Skírnir - 01.12.1916, Qupperneq 66
402
Nýjar uppgötvanir um mannsröddina.
(Skirnsr
hjá 1. og 2. aðalflokki með heitum hljóiublæ, enníremur
hjá 3. aðalíiokki). Ef myndinni er snúið vi®, verður
þrýstingur frá baki til beggja hliða að míðlínunni fyrir
neðan nafia (lyriskur hljómblær hjá 1. og 2. aðalfiokki
með heitum hljómblæ, ennfremur hjá 3. aðalflokki).
16. mynd loks, er einnig á að sýna þvermál bolsins
að neðan, hefir þau áhrif, að vöðvadráttur verður frá
bakinu til beggja hliða (dramatiskur hljómblær hjá 1. og
2. aðalflokki með köldum hljómblæ, en lyriskur, ef mvnd-
inni er snúið við).
Þegar fengist er við þessar tilraunir, er áríðandE
mjög, að áhrif myndanna á tilraunamanninn verði sem
mest; Sievers hefir því látið gera myndir þessar úr málm-
þráðum, er gljáir á, og notar undirlag úr dökku eða
svörtu efni, svo að ljósáhrifin verði sem mest. Yrðu ljós-
áhrifin sterkari, ef tilraunirnar færu fram í myrkri og
myndirnar yrðu sýndar af ljósvél, eins og G. Björnson
landlæknir hefir stungið upp á við mig; óviðkomandi
áhrifum yrði þá bygt út um leið, en ekki hefi eg enn
haft tækifæri til að reyna þetta.
Gæta ber þess mjög, er fengist er við tilraunir með
þessum myndum (þær, er Sievers notar, eru hér um bil
þrefalt stærri en hér eru sýndar, úr messingþræði hér
um bil 2 mm á þykt) að varast allan reiging og sperr-
ing. Bezt er að standa uppréttur, leggja mynd þá eða
myndir, er menn vilja reyna, á lesmálið og láta hand-
leggina lafa eða þá halda myndinni (myndunum) með
fingrunum á þeim stað, er merktur er x á myndunum
hér. Eins ber að gæta að, hvernig fótunum er snúið;.
ef menn standa gleitt, slaknar kviðbeinn hjá mörgum (og
röddin fær þá heitan hljómblæ), en ef menn setja fæt-
urna saman, herpist kviðbeinn hjá mörgum (og röddin
fær þá kaldan hljómblæ).
Enn er miklum vandkvæðum bundið að geta ákveðið,
hverjar myndir hæfa í hvert skifti, hvaða hljómblær á
við eitthvert kvæði; t. d. þeir, sem óvanir eru, verða oft
að reyna flestar myndirnar og komast þó oft ekki að-