Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Síða 23
23
landið víðast grýtt, og sjest hann eigi úr því annarsstaðar en
norðan í Rjúpnaheiði á Flóamanna-afrjetti. Þar stefnir hann til
Þjórsárdals; enda er þá eigi all-langt þangað. Það er ætlun
manna, að þetta hafi verið þingtararvegur Þjórsdæla, enda er
það líklegt, því hann er mun styttri, heldur en ef farið er ofan
Gnúpverjahrepp. Og vel getur verið, að Skaptfellingar og Aust-
firðingar hafi stundum farið Fjallbaksveg hinn nyrðri til þings
og yfir Þjórsá á ferju við Kolviðarhól í Þjórsárdal, — því þar
er einhver álitlegasti ferjustaður, — og farið svo þennan veg.
Flosi hefir samt ekki farið þá leið: hann kom f Fljótshlíð, eins
og við var að búast. Hefir hann því farið út Hreppa og komið
á hinn umrædda veg fyrir norðan Gröf, skammt fyrir vestan
Ljónastíg. — Frá Bræðratungu hata menn svo farið niður með
Hvítá fyrst, þá vestur yíir »Sporðinn« og riðið yfir Tungufijót
nálægt Torfastaðahólma. Þar er raunar bleytuhætt, en er þó
stundum farið. Þó er það án efa verra nú en fyrrum, því að
jökulleðja hefir stórum aukist f fljótinu á seinni árum'. Vestur
yfir Tunguna ytri eru mestmegnis mýrlendi eða holt, meira eða
minna blásin. Þó sjest fyrir fornum þvervegi miklum á einum
stað i holtinu fyrir norðan Torfastaði, og er það án efa framhald
þessa vegar. Brúará hafa þingmenn er þenna veg fóru, riðið
hjá Böðmóðsstöðum; en þaðan liggur enn vegur vestur á alfara-
veginn um Laugardalinn
Br. J.
1) í minni manna er enn lifa hefir skriöjökull hlaupið niður í Haga-
vatn — sem er sunnan undir Langajökli, — en úr því vatni rennur «Farið«
í Sandvatn og þaðan í Árbrandsá (o: Áshrandsá?), en sú á rennur í Tungu-
fljót. Síðan er fljótið jökulvatn, en svo var eigi áður.