Skírnir - 01.12.1916, Side 84
420
Grátur.
[Skírnir
hafróti. En þá kom einnig liknin bráðlega. Eg var al-
drei lengi í einu í hatursmyrkrinu, því drottinn beygði sig
niður að mér, og tók mig í fang sér, — eins og hún móðir
mín forðum. Hvað eftir annað, hefir hann borið mig inn
í hátíðasal ríkis síns; aftur og aftur hefir hann látið mig
skynja dásemdir, réttlæti og leyndardóma tilverunnar,
hjálpað mér til að skilja, að margur átti um sárara að
binda en eg, og gefið mér að bergja á bikar samúðar og
kærleika. Eg hefi margsinnis fundið anda hans lauga sál
mína eins og hún móðir mín laugaði líkama minn, þegar
eg var litið barn.
Aftur og aftur hefi eg fundið, að eg hlaut, að mér
var lífsnauðsyn, að bera bróðurhug til alls og allra — líka
til þeirra, er eitthvað höfðu gert á hluta minn. Og þá
hefir orðið bjart í sál minni, og hugur minn eins og skrúð-
mikið skógartré.--------------Eg sagði áðan, að vonbrigði
og gleði, gremja og tilhlökkun, hefðu skift öllu lífi mínu
milli sín. Það er satt — að undanskildum seinustu árun-
um. Þau hafa borið mér einskæra hugarrósemi og frið,
og ekkert annað. Og eg held, að orsökin sé sú, að þessi
seinustu ár hefi eg ekki borið kala til nokkurs manns, eg
hefi betur og betur getað vanið mig af því, að sjá ofsjón-
um yfir annara manna velgengni. Enda hefi eg komist
að raun um, að erfiðleikar eru mér engu síður nauðsyn-
legir, heldur en velgengni, rétt eins og regnið er jurtinni
jafn nauðsynlegt og sólargeislinn. Þessvegna er eg ánægð
með hluta þann er mér hlotnast af borði tilverunnar og
óska ekki annars en þess, er eg hefi, eða get veitt mér,
— án þess að stjaka við öðrum.-------------------Máltækið
segir, að »hvað elski sér líkt«. Það er líklega vegna þess,
hve mér var grátgjarnt fram eftir allri æfi, að tiltölulega
margir koma til mín, þegar eitthvað amar að þeim.
Þegar dóttur-börnunum minum er eittthvað þungt niðri
fyrir koma þau til mín, og bera upp fyrir mér kveinstafi
sína. Þá verð eg að segja þeim sögur, sömu sögurnar aft-
ur og aftur. Þeim er sama um það, aðeins ef eg segi
«itthvað og strýk þeim um vangann.