Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Síða 32

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Síða 32
34 BJARGRÆÐISVEGIR. aflað. petta ár gat félagið að eins búið sig undir störf til næsta árs. Annars brást garðyrkja petta sumar víðastbvar með öllu sökum kulda og mikilla frosta; pannig mátti heita að frostnæt- urnar milli 11. og 12. og 13. ágúst dæi allur garðávökstur út um allt suðurland. Hinar miklu og margvíslegu ræktunartil- raunir Schierbecks landlæknis í Reykjavík hafa tekist miður enn vænta mátti, sökum kuldanna, enn gefa þó engu að síður góðar vonir um að margt megi rækta hér, sem áður hefir eigi reynt verið, og gæti orðið til stórgagns bæði til manneldis og skepnufóðurs. Heiðursgjafir úr styrktarsjóbi Kristjáns konungs IX. veitti lands- höfðingi þetta ár þeira Lopti bónda Gíslasyni á Vatnsnesi i Árnessýslu og Finni Finnsyni, bónda á Finnsmörk i Húnavatnssýslu, 160 kr. hvorum, fyrir íramúrskarandi dugnað í landbúnaði pessi Loptur fékk og miklu fágætari heiðurslaun þetta ár fyrir jarðabætur á ábýli sínu, þar sem hann fékk vandaðan steinhring úr gulli að gjöf frá landsdrottni slnum. Iðnaði landsmanna miðai lítið áfram; pó má petta ár segja frá verulegum og lofsverðum tilraunum til eflingar og framfara í honum, par sem eru ullarvinnuvélar pær, er Magnús pórarinsson á Halldórsstöðum í pingeyjarsýslu fékk hingað til lands árið áðui. pær vóru 2: kembivél, er kostaði alls um 1700 kr. og gengur fyrir vatnsafli ('U hestafls), og handspuna- vél, er kostaði 300 kr. og gengur hún fyrir eins manns hand- afli. Tilraunir hans heppnuðust vel; í kembivélinni, sem kembir og lopar ullina undir spunavélina, kembdi hann um veturinn (1884—85) 1800 pund ullar, enn spunavélin vann 400 pund þráðar; pað, sem honum pótti mest ábótavant, var kemb- ingin, með pví að ein vél nægði ekki, heldur parf ullin að ganga gegnum 4 vélar, til pess að vera svo vel kembd, sem pörf er á. pessi kembivél gat pó með pessu lagi unnið 20 pund á dag af hreinni og vel undirbúinni ull, enn spuna- vélin spunnið 8—10 pund af meðalfínum fræði; enn báðar hefðu pær getað unnið meir með fyllri og betri útbúnaði. |>að var hvorttveggja, að petta var pörf og góð tilraun, enda lét og sýslunefnd Suðurpingeyinga pað ásannast, er hún gekkst fyrir pví að veita 1800 kr. lán þessum manni, sém hefir sjálfur

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.