Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Blaðsíða 22

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Blaðsíða 22
„Flosatraðir“ og þingfararvegur Þjórsdæla. ----SN-- Fyrir austan túnið i Bræðratungu er raýrarsund, en fyrir austan sundið liggur móaholt austur að Hvitá. Austan í því er gráleitur grjótmelur við ána, er heitir Grámelur. Hjá Grámel var lengi vað á ánni, en lagðist niður snemma á þessari öld, er Guðmundur hreppstjóri Bergsteinsson frá Hlíð í Gnúpverjahrepp fórst þar i sandbleytu. Siðan hafa menn eingöngu notað vaðið á Kópsvatnseyrum, sem er litlu ofar. Frá Grámelsvaðinu liggur forn vegur heim yflr holtið, til Bræðratungu. Það eru margar og stórar götur, hver við hliðina á annari. Þær eru nú upp- grónar fyrir löngu. Þær heita »Flosatraðir«, því sagt er, að Flosi hafi farið þenna veg, er hann »tróð illsakar« við Asgrím. Hann gat og naumast annarstaðar farið. Austan megin liggur vegur þessi frá vaðinu beint í suðaustur að ásum þeim, er bæ- irnir Gröf og Briðjuholt í Hrunamannahreppi standa undir. Milli þeirra bæja liggur vegur austur yfir ásana. Þar heitir Ljóna- stigur. Þar er Litla-Laxá austan undir ásunum, og heflr vegur- inn legið austur yflr hana. Frá henni sjest hann glöggt austur. yfir Hrunavöll — það er flatlent svæði fyrir norðan og vestan Hruna, — þar beygir hann til landnorðurs inn á Tunnubergs- flatir móts við Berghyl. Þá taka við ýmist grjótásar eða mýrar- sund, og sjer því ekki til vegarins austur yfir Hörgsholts og Kaldbakslönd, nema á svo nefndu Króksskarði. Þaðan er stefn- an að Mýraskógsvaði á Stóru-Laxá, — það er skammt fyrir neð- an Hrunakrók, — og austan megin við það vað sjest vegurinn enn á litlum parti skammt frá neðri Grímstöðum. Þaðan af er

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.