Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Síða 51
MENNTUN OG MENNING.
53
ýmsum útlendum blöðum og tímaritum, sænskum og þýskum,
af merkum vísindamönnum, og par á meðal segir próf. dr. Fr.
Zarncke í blaði sínu Lit. Centralblatt nr. 18. 1885, er gefið
er út i Leipzig á |>yskalandi, meðal annars petta um pað:
*— Bókin parf að sjálfsögðu ekki sérstaks lofs frá oss: vand-
virkni og bin djúpa pekking hins lærða höfundar er pegar
fyrir löngu kunn, og hvar sem litið er í pessa orðbók, séstnýr
vottur um pessa eiginleika hans. Enginn, sem stundar forn-
norrænu, getur verið án pessarar orðbókar, og hver, sem notar
hana, mun, eins og vér vitum af reynslu, senda höfundinum í
anda marga pakkarkveðju til hins fjarlæga eylands hans». —
pá kom og út Forníslensk málmyndalýsing eptir háskólakenn-
ara í Khöfn. dr. Ludv. F. A. Wimmer, pýdd úr dönsku af
stud. mag. Yaltý Guðmundssyni. Bókin er talin ágæt til að
efla rétta pekking á íslenskri tungu, enn pví miður pykir hún
varla^við alpýðuhæfi.
I lœJcnisfrœði má geta um: Hjálp í viðlögum, bók eptir
pýskan lækni, dr. Esmarch, íslenskaða og lagaða eptir pörfum
Islendinga af dr. J. Jónassen. Bæklingur pessi pykir ómissandi
fyrir hvert heimili að minnsta kosti, pvíað i honum eru ráð-
leggingar um, hvernig að skuli fara, pegar menn slasast, til
pess að bæta úr pví, eða haga að minnsta kosti hjálp sinni svo,
að illt verði eigi gert verra, pangað til í lækni næst, ef með
parf, og par að auki ýmsar varúðarreglur og leiðbeiningar, er
snerta viðhald á heilsu og lífi.
I skálclskap verður ekkert talið frumsamið, nema ef vera
skyldi Ljóðmæli eptir Gísla Thorarensen, fyrrum prest á Stokkseyri
(f 1874); pó pykja pau, að undanteknum fáeinum fyndnikvæðum,
ekki mikilsverð. Sömuleiðis hafa líka komið petta ár eins og
optar nokkrar ómerkilegar riddarasögur (sagan af Yillifer frækna,
af Marsilius og Rósamundu o. fl.): enn peirra er að eins getandi
til viðvörunar, pvíað pær gera ekkert annað enn spilla smekk
manna, og par á ofan eru pær laklega útgefnar. öðru máli
er að gegna um pýðingu pá, er Eiríkur Magnússon M. A.,
landi vor í Cambricíge, gaf út af einu af hinum heimsfrægu
leikritum Shaksperes: The Tempest (Stormurinn), ásamt frum-
tekstanum, með fróðleiksmiklum og góðum skýriugum, og geta
menn pví tekið miklum framförum í enskri tungu á pví að
lesa pær með tekstanum og pýðingunni, og skilið leikritið vand-
lega. Framan við pýðinguna er: «úr æfi Shaksperes», og mynd
af honum. Bæði pýðinguna og frumtekstann gaf meistari Ei-
ríkur út á eigin kostnað, og er slíkt sérstaklega nefnandi sökum
pess, að hér á landi sést bók nú varla öðruvísi útgefin enn
með landsfjárlaunum, pótt bókin gangi mjög vel út meðal al-
mennings.