Morgunblaðið - 10.11.2000, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 10.11.2000, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ c 64 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2000 DAGBÓK í dag er fóstudagur 10. nóvember, 315. dagur ársins 2000. Orð dagsins j Þótt ég sé öllum óháður, hef ég gjört sjálfan mig að þræli allra, til þess að ávinna sem flesta. (I. Kor. 9,19.) Skipin Reykjavíkurhöfn: Arn- arfell og Lone Boye fara í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 8.45 leikfimi, kl. 9 vinnustofa kl. 13 bókband, kl. 14 bingó. Söngstund í kaffitímanum með Hans Hafliða og Árelíu. Leikfimi fellur niður í dag föstudag og mánu- daginn 13. nóvember og verður aftur miðviku- daginn 15. nóv. kl. 8.45. Árskógar 4. Kl. 9 perlu- og kortasaumur, kl. 11.15 tai-chi-leikfimi, kl. 13 opin smíðastofan, kl. 13.30 bingó, kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opnar. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 ;-j hárgreiðsla, kl. 8.30 böðun, kl. 9-12 bók- band, kl. 9-16 hand- avinna og fótaaðgerð, kl. 13 vefnaður og spilað í sal. Félagsst. Furugerði 1. Kl. 9 aðstoð við böðun, smíðar og útskurður, kl. 12 matur, kl. 14 messa, prestur sr. Ólafur Jó- hannsson, kaffiveitingar eftir messu. i’’ Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18-20. Kl. 9 hárgreiðslustofan opin, kl. 9.45 leikfimi. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 10 hársnyrting, kl. 13 „opið hús“, spilað á spil. Félagsstarf aldraðra í Garðabæ. Ferð í Þjóð- leikhúsið að sjá Kirsu- berjagarðinn 18. nóv- ember, pantið miða í Kirkjulundi í síma 565- 6622. Gönguhópur og áttavitanámskeið kl. 10. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 rammavefnaður og málm- og silfursmíði, kl. 13 gler- og postulíns- málun, kl 17 slökun, þátttakendur hafi með sér kodda og teppi. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið kl. 9-17. Mat- arþjónusta er á þriðju- og föstudögum, panta þarf fyrir kl. 10 sömu | daga. Fótaaðgerðastof- an er opin kl. 10-16, miðviku-, fimmtu- og föstudaga. Kl. 10 boccia. Gleðigjafarnir syngja í dagkl. 14. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Tréútskurður í Flens- borg kl. 13. Myndmennt kl. 13. Brids kl. 13:30. Á morgun verður ganga frá Hraunseli kl. 10. ~ « Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er opin virka daga frá kl. 10-13. Matur í hádeg- inu. Árshátíð FEB verð- ur haldin í félagsheimil- inu Ásgarði, Glæsibæ, í kvöld föstudaginn 10. nóvember. Húsið opnað kl. 18.30 og hátíðin sett kl. 19.30. Matur, ræðu- maður kvöldsins verður Steingrímur J. Sigfús- son alþingismaður, fé- lagar úr Karlakórnum Þröstum syngja nokkur lög, skopsaga, gaman- mál, happadrætti, veislustjóri er Árni Johnsen alþingismaður. Dansleikur á eftir, hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi. Miðar seldir á skrifstofu FEB. Silfurlínan opin á mánu- dögum og miðvikudög- um frá kl. 10-12. Ath. Opnunartími skrifstofu FEBerfrákl. 10-16. Upplýsingar á skrif- stofu FEB í síma 588- 2111 frá kl. 10-16. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar, m.a. föndur og bútasaumur, umsjón Jóna Guðjónsdóttir, kl. 10 „Kynslóðirnar mæt- ast 2000“, börn úr Öldu- selsskóla koma í heim- sókn. Frá hádegi er spilasalur opinn, kl. 13 bókband. Veitingar í kaffihúsi Gerðubergs. AUar upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575-7720. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13 kl. 10.30 á laugardög- um. Gullmári, Gullsmára 13. Hinn árlegi fjöl- skyldudagur verður í Gullsmára laugardaginn 11. nóv. kl. 14. Fjöl- breytt dagskrá, m.a. spákona. Hildur Fann- ey og Bergiind frá Förðunarskóla Islands farða andlit yngri kyns- lóðarinnar. Kór eftirlaunakennara syng- ur nokkur lög undir stjórn Jóns Hjörleifs Jónssonar, undirleikari Sólveig Jónsson. Full- trúi eldri borgara, Guð- rún Eyjólfsdóttir, les gamanmál. Fimmurnar taka lagið. Ýmsir leikir fyrir alla aldurshópa. Stjórnandi Margrét Bjarna og Guðrún Lilja. Ovænt uppákoma. Vöffluhlaðborð. Eldri borgarar eru hvattir til að mæta með börn og barnaböm. Hraunbær 105. Kl. 9-12 baðþjónusta og út- skurður, kl. 9-17 hár- greiðsla, kl. 9-12.30 bútasaumur, kl.ll leik- fimi og spurt og spjall- að. Kl. 14. kemur Ólafur Ólafsson, formaður Fé- lags eidri borgara, í heimsókn og ræðir um stöðu mála. Allir vel- komnir. Kaffiveitingar. Hvassaleiti 56-58. Kl. 9 baðþjónusta og hár- greiðsla, kl. 9-12.30 bútasaumur, kl. 11 leik- fimi. Hæðargarður 31. Kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30 gönguhópur, kl. 14 brids. Norðurbrún 1. Kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9-12.30 útskurður, kl. 10 boccia. Vesturgata 7. Kl. 9 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15 hand- avinna, kl.13 sungið við flygilinn, 14.30-16 dans- að við lagaval Halldóru, vöfflur með rjóma með kaffinu. Allir velkomnir. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan, kl. 9.30 bókband og morgunstund, kl. 10 leikfimi, kl. 13.30 bingó. Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Spilað kl. 13.15. Allir eldri borgarar vel- komnir. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Guilsmára 13 kl. 10 á laugardögum. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra leik- fimi í Bláa salnum í Laugardalshöll, kl. 10. Kiwanisklúbburinn Geysir í Mosfellsbæ heldur spilavist í kvöld kl. 20.30 í félagsheimil- inu Leirvogstungu. Kaffi og meðlæti. Borgfirðingafélagið í Reykjavík verður með sölukaffi og skyndi- happdrætti sunnudag- inn 12. nóvember að Hallveigarstöðum. Hús- ið opnað kl. 14.30. IVIinningarkort Minningarkort ABC- hjálparstarfs eru af- greidd á skrifstofu ABC-hjálparstarfs í Sóltúni 3, Reykjavík í síma 561-6117. Minn- ingargjafir greiðast með gíróseðli eða greiðslukorti. Aliur ágóði fer til hjálp- ar nauðstöddum börn- um. Minningarkort Barna- heilla til stuðnings mál- efnum barna fást af- greidd á skrifstofu samtakanna á Lauga- vegi 7 eða í síma 561- 0545. Gíróþjónusta. Minningarkort barna- deildar Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525-1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Minningarkort Thor- valdsensfélagsins eru til sölu á Thorvaldsens- bazar, Austurstræti 4, s. 551-3509. Minningarkort Stóra- Laugardalssóknar, Tálknafirði, til styrktar kirkjubyggingarsjóði nýrrar kirkju í Tálkna- firði eru afgreidd í síma 456-2700. Minningarspjöld Frí- kirkjunnar í Hafnar- firði fást í Bókabúð Böðvars, Pennanum í Hafnarfirði og Blóma- búðinni Burkna. KFUM og KFUK og Samband íslenskra kristniboða. Minningar- kort félaganna eru af- greidd á skrifstofunni, Holtavegi 28 í s. 588- 8899 milli kl. 10 og 17 alla virka daga. Gíró- og kreditkortaþjónusta. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavik. SÍMAR: Skiptiborð: 5G9 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 669 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 669 1329, fréttir 669 1181, íþróttir 669 1166, sérblöð 669 1222, auglýsingar 669 1110, skrifstofa 668 1811, gjaldkeri 569 1116. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjaid 1.900 kr. á mánuði innaníands. í iausasölu 160 kr. eintakið. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudeg'i til föstudags Krakkar úr Melaskóla. Bílastæðismál Landsspítalans KONA hafði samband við Velvakanda og vildi taka undir orð móður, sem skrif- aði um bílastæði við Lands- spítalann í Velvakanda fyr- ir stuttu. Ég og maðurinn minn þurfum oft að leita okkur lækninga á Lands- spítalanum. Dóttir okkar keyrir okkur á staðinn og er afar erfitt að fá stæði ná- lægt dyrunum. Við eigum bæði erfitt með gang og þurfum að komast sem næst inngönguleiðinni. Ég held að mjög margir bíl- anna séu í eigu starfsfólk spítalans. Bílastæðismál spítalans virðast vera í al- gjörum ólestri. Ég bara spyr, hvemig verður þetta þegar barnadeildin fer að starfrækjast þarna? Hvar á þá að leggja? Athugasemd MIG langar að koma með smáathugasemd vegna málverks sem var á mál- verkasýningu Búnaðar- bankans og mynd birtist af í heigarblaði Morgunblaðs- ins fyrir stuttu. Þar var mynd af Kjarvalsmálverki og undir myndinni stóð Svartfeil (Dyrfjöll). Svart- fell hefur ekkert með Dyr- fjöll að gera. Svarfell er austan megin fjarðarins, gegnt Dyrfjöllum. Vigfús Ingvar Vigfússon. Fyrirspurn til RÚV MIG langar að koma með fyrirspurn, vegna greinar sem birtist í Velvakanda þriðjudaginn 7. nóvember sl. um afnotagjöld RÚV. Þar segir að örorku- og elli- Hfeyrisþegar fái 20% af- slátt, sem gerir 1.680 kr. á mánuði. Ég er látinn borga 1.900 kr. á mánuði. Spurn- ing mín er hvort þetta gangi jafnt yfir alla eða þá sem náð hafa 67 ára aldri? Vonast ég eftir að fá svar frá RÚV við fyrirspurn minni. Sigmar Jónsson, Fannafold 217A, sími 567-4204. Tapad/fundið Gullarmband tapaðist GULLARMBAND tapað- ist í Hafnarfirði laugardag- inn 4. nóvember sl. Skilvís finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 863-7333. Fundar- laun. Armani stálúr tapaðist ARMANI stálúr tapaðist í Suðurbæjarsundlaug Hafnarfjarðar fyrir um það bil þremur vikum. Upplýs- ingar í síma 555-0908. Nokia 6150 tapaðist NOKIA 6150 GSM-sími tapaðist í World Class mánudaginn 6. nóvember sl. Skilvís finnandi er vin- samlegast beðinn að hafa samband í síma 557-5051. Fundarlaun. Grátt seðlaveski tapaðist GRÁTT seðlaveski tapaðist mánudaginn 6. nóvember sl. í biðskýlinu við Lækjar- torg. I veskinu voru skil- ríki, en heimilisfangið á þeim er ekki rétt. Skilvis finnandi er vinsamlegast beðinn að koma veskinu í ókilamunadeild lögregl- unnar eða hringja í síma 847-6354. Dýrahald Grábröndóttur fress hvarf að heiman GRÁBRÖNDÓTTUR ógeltur fress hvarf frá Smárahverfmu í Kópavogi í september. Hann er með smávegis hvítt á feldinum og hvítan hring á skottinu. Hann er ómerktur. Upplýs- ingar í síma 695-7305. Krossgáta LÁRÉTT: 1 koppur, 8 stygg, 9 hrós- ar, 10 sár, 11 beiskir, 13 dysjar, 15 ríki, 18 flatir, 21 fiskur, 22 stíf, 23 suss- ar á, 24 drottinsdags. LÓÐRÉTT: 2 hyggur, 3 alda, 4 borg- uðu, 5 vitur, 6 eldstæðis, 7 ósoðinn, 12 greinir, 14 sefa, 15 sæti, 16 veislunni, 17 miskunnin, 18 stuttan svefn, 19 með lús, 20 magurt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 kofan, 4 Kýpur, 7 lætur, 8 rætið, 9 púl, 11 aðra, 13 eisa, 14 kafli, 15 bana, 17 regn, 20 aða, 22 taðan, 23 gatið, 24 riðla, 25 senna. Lóðrétt: 1 kolla, 2 fætur, 3 norp, 4 kurl, 5 putti, 6 ryðja, 10 úlfúð, 12 aka, 13 eir, 15 bútur, 16 næðið, 18 ertan, 19 niðja, 20 anga, 21 agns. Víkverji skrifar... VÍKVERJI var einn af nátthröfn- unum sem fylgdust vel með sjónvarpsfréttum af atkvæðataln- ingunni í Bandaríkjunum. Þegar þetta er skrifað er enn óljóst hvor verður forseti, Bush eða Gore. En Víkverji er mannasættir og bendir á lausn sem Bandaríkjamenn ættu að velta fyrir sér þegar sú undarlega staða kemur upp að tveir frambjóð- endur fá nokkurn veginn jafn mikið fylgi. Setja ætti ákvæði í stjórnar- skrá um að þeir geti þá deilt með sér kjörtímabilinu, annar setið fyrstu tvö árin en hinn síðan tekið við. Báðir gætu vel við unað. En hvað sem líður velmeintum hugmyndum Víkverja er eitt sem sit- ur eftir: Bandaríkjamenn eru ein- staklega lagnir við að gera atburði eins og kosningar að spennandi fjölmiðlaleik. Sviðsetningin er vel- heppnuð og þótt helstu frambjóð- endurnir hafi ekki megnað að hrífa marga tókst að minnsta kosti að búa til góða afþreyingu. XXX SURTSEY er náttúrufyrirbæri sem var í heimsfréttunum fyrir nær fjórum áratugum. Svo fræg varð hún að fyrir fáeinum árum rakst Víkverji dagsins á skilti með sérkennilegu fyrirtækjaheiti á einni hurðinni í stóru skrifstofuhúsi á Manhattan í New York. Surtsey Real Estate, þ.e. fasteignasalan Surtsey. Einn af sölumönnunum á staðnum komst að þjóðerni Víkverja og bað þegar um aðstoð. í fyrsta lagi, hvernig bera ætti þetta undarlega heiti fram og í öðru lagi, hvað það merkti! En nú sér Víkverji að menn eru að velta fyrir sér að afnema friðun eyj- arinnar og leyfa ferðamannahópum að valsa þar um. Surtsey hefur frá upphafi verið mikilvæg fyrir vísinda- menn sem hafa getað fylgst með því hvernig líf þróast á nýju landi. Smám saman taka sér bólfestu jurtir af ýmsu tagi, fuglar og jafnvel selir. En maðurinn sjálfur myndi með um- stangi sínu trufla svo mikið ferlið að sérstaða eyjarinnar yrði fljótt úr sögunni. Vonandi láta menn skyn- semina ráða og gera þar ekki höfn eða flugvöll. Best væri vafalaust að takmarka áfram aðgang manna með jafn ströngum reglum og nú eru í gildi. XXX AFSKAPLEGA fannst Víkverja gott að sjá að Skipulagsstofnun hefur fallist á fyrirhugaða hafnar- gerð í Innri-Gleðivík á Djúpavogi. Stofnunin segir í fréttatilkynningu um málið að hún telji að fram- kvæmdin hafi jákvæð áhrif á menn og samfélag á Djúpavogi og hafi ekki í för með sér umtalsverð umhverfis- áhrif. Reyndar er Víkverji ekki neitt kunnugur aðstæðum í Innri-Gleðivík og veit ekkert um þörfina á hafnar- gerð þar en hann treystir því að vit sé í hugmyndinni. Áuk þess væri ófyrirgefanlegt ef Skipulagsstofnun léti ekki heitið á víkinni liðka svolítið fyrir umsókninni og bræða grjóthart stofnanahjartað. Örnefni á íslandi eru mörg ótví- ræður vitnisburður um harða lífs- baráttuna. Nöfnin Leggjabrjótur og Mannskaðahóll eru dæmigerðari fyrir íslenska þjóðmenningu og sögu en Unaðsdalur og Sunnuhlíð. Satt að segja skilur Víkverji ekk- ert í því að menn skuli ekki leyfa sér meira í nafngiftum núna og segja skilið við eymdardýrkunina. Ef hann flytur í nýtt hverfi hefur hann ekkert á móti því að það heiti hugljúfu og al- þjóðlegu nafni eins og Paradís. En jafnframt gæti hitastig sálarinnar hækkað í vetrarkuldunum við að búa í Madeiragötu eða við Bahama- stræti.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.