Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Síða 2
2
Sigríðarstaða og Þorfinnstaða og eru eyðihjáleiga frá Hólum.
Rústir sjást þar allglöggvar, en eru eigi fornlegar, því byggð
hefir haldist þar fram á seinni aldir. Vestrhóp, sem hjer er nefnt,
hlýtur að vera Sigríðarstaðavatn, svo munu fornmenn hata kall-
að það; en hið syðra vatnið hafa þeir kallað Vestrhópsvatn, sem
sjest af Heiðarvígasögu 1. k.
Ambáttará er kvisl sú er fellur úr Ambáttardal í Tjarnará
á Vatnsnesi. Hún rennur um dal þann, er Þorgrímstaðadalur
heitir, og gengur suðaustur í fjallið frá Tjörn, fagur dalur og
búsældarlegur; en Ambáttardalur gengur suður úr innri enda
hans. Þar gagnvart er Þverá austamegin fjallsins.
Inn úr sjálfum botni Þorgrímsstaðadals gengur Ásgarðsdal-
ur. Þar var áður bær, er hjet í Ásgarði. Þar var kirkja, og
áttu bæirnir í Hlíðardalnum kirkjusókn þangað og fleiri bæir
sunnan fjalls. En eitt sinn villtist kirkjufólk á heimleið þaðan i
kafaldsbyl, og hröpuðu 18 menn ofan af tjallinu þar sem siðan
heitir Bani innanvert við Hlíðardalinn. Lagðist þá niður kirkjan
í Ásgarði og síðan bærinn.
Sótafell. 3. p. 1. k. «Sóti hét maðr, er nam Vestrhóp ok
bjó undir Sótafelli». Sótafell heitir enn hnúkurinu uppyfir Breiða-
bólstað í Vesturhópi. Þar fyrir ofan bæinn er hjalli allmikill
undir fjallinu og eru þar gamlar rústir hjer og hvar. Þar heitir
«í Sótastöðum*. Jeg fór þangað tvívegis að leita bæjarrústanna
og var Július læknir og sjera Tlálfdán Guðjónsson með mjer í
síðara skiptið. En rústirnar sem við fundum, ?oru svo óglöggv-
ar, að eigi var hægt að fullyrða, hvort það voru bæjarrústirnar
eða ekki.
Ormsdalur. sst. «Ormr hét maðr, er nam Ormsdal ok bjó
þar». Ormsdalur er upp frá Klömbrum milli Sótafells að sunn-
an og meginfjallsins að norðan. Þar er rúst ákaflega mikil, sem
heitir «í Ormstöðum». Á lögun hennar er auðsjeð, að þar hefir
byggð haldist fram á seinni aldir.
Auðunshóll. sst. «Auðunn skökull . . . nam Víðidal ok bjó á
Auðunnarstöðum». Þar í túninu upp með bæjarlæknum er lítill
hóll, eða upphækkun, sem kallaður er «Auðunnshóll», og er hald-
ið að það kunni að vera haugur Auðunnar skökulls. Jeg fór
þangað að skoða hann og þóttist þegar sjá, að þetta væri endi
af ákaflega digru garðlagi, sem liggur í hvössum boga upp frá
læknum og myndar þríhyrndan reit, sem hallar niður að lækn-
um mót suðri; má vera það hafi verið akur. Seinna hafa götur
verið lagðar frá bænum gegnum ofanverða þríhyrnuna og við
4