Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Side 19

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Side 19
SAMGÖNGUR. 21 * viktartakmarki pví, sem sett er í auglýsingu 26. 3ept. 1872 (5. gr.) fyrir prentað mál, er senda á millum hins danska og íslenslca póstumdæmis, skal frá 1. júlí breytt úr 50 kvintum í 4 punds>. Sömuleiðis «skal burðargjaldi pví, er ákveðið er í auglýsingu 10. febr. 1876 (2. gr.) fyrir prentað mál í kross- bandi eða einbrugðnu bandi, er fara millum fyrnefndra umdæma, frá greindum degi breytt í 5 au. fyrir bver 10 kvint, ef frí- merki eru vioböfð*. Til veggerða hefir allmiklu fé verið varið petta ár, enn mest er pað í viðbót við fjárframlögur til vegbóta, er áður hefir verið byrjað á. pannig er um pær 9391 kr. 89 au., er veittar hafa verið petta ár til framhalds veggerða og vegbóta á mörgum peim fjallvegum, er nefndir eru í Er. f. á. bls. 10 (á Vaðlaheiði og Vestdalsheiði: 3289 kr., í Svínahrauni enn að nýju 5162 kr. 2 au., á Grindaskörðum 100 kr. og á Mosfellsheiði 840 kr. 87 au.). Auk pess var 111 kr. varið til aðgerðar á öksna- dalsheiðarfjallveginum Eyjafjarðarmegin og 138 kr. upp í kostn- að við bráðabirgðaraðgerðir á fjallvegunum yfir öksnadalsheiði og Vatnsskarð Skagafjarðarsýslumegin. — Til sýsluvega og vegbóta á aðalpóstleiðum vóru veittar alls 7883 kr. 17 au. Alls verður petta fé 17524 kr. 6 au. og lagt við fjárveitingu árið áður 40120 kr. 61 ey. Af öðrum veggerðum skal að eins nefna veg pann, er bæjarstjórn Reykjavíkur byrjaði á að láta gera milli Reykja- víkur og Laugarneslauganna; hann náði frá Reykjavík að Reyðará um áramótin (600 faðma). — pess má geta, að í fjár- lögunum var aptur veitt fé til að fá vegfróðan mann frá út- löndum hingað til lands, eins og gert var 1883. Ekki komst hið margrædda mál um brú á Ölfasá neitt áleiðis petta ár. J>að komst pó inn á ping, enn par var sami andróður gegn pví og áður, ekki samt svo að skilja, að mót- mælendur pess máls, sem mest var mark að, pættust ekki vilja sinna málinu í sjálfu sér, heldur eins og pað lá fyrir; pótti peim pað helst að, að málið væri illa undirbúið eða óundir- búið, svo að ómögulegt væri að veita nokkra ákveðna fjárupp- hæð til pess; alls óvíst væri, að brúarstæðið sjálft væri óyggj- andi, og hlutaðeigandi sýslufélög hefðu ekki sýnt aðra alvöru í pessu máli, enn að heimta, að brúin væri kostuð af landsfé að öllu leyti.

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.