Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Blaðsíða 39
SLYSFARIR OG SKAÐAR.
41
maður einn frá Siglunesi nyrðra skaut annan vinnumann á
sama bæ til bana, óviljandi pó. 21. fór bóndi frá Brúnavík
eystra á heimleið úr Borgarfirði í sjóinn fram af bömrum og
drukknaði. I maí (18.) drukknaði Asmundur bóndi Sæmundsson
frá Flögu í Jiistilfirði í lendingu á heimleið úr kaupstaðarferð.
í júní (11.) fórst bátur með 6 mönnum frá Nyjabæ á Sel-
tjarnarnesi; 2 peirra náðust pó lifandi, enn annar peirra létst
samdægurs. 19. varð bóndi einn úti á Fjarðarheiði eystra;
hafði lagt upp á bana ölvaður með 2 öðrum eins, enn peir svo
yfirgefið hann eða týnt honum. í ágúst (1.) drukknaði
bóndi einn í Hofsá í Skagafirði. 9. drukknuðu 2 menn af
ferju á Lagarfljóti; hafði hún verið hlaðin mjög, enn stórveður
á. 16. drukknaði Bjarni bókbindari (Skúlason læknis) Thor-
arensen í Markarfljóti; var á skemmtiferð með 10 öðrum, á
heimleið af pórsmörk, enn reið á undan ógætilega í ófæru.
I september (14.) iétst maður voveiflega í Reykjavík af steins-
höggi. I nóvember (24.) vildi pað slys til í Reykjavík, að
ferðamaður að austan, Gottskálk bóndi Einarsson frá Sogni
1 Olfusi, saup á karbólsýruflösku hjá kunningja sínum í mis-
gripum fyrir brennivínsflösku og létst af pví. í desember (4.)
varð bóndi einn úti á Hrútafjarðarhálsi, og rétt fyrir jólin ann-
ar ungur bóndi, milli Keflavíkur og Grindavíkur, ölvaður, 15.
fórst bátur með 3 mönnum á heimleið frá Mjóafirði til ísafjarð-
ar. IJm veturinn hrapaði maður úr Hergilsey fram af hörnr-
um skammt fyrir innan Geirseyrarkaupstað og beið bana af.
TJm sumarið hrapaði og maður til bana úr Látrabjargi við
fuglveiðar; báðir vóru peir á unga aldri. — Nokkrar fleiri slys-
farir kunna að hafa orðið, sem oss er eigi kunnugt um.
Slys og skaðar af eldsvoða vóru pó nokkrir petta ár. 20.
jan. kviknaði í sölubúð (Bráðræði) einni í Reykjavík, enn varð
slökkt; húsið skemmdist pó mjög og vörur brunnu að mun.
12. mars kviknaði og í húsi pví í Reykjavik, er hin nýja
prentsmiðja Sigmundar Guðmundssonar var í; í húsinu varð
slökkt, enn öll prentáhöld ónýttust af eldganginum. Sigmund-
ur fékk sér ný og betri prentáhöld pegar aptur um sumarið,
pvíað hin eldri höfðu verið vel vátryggð. 13. mars brann að