Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Side 1

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Side 1
Rannsókn sögustaða í vesturhluta Húnavatnssýslu sumarið 1894. Bptir Brynjúlf Jónsson. ------- Húnavatnsþing, einkum vesturhluta þess, má telja einhvern söguríkasta hluta landsins, þar eð því tilheyra eigi færri en 8 sögur, að því leyti að höfuðmenn þeirra sagna eru Húnvetning- ar. Það eru: Vatnsdœla, Hallfreðarsaga, Finnbogasaga, Þórðar- saga hreðu, Kormalcssaga, Grettla, Reiðarvígasögubrotið og Banda- mannasaga. Auk þess kemur Landnáma þar við á sínum stöð- um sem annarsstaðar. Mætti því líklegt þykja, að hjer væri mikill fjöldi sögustaða; en svo er þó ekki. Að Vatnsdalnum und- anskildum eru sögustaðir þar tiltölulega fáir. En til þess er sú orsök, að mestur hluti þeirra viðburða, sem sögurnar — aðrar en Vatnsdæla — segja frá, hefir farið fram utanhjeraðs. Jeg skoðaði þar sögustaði sumarið 1894, og aðgætti hversu þeirkoma heim við sögurnar. Skal hjer skýrt frá árangri þeirra rannsókna með samanburði við hverja sögu fyrir sig. I. Landnáma. Hringstaðir. 3. P. 1. k. «Haraldr hringr maðr ættstórr. Hann kom skipi sínu í Vestrhóp, ok sat hinn fyrsta vetr þar nær er hann hafði lent ok nú heita Hringstaðir. Hann nam Vatnsnes allt utan til Ambáttarár fur vestan en fur austan inn til Þverár ok . . . bjó á Hólum». Hringstaðir halda enn nafni sínu, þeir eru næstum andspænis Vesturhópshólum í hlíðinni milli 1

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.