Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Qupperneq 30

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Qupperneq 30
32 BJARGRÆÐISVEGIR sjóði átti það við aðalfund p. á. 17360 kr. 67 au., enda safnar pað fyrir nokkru af þeim styrk, er pað fær úr landssjóði. |>etta sumar var kaldið áfram og lokið að leggja undir- stöðuna undir allan flóðgarðinn í Safamýri; vóru hlaðnir 810 faðmar (í viðbót við 1515 faðma, er áður vóru komnir); er garðurinn hér um bil 1—5 álnir á hæð, 3—12 álnir á hreidd að neðan, enn 2 að ofan. Kostnaðurinn við hann er orðinn alls 6750 kr. 33 au. (par af úr landssjóði 2950 kr. 33 au.). Svo er nú eptir að skera mýrina fram, og þykir það eins nauð- synlegt, til þess að hæta liana að fullu. Hún er 400 dagsiáttur og gefur af sér að minnsta kosti 30—40000 hesta af heyi, enda sækir mestallur Holtamannahreppur þangað allt sitt hey, og þar að auki ýmsir af Eangárvöllum og Landi. Má telja þessa jarðabót þarfa og nauðsynlega því fremur, sem hún er í nánd við og getur komið að gagni þeim sveitum, er hafa verið svo hart leiknar nú um tíma af vikursandfoki: Landsveit og Rang- árvöllum; í Landsveit eru þegar gjöreyddar 11 eða 12 jarðir, þótt reyndar sumar þeirra hafi verið byggðar upp aptur í bit- haga og einar 17 jarðir eru að gjöreyðast; yfir höfuð lítur svo út sem öll Landsveit leggist í eyði innan skamms. A Rang- árvöllum eyddust 2 eða 3 jarðir í mikla sandfokinu í janúar og febrúar um veturinn, sem neínt er hér að framan, og þar heldur eyðingunni áfram með líkum útlitum Úr landshagsskýrslunum má geta þess hér, að árið 1881 var nautpeningur á landinu alls talinn 20923 (83 færri enn árið áður), sauðfénaður 524516, og hross 38627 (hvorttveggja heldur fleira enn árið á undan, enda sauðfé aldrei jafnmargt áður). J>ess nýmælis er vert að geta, að sýslunefndirnar í |>ing- eyjarsýslu sendu mann til Englands, einkum Bradford á Eng- landi, þar sem mestöll íslensk ull er unnin, til þess að fá vit- neskju um, hverjar væru orsakirnar til hinnar sífelldu verðlækk- unar á íslenskri ull, og hvað gjöra mætti til þess að fá hana betur borgaða; fengu þær Kristján Jónasson frá Narfastöðum í Reykjadal til fararinnar, og var hún kostuð að þriðjungi af sýslusjóðum pingeyinga, enn að 2/a (600 kr.) af fé því, sem

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.