Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Qupperneq 12
12
ur hafi verið að drápi Sigurðar, og að hann hafl verið bróðir
Kleyps bersis. Liklegra er, að hatin hafi verið föðurfrændi hans,
og farið til íslands löngu fyr af öðrum ástæöum, sem eigi er
hægt að gizka á. Hafi svo verið, getur frásögnin um viðureign
Þórðar og Skeggja verið rjett í aðal-efninu, og þá gat Þórður
búið á Miklabæ á undan Arnóri kerlinganef. Hinir fornu sögu-
menn fóru með sögurnar svo, sem þeir kunnu þær rjettastar, en
bjuggu engin söguatriði til upp úr sjer, því síður heilar sögur.
Hitt er annað mál, að missagnir gátu slæðst inn hjá þeim, og
var það þó víst tniklu sjaldnar, en líklegt mgetti þykja,
VI. Kormakssaga.
'Kormalcshaugur er ekki nefndur á nafn i sögunni, en vegna
nafnsins verður að setja hann í samband við hana. Það er áður
tekið fram, að skifti muni hafa orðið á nöfnum hauganna í Mels-
nesi, og muni sá, sem nú er ekkert nafn gefið, vera hinn upp-
runalegi Kormakshaugur. Hann er eigi í beinni iinu milli hinna,
en nokkuð vestar, nær »Hofinu«. Grafin hefir verið i hann æði
stór gröf og eigi fyllt aftur, er hann því mjög niður siginn.
Enginn veit nú hve langt er siðan það var gjört. Sunnan og
austan við hauginn sýnist móta fyrir garðlagi, er verið hafi kring
um hann. Hinum megin sjest það eigi. Eigi getur það verið
sá Kormakr, sem sagan er af, sem hjer hefir verið heygður,
því hann fjeil á Skotlandi. Enda segja munnmæli að Ögmundur,
faðir hans, hafi komið út með Kormak föður sinn gamlan, og að
hann sje sá, sem hauginn átti. Sagan bendir samt ekkert til
þess. Það er ef til vill engu ólíklegra, að farið hafi verið feðga-
vilt og haugurinn nefndur Kormakshaugur í staðinn fyrir Ög-
mundarhaugur.
Hofið. Svo hagar til á Melstað, að bærinn stendur á hæð-
arbrún, sem til forna mun hafa verið melur, en er nú gróinn.
Mun fjörðurinn í fyrstu — fyrir landnámstíð — hafa gengið inn
með þeirri brún, en áin smám saman fyllt hanu að innan, og
myndað láglendið, sem nú heitir Melsnes. Sjást þar margir far-
vegir eftir hana. Svo sem stekkjarvegi fyrir utan Melstað er
græn rúst á þessari brún. Þar heitir »Hofið«. Rústin er samt
ekki hoftóft, heldur bæjarrúst og hún ekki fornleg. Sagt
er að sá bær hafi heitið Hof, og hefir án efa verið hjáleiga
frá Melstað. Fornar girðingar eru þar fyrir ofan, Merkilegust