Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Blaðsíða 39

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Blaðsíða 39
39 rirna þann, sem verður milli Meltungnaárgils og Hellisgils, falla þrjú lítil gil eða lágar, allar vaxnar grasi, enda fellur engin á eða lækur eptir þeim; þessi gil eða lágar heita einu nafni Granagil og hafa heitið svo frá ómunatíð, en gilin voru, að sögn, kend við Grana nokkurn, fornmann einn, er fallið hafði þar um slóðir. Þau eru nú stundum í daglegu máli nefnd Grænugil, «þvi aðþaugrænka árlega eins og hverjar aðrar grasi vaxnar lautir»; syðsta eða vestasta gilið er efst í tvennu lagi og fellur í Meltungnaárgilið, en hin tvö í Hellisgil; neðan (austan) við endann á syðsta gilinu gengur tangi eða rani fram í Meltungnaárgilið alveg sléttur að ofan og rúmar 20 álnir á breidd framan til; raninn ersnarbratt- ur að neðan og framan; hann var áður allur grasi vaxinn ofan og bar ekki á neinum mishæðum og engin mannvirki sáust á honum ofanverðum, en siðan, er grassvörður og jarðvegur þvarr á honum, hafa þar komið í ljós 4 leiði; vorið 1891 blés moldina ofan af austasta leiðinu, en síðan komu hin leiðin í Ijós árið ept- ir. Þau voru öll hlaðin grjóti að innan og var steinalag þetta nær */» alin á hæð og voru steinarnir víða reistir á rönd og leiðin því tilsýndar eins og stokkur í laginu. Fyrsta eða austasta leiðið virtist hafa verið 3 álnir á lengd að innan og 2 álnir á vídd eins og 2. leiðið er, er var nokkuruframar árananum heldur en 1. og 3. leiðið, sem var 4 álnir á lengd að innan og2álnirá vidd; 4!/2 álnar bil var í milli þriggja hinna fyrnefndu leiða og sneru þau öll frá norðri til suðurs; 4. leiðið, hið vestasta, sneri frá austri til vesturs, því að þar er farið að halla vestur af ran anum; það var á stærð við tvö austustu leiðin, en bilið milli þess og 3. leiðisins var að eins 2 álnir. I leiðum þessum hafa fundizt lítilfjörlegar leitar af iíkunum, varla annað en háiffúnar tennur, er voru í norðurenda leiðanna, þeirn sem frá giljunuin vissi, fá- einar glertölur og ryðgaðir járnbútar, seru engin sérstök einkenni hafa1. Á því getur enginn efl leikið, að leiði þessi sjeu frá forn- öld og að menn þessir hafl verið vegnir á þessum stað eða í nánd við hann, því að óhugsanlegt er, að lik hafl verið flutt þangað til graptar neðan úr bygðinni, jafnvel frá næstu bæjum, enda virðist staður þessi að engu leyti betur fallinn til að vera graf- reitur en margir aðrir. Nú vill einmitt svo vel til, að Kári Söl- mundarson veitti þeim Sigfússonum og öðrum brennumönnum hina 1) Ein glertalan, blá að lit, og járnbútar nokkurir eru komnir til forn- grjpasafnsins.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.