Fréttir frá Íslandi - 01.01.1890, Síða 3
Löggjðf og landsstjórn. 5
an kirknasjóð, er stofna skal, neina pær purfi til viðhalds
kirkjunum og skal hver kirkja hafa sína viðskiptabók við
sjóðinn; undanpegnar eru bændakirkjur, nema kirkjuráð-
andi vilji svo vera láta.
32. Viðaukalög við lög nr. 5, 27. febr. 1880 um stjórn safn-
aðarmála og skipun sóknarnefnda og hjeraðsnefnda.
33. Lög um viðauka og breyting á pingsköpum alpingis.
34. Lög um tollgreiðslu.
11. júlí voru staðfest:
35. Lög um styrktarsjóði handa alpýðufólki. öll hjú, börn
hjá foreldrum og lausamenn og lausabonur, sem eru fullra
20 ára og ekki yfir 60 ára, skulu greiða ár hvert, karl-
maður 1 kr. og kvenmaður 30 a.
36. Lög um breytingar nokkrar á tilskipun 4. maí 1872 um
sveitarstjórn á íslandi.
Voru pá við árslokin enn óstaðfest 4 lög auk peirra, er
synjað hafði verið staðfestingar.
Reglugjörðir voru petta ár staðfestar fyrir búnaðarskólann
á Hvanneyri og á Hólum.
Samkvæmt landsreikningnum 1890 varð tekjuafgangur
102,254 kr. og hefir hann aldrei verið svo mikill síðan 1883,
er afgangs urðu útgjöldum 108,200 kr., er pað einkum að
pakka kaffi- og sykurtollinum (petta ár 120,226 kr.) og hækk-
uðum tóbakstolli (nær 44,000 kr.); tekjur af póstferðum urðu
og með mesta móti eða full 30,000 kr.
Deilurnar um landsbankann rjenuðu nokkuð petta árið, er
á leið, enda pykir nú og fullsannað, að landinu sje af peirri
stofnun engin hætta búin — síður en svo. Veltufje bankans
var um árslokin orðið töluvert á aðra miljón króna og vara-
sjóður hans 120,800 kr. I sjóði voru um árslokin vaxtalausar
um 179,000 kr., í útlánum um 680,000 kr. og í konungleg-
um skuldabrjefum 253,000 kr.
í söfnunarsjóð íslands voru í árslokin komnar rúroar
50,000 kr.
Af dómum skal hjer að eins fátt eitt greint. Landsyfir-
dómurinn dæmdi (10. febr.) Jóhannes nokkurn Magnússon úr
l*