokkar til um- ræðu, s.s. menntamál, en þetta væra heit mál um þessar mundir. Þannig hefði ASÍ ekld áður komið með jafn- afgerandi tillögu um að taka aðild að ESB alvarlega á dagskrá. „Við höfnum algerlega þeim hug- myndum að gera EES-samninginn að VINNUDEILUSJÓÐUR Kennara- sambands íslands ætlar að greiða framhaldsskólakennurum verkfalls- bætur 15. nóvember nk. Greiddar verða 35 þúsund krónur til kennara í fullu starfi. Stefnt er að því að greiða þessa upphæð á tveggja vikna fresti meðan verkfallið stendur að sögn Áma Heimis Jónssonar, formanns stjórnar sjóðsins. í síðasta verkfalli veitti launa- skrifstofa fjármálaráðuneytisins stjórn vinnudeilusjóðsins upplýsing- ar um starfshlutfall kennara og reikningsnúmer þeirra. Fjármála- ráðuneytið hefur að þessu sinni hafnað því að veita þessar upplýs- ingar og ber fyrir sig lög um pers- ónuvemd. Árni sagði að þetta kallaði á meiri vinnu af hálfu stjórnar sjóðs- ins. Hún hefði reyndar fengið upp- tvíhliða viðskiptasamningi. Rökin eru þau að EES-samningurinn fjallai' um miklu meira en viðskipti með fisk og iðnaðarvörur. Hann fjallar í raun um allt okkar þjóðlíf. Alþýðusambandið hefur fengið góða stöðu innan Evrópusamstarfs verkalýðshreyfing- arinnar í gegnum það að ísland er að- ili að EES. Þeirri stöðu myndum við tapa með tvíhliða viðskiptasamningi,“ sagðiAri. Eins og áður sagði stendur ASÍ fyrir málstofum á þinginu. Þær verða átta talsins þriðjudaginn 14. nóvem- ber og þar af þrjár eingöngu ætlaðar þingfulltrúum. Þar á að fjalla um for- ystufræðslu og nútímamiðlun upplýs- inga innan verkalýðshreyfingarinnar og skyggnast inn í framtíðina með yf- irskriftinni „Staða og sköpulag verka- lýðshreyfingar framtíðarinnar". Fimm málstofur verða opnar öllum en þar á að fjalla um íslenskan vinnu- markað og Evrópu, heilsuvemd, byggðamál, ný tækifæri til náms og samræmingu atvinnuþátttöku og fjöl- skyldulífs. lýsingar frá nokkram skólum, en öll- um kennurum hefði verið sent bréf þar sem óskað væri eftir upplýsing- um um starfshlutfall og reiknings- númer. Árni sagði að í vinnudeilusjóðnum væru 540 milljónir. Tæplega 1.300 kennarar era nú í verkfalli þannig að sjóðurinn greiðir rúmlega 40 millj- ónii' á hálfsmánaðafresti. Greiðslur úr vinnudeilusjóðnum era skatt- skyldar, en skatturinn er greiddur eftir á. Vinnudeilusjóður Kennarasam- bandsins varð til um síðustu áramót þegar vinnudeilusjóðjr KÍ og HÍK vora sameinaðir. Stjórnendur fengu greidd laun um mánaðamótin Skömmu áður en verkfallið hófst Spenna ríkir um kjör forseta á 39. þingi ASÍ Þrýst á Ara að g-efa kost á sér SAMKVÆMT heimildum Morgun- blaðsins er mjög þrýst á Ara Skúla- son, framkvæmdastjóra Alþýðusam- bands íslands, að gefa kost á sér til forseta á ASÍ-þinginu sem hefst eftir helgi í Kópavogi. Ari vildi ekki tjá sig um mögulegt framboð, þegar Morg- unblaðið leitaði eftir því í gær, en gaf í skyn að yfirlýsing væri væntanleg. Níu manna kjörnefnd er ætlað að koma með tillögur um einstaklinga í forystusveit sambandsins en auk þess getur þingheimur komið með tillögur um forseta. í raun eru allir 77 þúsund félagsmenn ASÍ kjör- gengir til forseta eða annarra for- ystustarfa fyrir sambandið. Grétar Þorsteinsson hefur verið forseti ASI síðastliðin fjögur ár. Hann sagðist í samtali við Morgun- blaðið standa við sína fyrri yfirlýs- ingu um að ef þingið taki þá ákvörð- un að koma með tillögu um hann sem næsta forseta þá skorist hann ekki undan. Að öðra leyti hafi hann ekki gefið kost á sér áfram. Grétar vildi ekki tjá sig um mögu- legt framboð frá Ara Skúlasyni. Koma þyrfti í ljós hvernig málin þró- uðust. „Síðan stendur maður frammi fyrir raunveraleikanum í næstu viku, hvernig landið liggur," sagði Grétar. Óljóst hver niðurstaðan verður Forystumenn í verkalýðshreyf- ingunni hafa verið að ræða saman að undanförnu um skipan forystu Al- þýðusambandsins og er enn mjög óljóst hver niðurstaðan verður. Hvorki Ari né Grétar virðast njóta óskoraðs stuðnings innan sambands- ins. Forystumenn stærstu félaga innan Starfsgreinasambandsins hafa verið í hópi þeirra sem hafa talið tímabært að gera breytingar á for- ystu ASÍ. Talið hefur verið að Grétar njóti stuðnings meðal iðnaðarmanna. Forysta Verzlunarmannafélags Reykjavíkur hefur hins vegar lýst því yfir að VR ætli að halda sig til hlés í þessum umræðum og ekki lýsa fyrirfram yfir stuðningi við neinn frambjóðenda. Það flækir svo umræðuna um kjör forseta ASI að verið er að fækka í miðstjórn sambandsins. Reynt hefur verið að tryggja að í miðstjórn sitji fulltrúar beggja kynja, fulltrúar stórra félaga alls staðar af landinu og jafnframt fulltrúar allra lands- sambanda. Erfiðara verður að gæta allra þessara sjónarmiða þegar verið er að fækka þeim sem sitja í mið- stjórn. uppgötvaðist að félagsmenn í Félagi stjórnenda í framhaldsskólum eiga lögum samkvæmt að vera í verkfalli. Þetta kom fjármálaráðuneytinu og Félagi framhaldsskólakennara á óvart og raunar stjórn Félags stjórnenda í framhaldsskólum einn- ig. Bogi Ingimarsson, formaður fé- lagsins, sagði að þegar þetta upp- götvaðist hefði verið búið að greiða stjórnendum laun fyrii' nóvember- mánuð. Sem kunnugt er fengu fram- haldsskólakennarar, sem era á fyrir- framgreiddum launum, aðeins laun fyrii' 7 daga um síðustu mánaðamót. Bogi sagði að þessi launagreiðsla til stjórnenda yrði leiðrétt um næstu mánaðamót. Um er að ræða um 60 manna hóp, þ.e. aðstoðarskólameist- ara, áfangastjóra og aðra stjórnend- ur sem eru með yfir 50% stjórnun. 540 milljónir í vinnudeilusjóði Kennarasambandsins Greiðir 35 þúsund í bætur í næstu viku
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.