Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Blaðsíða 40
42
SLYSFARIR OG SKAÐAR.
köldum kolum baðstofan á Yíkingsstöðum í Vallanessókn með
öllum peim munum, er í yóru; par á meðal geysimiklu af
smíðatólum, er bóndinn, Sölfi smiður Jónsson, átti. I septem-
ber brann og bær og eldhús á Eyri við Skutulsfjörð með öllu,
er í var. 3. okt. brann íbúðarhús á Auðnum á Yatnsleysu-
strönd, og brann par inni eigandinn Magnús forkelsson, mesti
dugnaðar- og merkisbóndi; annað fólk bjargaðist, enn fáum
munum varð bjargað. Orsakir pessara eldsvoða eru óvísar.
VIII. Heilsufar og lát heldra fólks.
Heilsufar var gott yfir höfuð að tala petta ár. Engar
sóttir gengu, er höfðu nokkurn teljandi manndauða 1 för með
sér.
Lát heldra íólks. Af embættismönnum í prestastétt lét-
ust 6; peir vóru:
Arngrímur Bjarnason (prests Arngrímssonar á Melum í
Borgarfirði), fæddur á Melum 7. júní 1804; útskrifaðist frá
Bessastöðum 1825, enn var loks settur prestur á Stað í Súg-
andafirði 1849; ekki var honum pó veitt pað brauð fyr enn
1852; par var hann til 1863, er honum var veitt Álfta-
mýri, og svo fékk hann loks Brjámslæk 1881, og 1884 fékk
hann lausn frá prestskap. Hann létst 13. apríl.
Hákon (Jónsson sýslumanns) Espólín, fæddur í jjingnesi
í Borgarfirði 1801; útskrifaðist 1821, og bjó svo sem bóndi á
Ystu-Grund í Flugumýrarsókn um nokkur ár; vígðist (19. maí)
1834 sem aðstoðarprestur að Stærra-Árskógi og fékk veitingu
fyrir pví brauði 1838, og hélt pví til 1861, er honum var
veittur Kolfreyjustaður; par var hann til 1874, er hann fékk
lausn frá prestskap, og bjó síðan á Brimnesi í Fáskrúðsfirði til
dauðadags. Séra Hákon var vel látinn og góður kennimaður;
hann var talinn manna mestur veksti og sterkastur á íslandi.
Jón pórðarson (síðast prests að Mosfelli í Mosfellssveit
Árnasonar), prófastur í Húnavatnssýslu og prestur að Auðkúlu
frá pví 1856, er hann vígðist pangað; fæddur 3. okt, 1826,