Skírnir - 01.07.1891, Page 94
94
Skýrslur og reikningar félagsins 1890 og 1891.
skuldum, jafnvel með lögsókn, ef á þyrfti að haida; skyldi Hafnardeildinni
tilkynnt það og á hana skorað að beita sömu aðferð.
Embættismenn og varaembættismenn voru endurkosnir, nema aðalfé-
hirðir var kosinn docent Eiríkur Briem, í stað amtm. E. Th. Jónassens,
er baðst undan kosningu, og varaféhirðir ritstj. Þorleifur Jónsson, i stað
Eiríks Briems. Endurskoðunarmenn voru og kosnir hinir sömu og áður,
og sömuleiðis ritnefndarmenn. — Á fundi voru um 35.
A fyrra ársfundi Reykjavíkurdeiklarinnar 1892,30. apríl, lagði forseti
frain og las upp álit dómnefnda um þýðingu sira Matth. Jochumssonar
á leikriti H. Ibsens „Brand“, og á „ Biblíuljóðum“ séra Yaldimars Briems,
og loks tilboð frá adjunkt Þorvaldi Thoroddsen á riti, sern heitir „Land-
frœðissaga íslands", sem dæmd höfðu verið verðlaun af „Gjöf Jóns Sigurðs-
sonar“, og óskaði höfundurinn, að fyrri hluti þessa rits, um 12 arkir, gæti,
ef unnt væri, komið út á þessu ári. Um þýðinguna á „Brand“ var nefnd-
inni um og ó. Aptur á móti lagði dómnefndin um „Biflíuljóðin11 eindreg-
ið með þeim, taldi þau „framúrskarandi skáldrit, eitt hið þýðingarmesta og
merkilegasta, sem enn hefir verið kveðið á íslenzka tungu; jafnframt má
treysta því“, segir nefndin ennfremur, „að þau muni glæða góðar tilflnn-
ingar og festa hin helgu sannindi bifliunnar í hjörtum lesendanna“. —■ —
„Munu þau (Biflíuljóðin) verða bókmenntum vorum til æflnlegs sóma og
stórurn auka vinsældir félagsins“.
Porseti skýrði frá því, að efnahagsin3 vegna væri eigi tiltök að gefa
út nema eitt af þessum ritum í ár, og Biflíuljóðin yrðu að gefast út í
tvennu lagi eða á tveim árum, stærðarinnar vegna.
Eptir nokkrar umræður var samþykkt með öllum þorra atkvæða, að
fresta úrslitum um leikritið „Brand“ i þetta sinn.
Samþykkt var tillaga stjórnarinnar að gefa út nú þegar á þessu ári
Landfræðissögu Thoroddsens, fyrri kafla, svo framarlega sem dómnefnd, sett
af félaginu, legði það til. í nefnd þá voru kosnir docent Eirikur Briem,
assess. Kristján Jónsson og adjunkt Steingrímur Thorsteinsson, og var hún
útgáfu ritsins eindregið meðmælt.
Loks var samþykkt með öllum atkvæðum móti 7, að félagsdeildin
taki að sér að gefa út Biflíuljóðin svo fljótt sem efni leyfa, þegar lokið er
útgáfu á fyrri hluta Landfræðissögunnar, þannig, að þau gangi fyrir öll-
um bókaútgáfum, að undanteknum hinum sjálfsögðu og venjulegu ársbók-
um, og skyldi stjórnin semja við höfundinn nánar um útgáfutimann.
Nær 30 félagsmenn voru á fundi.
A ársfundi Hafnardeildarinnar sama ár, 20. maí, skýrði fundarstjóri
frá (dr. Pinnur Jónsson, í fjarveru forseta), að „ríkisþing Dana hafi af
rausn sinni samþykkt að veita þeirri deild 1000 króna ársstyrk í 4 ár“. —