Skírnir - 01.07.1891, Qupperneq 18
1H
Mentun og menning.
smiðju Jiá, sem þar liefir legið ónotuð síðan um árslok 1887; fékk hann
séi prentara um sumarið og ritstjóra og tók að gefa út blað á sinn kostnað.
Bókmentafélagið gaf út Skírni, íslenzkt fornbréfasafn (frambald), Tímarit,
Norðurlandasögu eptir Pál Melsteð og Préttir. Þjóðvinafélagið gaf út
Andvara, Hvers vogna? — þess vegna! rit náttúrufræðilegs efnis eptir
franskan mann Henri de Parville, Dýravininn, 4. hepti, og Almanak. Þrjú
ný blöð byrjuðu að koma út: „Kirkjublaðið“, í Rvík, ritstjóri prestaskóla-
kennari Þórballur Bjarnarson, „Austri“, á Seyðisfirði, ritstjðri Skapti Jó-
sepsson, og „Sunnanfari“, i Kmböfn, ritstjóri: dr. Jón Þorkelsson; það rit
ei; eingöngu fræðilegs efnis og flytur myndir af ísl. mönnum, mannvirkjum
og stöðum. Þá kom og út Búnaðarrit Hermanns Jónassonar, Tímarit
um uppeldi og mentamál og Samtíningur, 2. hepti, eptir Jóhannes Sigfús-
son. Af kenslubókum og öðrum fræðiritum má nefna Stutt ágrip af ísl.
mállýsing banda alþýðuskólum, eptir Halldór Briem, Beygingar sterkra
sagnorða í íslenzku (framhald), eptir Jón Þorkelsson rektor, Ágrip afbók-
mentasögu íslands, I, 900—1400, eptir dr. Finn Jónsson, Safn til brag-
fræði ísl. rímna, eptir séra Helga Sigurðsson, Sýnisbók íslenzkra bókmenta
á 19. öld, valdir kaflar úr ritum ýmsra höfunda, og Framtíðarmál, um
verzlunarólag hér á landi, einkum í Árnessýslu o. fl., eptir Boga Melsteð.
Af kvæðabókum, sem út komu, má nefna Ljóðmæli Gísla Brynjólfssonar
og kvæði eptir Hannes Blöndal. Sigurður bóksali Kristjánsson tók að gefa
út islenzkar fornsögur, ódýrar og alþýðlegar, og byrjaði á íslendingabók
og Landnámu.
Rannsóknarferð fór Þorvaldur Thoroddsen um Borgarfjörð ofanverð-
an til að kynna sér jarðmyndanir þar um sveitir, er hann bafði eigi áður
komið; alþingi, veitti honum um sumariö 1000 kr. styrk hvort ár næsta
fjárhagstímabilstil jarðfræðisrannsóknar í Skaptafellssýslum. —Björn Ólsen
ferðaðist um Skagafjörð og alt norður i Fljót til að fræðast um mállýzk-
ur þar. — Sigurður Vigfússon rannsakaði ýmsa sögustaði í Dölum, Snæ-
fellsnessýslu og Mýrasýslu og keypti nokkra muni til forngripasafnsins.
Rœður voru nokkrar haldnar til fróðleiks og skemtunar eða um mál,
er almenning varða. Bjarni Jónson talaði um æfi Bggerts Ólafssonar og lýsti
starfsemi og tilraunum hans til viðreisnar hugsunarhætti íslendinga á miðri
18. öld. Jóhannes Sigfússon talaði um athafnir kennarafundarins i Kaup-
mannahöfn sumarið 1890. Séra Ólafur Ólafsson í Guttormshaga, alþing-
ismaður, talaði 1. um olbogabarnið (o: kjör kvenna hér á landi), 2. um
trúarlíf á ísiandi, og 3. um það, hvernig farið væri með þarfasta þjóninn