Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Qupperneq 43
HEILSUFAR OG LÁT HELDRA FÓLKS.
45
fjarðarnesi í Strandasýslu), alþingismaður, dbrm. og bóndi á
pingevrum í Húnavatnssýslu, fæddur 23. júlí 1809; bjó fyrst
í Kollafjarðarnesi, enn fluttist síðar að fingeyrum, og þar reisti
hann úr steini veglegustu bændakirkju á landinu, með miklum
kostnaði og fyrirböfn; bann var yfir böfuð mesti rausnar- og
dugnaðar-bóndi. Hann var sem þingmaður Strandamanna á
fyrsta ráðgjafarþingi voru, og síðan á þeim flestum og á öllum
löggjafarþingum vorum, optast fyrir Strandamenn. A síðasta
þingi var hann með mjög veikum burðum, enn áhuginn á
þingmálum var þó svo eldfjörugur hjá honum, jafnvel þá er
hann gat ekki staðið á fótum fyrir sjúkleik, að hann var sí-
fellt að tala um þau, og hann kvaðst jafnvel heldur láta bera
sig á þing, enn að geta ekki verið þar, þegar ganga skyldi til
atkvæða í stjórnarskrármálinu, til þess að greiða atkvæði sitt með
henni. Hann létst 15. nóv.
Filippus porsteinsson, dannebr.m., lengi bóndi á Bjólu í
Kangárvallas/slu, létst snemma í mars 84 ára gamall. Hann var
dugnaðarbóndi og máttarstoð sveitar sinnar, enda vel fjáður maður.
Páll Vigfússon (síðast prests að Ási í í’ellum, Guttorms-
sonar), cand. phil., ritstjóri blaðsins Austra; fæddur 1851, út-
skrifaður úr Beykjavíkurskóla 1873 með 1. einkunn; sigldi
sama ár til háskólans í K.höfn, enn varð að hverfa heim næsta
ár við lát föður síns, og annast bú með móður sinni; síðast
bjó hann á Hallormsstað. Hann létst úr brjóstveiki 16. maí.
Hann var rnikill framkvæmdar- og framfaramaður og einn hinn
mesti héraðshöfðingi á austurlandi.
Af merkisJwnum, er látist hafa þetta ár, vóru helstar:
Anna Margrét Bjarnardóttir (Ólsens frá pingeyrum), ekkja
Jósefs heitins Skaptasonar, héraðslæknis í Húnavatnssýslu
(f 1875). Hún var fædd í febr. 1814 og létst í febr. (14.?)
þetta ár að Hjallalandi í Yatnsdal. Hún var talin sóma- og
rausnarkona, enda miklum mannkostum búin.
Guðný Einarsdóttir (Helgasen), kona séra Sveins Skúla-
sonar í Kirkjubæ í Hróarstungu; hún var fædd 23. sept. 1828
og létst 12. nóv. í Reykjavík, þar sem hún var að leita sér
lækninga. Hún var mikilhæf rausuar- og ágætiskona.