Skírnir - 01.01.1900, Page 10
10
Misferll óg mannal&t.
Skipekaðar urðu margir og manntjón eigi lítið þetta &r. — Flutninga
Bkip eitt, Ingðlfur að nafui, átti að flitja vörur úr Hafnarfirði til Stokks-
eirar. Fekk það hrakning mikinn í þrjár vikur. Skemdist, mjög reiði og
áhöfn öll og varð að fleigja miklu af salti firir horð. Hinn 15. mars
strandaði fiakiskipið Sleipnir í Njarðvík og brotnaði gat á það, en varð
þð gert við það. Um sama leiti strandaði fiskiskip að vestan á Hrauns-
nesi. Seint í mars strandaði þískt hotnvörpuskip á Steinsmírarfjörum í
Meðallandi. Menn björguðust allir. í miðjum apríl strandaði kaupskip í
Þikkvahænum. Átti það að fara til Ólafs kaupmans Árnasonar á Stokks-
eiri, en varð að hverfa þar frá söknm brims. Hásetar druknuðu allir, en
skipstjðri og stírimaður komust lífs af en meiddust þð. Fiskiskúta frá
ísafirði, eign Ásgeirs Ásgeirssonar, strandaði í Keflavík undir Látrabjargi
snemma í maí. í sama veðrinu fórst Fálkinn, fiskiskip öeirs kaupmans
Zoega. Voru á því 16 menn og druknuðu allir. Síðast í maí kom gufu-
skipið Moss með timburfarm frá Mandal í Noregi. Brann það með öllum
farmi á höfninni í Reikjavík. Hinn 11. júní strandaði frönsk fiskiskúta
á Miðnesi. Tuttugasta seftember gerði skaðaveður víða um land. 1 því
veðri druknuðu í Arnarfirði 18 menn, en 16 úr Selárdalnum. Þilbátur
fðrst úr Siglufirði á leið til Akureirar með 5 mönnum. Þrjú skip sleit
upp á ísafirði og eitt í Patreksfirði og skemdust. Kaupfar frá ísafirði
hrefti veðrið á Önundarfirði, en komst þð til ísafjarðar með rifin segl og
brotnar rár. Á Akureiri rak 15 þilskip á land og brotnuðu öll nokkuð
og báta rak upp á Oddeiri og braut í spðn. Þrjú fiskiskip úr Færeium
rak upp á Seiðisfirði, en hið fjðrða varð að höggva möstrin. Af einu
skipinu tínduBt skipstjðri og stírimaður. Fjárflutningaskip úr Eiafirði
hrefti veðrið á leiðinni og varð að loka öllum hlerum. Kafnaði þar ifir
2000 fjár. Gufubáturinn Oddur af Eirarbakka rakst á sker á Skerjafirði
seint í október, en þó mátti gera við hann, svo að hann var talinn
haffær.
Sóttir gengu fremur miklar bér á landi þetta árið. Á ísafirði og í
djúpinu illkinjað magakvef, lungnabólga og taugaveiki og dóu margir.
Inflúensa gekk viða um landið, eu ekki var hún mannskæð. Flekkusótt
kom upp nálægt Reikjavík í Lónakoti. Voru mestar likur til að hún
hefði þangað borist sunnan úr Höfnum, þótt hennar irði þar ekki vart fir
en síðar. Barst sött þessi svo til Reikjavíkur. Gerði héraðsiæknir þar
alt til að stomma stigu firir henni og tók sérstakt hús til að geima sjúk-
linga í. En þrátt firir það hélst þó sóttin þar árið út. Nokkrir dóu, en