Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Blaðsíða 30
Um
myndir af gripum í forngripa-
safninu.
Eptir Pálma Pálsson,
-------
1. Skrúðgöngumerki.
Merki það, sem sýnt er á myndinni og er nr. 256 í skrá
safnsins (Skýrsla I, 117 bls.), var að sögn eign Flateyjarkirk]U
á Breiðaflrði og talið vera frá þeim timum, er þar var klaustur
(1172—84), en þótt það sé tæplega svo gamalt, þá er það þó
vafalaust frá kaþólskri tið, því að þá voru slík merki nálega i
hverri kirkju og voru borin i skrúðgöngum (prósessium) og við
ýmsar aðrar kirkjulegar og helgilegar athafnir; þeirra er og opt
getið í fornum máldögum kirkna. Merki þessi voru fest með
tveim taugum eða böndum við efri enda á hárri stöng og var
venjulega litill kross, opt mjög skrautlegur, festur ofan á efri
enda stangarinnar; þetta má bæði sjá á gömlum myndum og
svo eru sýnishorn slíkra krossa til hér í safninu.
Merki þetta hangir á mjóu þverkefli, sem mun vera ný-
legt og þó með upphaflegu lagi, og ganga taugar frá endum
þess i merkisstöngina, svo sem áður er á vikið. Það hefir upp-
haflega verið á að gizka 44,05 cm. á^breidd (ekki 17J/a þumlungur)
og um 96 cm. á lengd; en eigi verður haft nákvæmt mál af þvf,
með því að það hefir mistognað og aflagazt nokkuð á þann hátt.
Af breidd þess verða því með engu móti leidd nein rök að sannri
lengd fornrar íslenzkrar álnar, enda mun breidd þess að engu
leyti geta snert það mál. Það er gert af þykku silki, einni ræmu.