Skírnir - 01.07.1891, Page 15
Mentun' og menning.
16
smáfiskur á 46—51’/2 kr. skp. og ýsa á 35—42 kr. Harðfiskur seldist á
120—220 kr. skp. Alls munu hafa verið flutt héðan um 50,000 skp. af
fiski. Hákarlslýsi, ljóst, gufubrætt, seldist á 33—38’/2 kr., pottbrætt á 31
—37’/2 kr., dökt á 25—30 kr., þorskalýsi tært seldist á 27—37 kr., dökt
á 22—31% kr. En út var flutt alls um 8,600 tunnur. — Sauðakjöt seld-
ist á 38—58 kr. tunnan (224 pd); alls komu héðan til Kmh. um 3,200 tunn-
ur. Tólg seldist á 21—32 a. pd. og gærur á 2—3 kr. Hreinsaður æðar-
dúnn seldist á 9—12 kr. eptir gæðum.
Kaupfélög þau, er sendu fé út á sina ábyrgð, fengu það verð, er hér
segir, að öllum kostnaði frádregnum: kaupfélag Árnesinga kr. 13.52—
14,00 fyrir sauði, Dalamanna kr. 13,32 fyrir sauði og veturgamalt fé, Ey-
firðinga kr. 14,43 fyrir sauði og kr. 10,48 fyrir veturgamalt fé og geld-
ar ær, Fljótsdalshéraðs kr. 14,93 fyrir sauði og kr. 10,59 fyrir veturgamalt
fé og geldar ær, Skagfirðinga kr. 13,14 fyrir sauði og veturgamlt fé, Sval-
barðseyrar kr. 14,96 fyrir sauði og kr 10,70 fyrir veturgamalt fé og geld-
ar ær og Þingeyinga kr. 14,96 fyrir sauði og kr. 10,48 fyrir veturgamalt
fé og geldar ær. En fyrir fé það, er fjárkaupmenn keyptu hér, var gefið
12—14 kr. fyrir fullorðna sauði.
Um haustiö komu fram miklar kvartanir um herfilega verkun á salt-
fiski þeim, er ýmsar verzlanir á suðurlandi höfðu sent til Spánar, og
seldist sá fiskur þar eigi nema með miklum aftöllum: við það lækkaði þar
og verð á vestfirzkum saltfiski. Bændur og kaupmenn við Faxaflóa gerðu
síðan tilraunir til að bæta saltfisksverkunina þar um slóðir, er mjög hefir
versnað síðari árin, einkum frá því er blautfisksverzlun fór að tíðkast.
Mentun og menning. Við háskólann tóku 8 íslendingar embættis-
próf á þessu ári. 1 lögum: Jóhannes Jóhannesson, Jón Magnússon, Lárus
Bjarnason, Ólafur Pálsson og Páll Einarsson, allir með 1. einkunn. í guð-
fræði: Adolf Nikolaisen, með 1. einkunn, og Magnús Magnússon með 2.
betri einkunn. í verkfræði: Sigurður Thoroddsen, með 2. einkunn.
Við prestaskólann luku 6 stúdentar embættisprófi í ágústmánuði: Sæ-
mundur Eyjólfsson (I, 45), Sigurður Magnússon frá Flankastöðum (I, 43),
Jón Pálsson (n, 37), Yngvar Nikulásson (II, 29) og Emíl G. Guðmunds-
son (IH, 19). í byrjun skólaársins 1891—92 voru þar 17 lærisveinar.
Við lcelcnaskólann lauk 1 stúdent embættisprófi: Sigurður Magnússon
(II, 94). Ðar voru í byrjun skólaársins 1891—92 alls 7 lærisveinar.
Frá latínuskólanwm útskrifuðust 16 lærisveinar, 6 þeirra fengu fyrstu