Skírnir - 01.04.1914, Blaðsíða 27
Unt'a fólkið og atvimmvegir landsins. 139
þingi og 8tjórnin sem hefir komið hér á fót togara-útgerð-
inni? Hún bannaði sjómönnunum að skifta við útlendu
togarana og sektaði þá ef því varð komið við, en sjó-
mennirnir hlýddu þessu miður vel, kyntust útlendu sjó-
mönnunum, lærðu veiðiaðferðina og tóku síðan höndum
saman við dugnaðarmenn í landi til þess að eignast sjálfir
skip. Stjórnin hirti auðvitað útflutningsgjald, farmgjald
og aðra skatta. — Þess munu yfirleitt fá dæmi, en nokk-
ur þó, að stjórn eða þing skapi heilbrigða, öfluga at-
vinnuvegi, nema ef telja skal embætti og hermensku. Eg
held að rétt sé að gjöra sér þetta ljóst. Það sýnir að
m j ö g m i k i 1 s er ekki að vænta af þingi og stjórn í
þessum efnum, þótt það sé almenn skoðun hér á landi.
Vér getum ekki varpað allri áhyggjunni á þingið.
Arðvœnlegustu Að svo miklu leyti sem þing og stjórn
írœðin. getur látið til sín taka í atvinnumálum,
þá veltur alt á því að geta greint þau
atriðin frá, sem mestar hafa framtiðarhorfur, leggja alla
. áherzluna á þau og greiða eftir megni fyrir vexti þeirra og
viðgangi. Góð stjórn þarf helzt að hafa meira en Heimdallar
heyrn, svo að hún heyri ekki eingöngu hvar grasið vex,
heldur hvar það ætlar að vaxa, sjái hvar toppbrum at-
vinnuveganna er að myndast, svo hún geti varið þau
frosti og fári. Ef t. d. þing og stjórn hefði strax rent
grun í þýðingu og framtíð togaraútvegsins fyrir oss, þá
hefðu eflaust fyrstu afskiftin af togurunum orðið nokkuð
á annan veg. Sumum er gefin óvenjuleg glöggskygni í
þessa átt, en flestum verður staðgóð þekking vissasta leið-
beiningin, og það er engin furða þótt hún sé af skornum
skamti hjá stjórnmálamönnum vorum, því að stjórnmála-
störfin eru oftast höfð í hjáverkum.
Eg held vér fáum tæplega góða og gilda stefnuskrá í
innanlandsmálum fyr en einhver dugnaðarmaður vinnur
að því til langframa og með óskiftum hug að rannsaka
þau og framtíðarhorfur þeirra.
Vér höfum ekki úr öðrum atvinnuvegum að spila,