Morgunblaðið - 24.12.2000, Side 58
58 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2000
**--------------------------
MORGUNBLAÐIÐ
FOLKI FRETTUM
Ofurfyrirsætan Helena Christ-
ensen léttklædd og dönsk.
Jared Leto er ung og upprenn-
andi Hollywood-stjarna.
Uppruni, útlit
og eðli yfhi30
skrautsteina
. útskýit í þessari
3 vönduðu og
efnismiklu bók.
Ari Trausti
Guðmundsson,
þýddi og
staðfærði bókina.
Yfir 800 ljósmyndir prýða
þessa skemmtilegu bók.
Jólabörn
ÞAU eru sannkallaðar jólastjörnur
afmælisbörnin okkar þessa vikuna,
og koma víða að.
Kvikmyndastjarnan rómaða Ava
Gardner var fædd þann 24. des-
ember 1922 í Norður-Karólínufylki,
þar sem hún ólst upp í bændafjöl-
skyldu með tærnar í moldinni. En
hún lést í London 25. janúar 1990
úr lungnabólgu.
Ofurfyrirsætan Helena Christen-
sen fæddist 25. desember 1968 í
Kaupmannahöfn og langaði alltaf til
að verða tónlistarmaður en flúði
ekki örlögin og byrjaði að sitja fyrir
níu ára að aldri.
Ungstirnið Jared Leto kom í
heiminn 26. desember 1971 í Bos-
sier City í Louisiana-fylki Banda-
ríkjanna og sló í gegn í sjónvarps-
þáttaröðinni „Lífið kallar“ með
Claire Danes.
Sem steingeitur ættu þau öll að
eiga eitthvað sameiginlegt en stein-
geitur þykja mjög hæfar manneskj-
ur, jarðbundnar og sannfærðar í að
ná árangri, og leggja gjarna mikla
vinnu á sig til þess. Þær elska að
skipuleggja og eru fúsar til að beita
sjálfar sig aga, bera ábyrgð og
skipuleggja fram í tímann til að ná
settum markmiðum.
Steingeitur eru íhaldssamar að
því leytinu til að þær henda ekki
hlutum frá sér um leið og eitthvað
nýtt rekur á fjörur þeirra. Þeim lík-
ar að byggja á reynslu sem þær
Reuters
Ava Gardner var glæsileg kona
og talin stóra ástin í lífi „Blá-
skjás gamla“, Franks Sinatra.
hafa þegar orðið sér út um. Sumar
steingeitur vilja að eigur þeirra;
bíll, heimili og föt, séu klassískar og
fágaðar en aðrar steingeitur leggja
meiri áherslu á virkni og hagsýni.
Flestar þeirra eru fullkomnunar-
sinnar.
Þar sem steingeiturnar eru
metnaðar- og ábyrgðarfullar eiga
þær með eindæmum erfitt með að
þola óreiðu, hengilmænuhátt og
kærulausa hegðun. Fólk sem stend-
ur ekki við orð sín, er óstundvíst og
með litla ábyrgðartilfinningu mun
seint eiga upp á pallborðið hjá
steingeitinni. Steingeitum líkar
vanalega sérlega vel í viðskiptum,
stjórnmálum, stjórnun og í forystu-
hlutverk. Þær eiga það til að vera
stífar, þá bæði líkamlega og and-
lega, og verða að læra að vera ekki
alltaf svona alvarlegar. Margar
steingeiturnar hafa þó góðan húm-
or og nota hann til að létta lundina
hjá sér og öðrum.
Ava og Helena eru báðar með
tungl, sem stýrir daglegum athöfn-
um, tilfinningum og skapgerð, í
fiskum, merki fjölhæfni, hug-
myndaflugs og sköpunargáfu. Það
gerir þær viðkvæmar á tilfinninga-
sviðinu, skilningsríkar, listrænar,
andlega sinnaðar og viðutan.
Jared er hins vegar með tunglið í
hrúti, merki keppnisskaps, aðgerða
og áskorunar. Hann ætti því að
vera opinn, hreinskiptinn tilfinn-
ingalega séð, einlægur, en þolir
ekki vanagang, tekur ekki stjórnun
og hlustar helst ekki á aðra.
Jared og Helena eru bæði með
Venus, stjörnu ásta og fegurðar, í
vatnsbera. Þeim þykir þá fólk að-
laðandi sem veitir þeim innblástur.
Þau eru ekki mjög líkamleg í ást-
um, heldur er leiðin að hjarta
þeirra í gegnum vitsmunina. Ava
með Venus í sporðdreka þar sem
svipað er upp á teningnum. Hún
sóttist eftir djúpu og sterku tilfinn-
ingasambandi þar sem líkamlega
hliðin kemur ekki fyrst þótt hún
skipti síðar miklu. Hún sóttist þó
eftir samböndum við sterka per-
sónuleika og var mjög trú í ástum.
Helena og Jared eiga góða tíma
fram undan og stjörnurnar hvetja
þau til að láta til sín taka á tilfinn-
ingasviðinu.
HOTELS & RESORTS
# . ^ " HOT
Ragnar Bjarnason Bjarni Arason Sími 552 9900
Forsala / andyrí Súlnasals á
Radison SAS Hótel Sögu
26. desember frá kl. 13-20
RrMIRflH snóftm
Sími 595 1960
Sparíklæðnaður
Miðaverð kr. 1.800
Húsið opnað kl. 22.00
JÓLA-
Bogomil Font
Páll Óskar
MILLJONAMÆRINGANNA
ásamt
Bogomil Font, Páli Óskari, Ragnari Bjarnasyni og Bjarna Arasyni,
26. desember, annan í jólum, (Súlnasal á Radisson SAS Hótel Sögu
DANSLEIKUR