Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1900, Page 37

Skírnir - 01.01.1900, Page 37
Sínaveldis-þáttur. 37 um, hvað i fjarlægð gerist. Embættismenn allir hafa lág laun, on safna þ6 auð fjár, því að mútur og ails konar fjárplógshrögð eru svo altíð með- al embættlinga þar eins og drit í fuglabjargi. Nú var það ein af fyrstu fyrirskipunum keisarans 1878, er hann hóf endurbótastefnu sína, að heimta skýrslur og reikninga af öllum embættismönnum, og láta hirta mánaðar- lega reikningsskil fyrir öllu ríkisfé. Jafnframt leyfði haun hverjum þegni sínum að koma fram með nýjar tillögur til sín til endurbóta og færa sér hænarskrár, og kvartanir yfir því er aflaga færi. Það var auðsætt em- bættiestéttinni, að ef þessum nýjungum yrði framgengt, þá yrði bráður endi á því, að þeir gætu haft undir sig rangfengið fé. Öll velferð hennar var hér í hættu. Hins var keisaraekkjan andstæð allri nýbreytni; hún hafði stuðst við afturhaldsflokkinn, þá ráðgjafa, sem keisarinn hafði rekið frá sér; og svo bættist það við, að keisarinn og ráðaneyti hans var að hugsa um að taka hana sjálfa og flytja hana í fjarlægð eitthvað út á landsenda og láta gæta hennar þar, svo að hún gerði ekkert ilt af sér. Ekkert var því eðlilegra en að hún og hennar. fylgismenn slægju sér saman við embættisstétt landsins, til að eyða allri: nýbreytni keisarans. Hún tók því það ráð að verða fyrri til að taka hann höndum. En endur- hætur keisarans höfðu fallið alþýðu einkar-vel í geð, og varð því talBverð- ur kurr víðsvegar um ríkið, er menn fréttu aðfarir, keisara-ekkju og sáu allar endurhætur koisara úr lögum numdar, en ráðgjafa hans drepna eða flýja úr landi til að forða sér. Hér varð því eitthvað að gera til að sefa alþýðu eða beina hug hennar í aðra átt. Menn vóru því fengnir til að stofna þjóðernisfélög um alt land, eða öllu heldur, menn notuðu þeBSÍ fé- lög, sem höfðu verið til um nokkut ár, og létu það berast út, að nú ætlaði stjórnin að hætta að láta norðurálfu-þjóðir buga sig; engin ný lönd yrðu af hendi látin til útlendinga framar, en alla ina „útlendu djöfla" skyldi reka i sjóinn. Yara-konungum var boðið, að reisa þegar rönd við hverri kröfn af útlendinga hendi, og bíða ekki úrskurðar frá Peking, heldur taka þegar til vopna, ef á þyrfti að halda. Þetta var í ársbyrjun 1900. En alla tíð síðan drottning tók við völdum aftur síðast (1898) hafði stjórnin látið allar vopnasmiðjur keppast við í ákafa að smíða vopn og hergögn, hafði og keypt að vopnaforða eftir megni og æft her sinn undir tilsögn þýzkra manna og rúsneskra. En stórveldin höfðu horft á alt þetta aðgerðalaus og skorti þó eigi að ensk blöð þar eystra bentu á, hvað um væri að vera. Keisara-ekkjan hélt áfram að láta lífláta æ fleiri og fleiri af þeim sem fylgi höfðu veitt endurbótum koisarans. Þar höfðu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.