Fréttir frá Íslandi - 01.01.1890, Page 13
Atvinnuvegír. 15
kotnin á fót, ljetu vinna ýmislegt til hagsælda; er svo að sjá
af sk/rslum þeim, sem birzt hafa, að einna mest hafi unnið
verið að túnasljettun, enda mun sú grein jarðræktarinnar víð-
ast reynast óbrigðulust. Til eflingar landbúnaðinum var varið
18,500 kr. af landsfje. Búnaðarfjelag suðuramtsins hjelt og á
sinn kostnað nokkra búfræðinga til að ferðast um sveitir sunn-
an lands og leiðbeina bændum, lagði enda nokkurt fje fram
par að auki til ýmissa fyrirtækja, svo sem vatnsveitinga á sanda
milli Skaptár og Geirlandsár í Skaptafellssýslu. Af fjenaðar-
sýningum peim, sem í ráði var að halda sunnan lands um
sama leyti sem markaðir stæðu um haustið, varð eigi sökum
ónógs undirbúnings og óhentugs tíðarfars. Fjársala varð með
langmesta móti um haustið; var gizkað á, að um 75,000 fjár
hefði verið sent lifandi af landi burt, til Englands; voru fjár-
kaupmenn 3 eius og að undanförnu og pöntuuarfjelögin að
auki; aptur á móti var mjög fáu fje slátrað við verzlanir hjer
á landi, varla öðru en úrgaugi, er hinir vildu eigi hafa.
Fiskiveiðcir heppnuðust hvergi nærri vel, urðu mjög svo
misjafnar sem opt vill við brenna. Aflinn á vetrarvertíðinni
við Faxaflóa var mjög rýr, 2—300 hlutir á Suðurnesjum og
enn minni á Innuesjum, en vorvertíðarafli pví nær enginn;-
um haustið varð sjaldan róið fyrir gæftaleysi, enda lítill íiskur
fyrir. f>essu líkur var aflinn undir Jökli og á Vestfjörðum, á
norðurlandi aflalaust að kalla mátti allt árið, nema lítilshátt-
ar hlaup af síld á Eyjafirði um vorið og síðar um sumarið
fiskafli nokkur á Skagafirði lítinn tíma og í Þingeyjarsýslu.
L Austfjörðum mátti heita góður afli meiri hluta ársins; á
Vopnafirði var mokíiski allt sumarið, bæði af síld og porski.
1 verstöðunum í Arnessýslu varð og dágóður afli samtals: á
Loptsstöðum 437 -827, Stokkseyri 138—896 og á Eyrarbakka
254—890 í hlut á vetrarvertíðinni og á vorvertíðinni var par
líkur afli, en haustafli mjög rýr. Júlskipaafli varð mikill hjá
peim, sem hann stunda: við Faxaflóa 20—40 púsundir og á
Vestljörðum 14—30 púsundir af porski á skip og 2—300
tunnur á skip af hákarlslifur; á norðurlandi varð og pilskipa-
aflinn pessu svipaður og pó heldur minni.