Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Qupperneq 49
MENNTtTN OG MENNING.
51
til námspilta 200 kr. styrk á ári. Landshöfðingi veitti svo
Markúsi Bjarnasyni, skipstjóra í Beykjavík, 100 kr. til «að
byrja kennslu í sjómannafræði í Beykjavík*.
í fyrra árs fréttum (bls. 26) er drepið á sundkennslu í
Beykjavík. Sundfélagið hélt henni og áfram petta ár, og not-
uðu hana allmargir, einkum unglingspiltar, enn daufur
virtist pó áhugi manna á að færa sér hana í nyt, jafnvel pótt
nógur tími og tækifæri væri fyrir marga. Auðvitað hamlaði
reyndar nokkuð ófullkominn útbúnaður, svo sem sundlaugin
sjálf að nokkru leyti, og tjaldskrifli eitt til skýlis á bakkanum,
enn einkum pó ógreiðfær og langur vegur til aðsóknar að laug-
inni. A ógreiðfæri vegarins verður ráðin bót með veggerð
peirri, sem að framan er nefnd (bls. 21).
Menutafélög og hókmenntir. Fyrst skal minnst á bók-
menntafélagið. Beykjavíkurdeildin gaf fátt út af bókum petta
ár og bagaði féleysi, svo að alpingi hækkaði landsfjárstyrkinn
til hennar upp 1 1500 kr. á ári næsta fjárhagstímabil, par sem
hann petta ár og nokkur undanfarin var 1000 kr., enn um
leið lögbatt pingið deildina til að gefa út sýslumannaæfir Boga
Benediktssonar, er deildin hafði orðið sökum féleysis að hætta
við í miðju kafi að gefa út. |>etta ár komu frá deildinni að
eins ársbækur hennar: Fréttir frá íslandi 1884 og Tímaritið
(6. ár). Hafnardeildin gaf út eins og venjulega: Skýrslur og
reikninga fyrir 1884, og Skírni. Auk pess gaf hún út Skýrslu
um handritasafn bókmenntafélagsins, II. A bókmenntafélagið
nú eptir henni alls 1550 handrit (1217 1 Khöfn, og 333 1
Beykjavík). Svo lét og pessi deild endurprenta kvæði Stefáns
prests Ólafssonar (I. bindi).
pjóðvinafélagið gaf út margar og parfar bækur petta ár.
|>ærvóru: ársrit pess Almanakið og Andvari 11. ár með ýmsum
góðum og gagnlegum ritgerðum, t. a. m. meðal annars um veggerð
á íslandi, skýrsla frá Niels Hovdenak, peim er fenginn var hingað
til að kenna að leggja hér vegi (sjá Fr. f. á. bls. 10). Enn
fremur gaf pað út «Sparsemi» eptir Samuel Smiles, nytsama
bók og góða. Loks kostaði pað að nokkru leyti og gaf út bók,
er hét Dýravinurinn, gefin af «dýraverndunarfélagi danskra
4*