Ársritið Gestur Vestfirðingur - 01.01.1850, Side 18

Ársritið Gestur Vestfirðingur - 01.01.1850, Side 18
18 þær flytja lítils háttar af vörum á vorin; og þegar talin eru 7 skip í Barftastrandarsýslu, j)á eru í þeirri tölu 2, sem fara milli landa frá Bildudal. Aptur er einn þilfarsbátur í Strandasýslu, keyptur úr Barða- strandarsýslu. Aflabrögð með ftessum skipum urðu í sumar betri en næstu árin á undan, og jtó ekki að því skapi, sem veðurlagið virtist hagstæðara, en bin fyrri sumur. Jafnmikill hákarlafeingur, og áður var, er miklu sjaldgæfari, og tregt veitir og skipum þessum að sameina þorskleitir og bákarlaveiðarnar á sama skipi, nema skipverjar sé því alúðarfyllri í viðburðum. Af fiskiskútum þeim, er úti var haldið allan aflabragða-tímann, varð aflinn í Snæfellsness. 50 til 110 tunnur lifrar, þegar 100 af þorski telst til jafnaðar inóti lifrartunnu, sem þó þetta ár nær eingan veginn heim sökum ens lága verðs á saltfisk- inum, en dýrleika á saltinu; i Barðastrandarsýslu frá 60 til 130 tunnur; í fsafjarðars. frá 30 til 170 tunnur; í Strandas. frá 54 til 78 tunnur. En þeg- ar tekið er meðaltal alls aflans i fjórðúngi þessum, verður hann nær hæfis 86 tunnur, og munu allir þeir eigendur skaðlausiraf útveg þessum, er náð bafa þeim afla, en það eru ei nema 11 skip af 24, Samt sem áður er það auðsætt, að bjargræðisvegur þessi eyk- ur töluvert sölueyri Vestfirðinga, þó eigendur sjálfir bafi fæstir auðgazt af honum bíngað til, og fer það að líkindum, jió svo sé, meðan aflinn er svo mis- tækur, skipamissirinn svo talsverður, og verzlunin svo þraung. Menn geta gjört ráö fyrir, að afliallra þessara skipa, þegar saltfisks skp. borgaðist með 15 rbd., og lýsistunnan með 18rbd., bafi orðið nálægt 24,100 rbd. og munu nokkrar sveitir þurfa að leggja saman, til að verzla svo miklum kaupeyri árlega. Vestfirðínga vantar að vita, hvernig aðrir ijórð- úngsmenn í landinu liaga þilskipa - útvegum sínum,

x

Ársritið Gestur Vestfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársritið Gestur Vestfirðingur
https://timarit.is/publication/70

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.