Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Síða 24

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Síða 24
26 ÁKFERÐI. mótin júlí og ágúst, einkum norðan- og austanlands. Tún spruttu svo illa, að rarla fékkst meira enn helmingur af þeim móts Tið meðalár og sumstaðar varla pað, einkum á vesturlandi. Engjar spruttu betur, enda vóru pær að pví fram til septem- berbyrjunar; aflaðist úthey pví næstum eins og ímeðalári víð- asthvar. Nýting varð allvíðast dágóð, pó hraktist hey nokkuð 1 rigningum víða upp á síðkastið, og sumstaðar urðu hey úti (t. a. m. um 100 hestar á Grenjaðarstöðum). Menn héldu slætti áfram svo lengi sem mögulegt var fyrir frosti ogillviðri; pannig var sumstaðar á austurlandi stör slegin á ís. í sambandi við nýtinguna má geta heysíirsunarinnar. Vegna ópurkasamra sumra, sem svo opt eru hér á landi og svo opt ónýta eða skemma að mun heyafla manna, hafa hugir manna einkum á síðari árum beinst að pví, að geta á sem heppilegastan hátt aflað sér heyforða, án pess að vera algerlega háðir veðráttunni, og geta orðið lausari við pað fjártjón og tímaspilli, sem ópurkarnir valda bændum. Menn hafa vænt góðs af búfræðingum vorum í pessu efni og sívaksandi bún- aðarpekkingu, og séð, að heypurkunaraðferðin var ekki einhlít. pví var pað, að Torfi Bjarnason, búnaðarskólastjóri í ólafsdal, skrifaði ritgerð í Andvara 1884 um súrhey og áburð, og var henni vel tekið af landsmönnum. Til pess að láta ekki par við lenda, skrifaði Torfi áskorun til landsmanna petta ár og bað pá fáu, sem áður höfðu reynt súrheysverkun, að gefa skýrslur um hana, og birta í blaði, helst fyrir apríl byrjun, og tók hann jafnframt fram, hver atriði skýrslurnar pyrftu sérstaklega að til- greina, um leið og pær gætu um, hvort súrheysverkunin hefði tekist vel eða illa. Menn tóku pessu vel, og birtu allmargir í blöðunum J>jóðólfi og ísafold tilraunir sínar, sem höfðu heppnast misjafnlega, enn gátu pó jafnframt orðið til mikillar leiðbeiningar, svo að ýmsir fleiri urðu til að reyna pessa hey- verkunaraðferð, pótt ekki pyrfti sérstaklega á henni að halda petta sumar víðasthvar. Sem dæmi pess, að áhugi manna hefir aukist í pessu efni, má nefna pað, að Yestmanneyingar vörðu búnaðarstyrk sínum úr landssjóði (60 kr.), með sampykki landshöfðingja og eptir tillögum sýslunefndar sinnar, til pess að kenna almenningi par á eyjunum súrheysverkun. Heybirgðir manna reyndust almennt furðugóðar í svo

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.