Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Síða 28
«goða»nafn. Það nafn mun Þóroddur eigi heldur hafa borið
meðan faðir hans lifði, og eigi fyr en eftir lát Grímkels goða; þá
fyrst verður hann hjeraðshöfðingi. Samt er ekkert á móti því,
að hann hafl byggt hofið áður; Það gat í fyrstunni verið sem
heimahof; en seinna heflr hann þó gjört það að höfuðhofi. Þetta
örnefni: «Hofið», bendir því til þess, að Þóroddur goði hafi búið
að Hrauni.
Menn segja nú ef til vill; «Einhver annar gat búið að
Hrauni og haft heimahof. — Þóroddur gat hafthöfuðhof áHjalla,
þó það sje horfið og gleymf*. Jú, þetta gat verið; en það er
þó fremur ólíJclegt. Varla mun nokkur hafa leyft sjer að hafa
heimahof, nema hann ætti hlut í goðorði eða væri borinn til
þess. En Þóroddur virðist hafa verið einn um sína goðatign.
Og hefði höfuðhof verið á Hjalla, þá er fremur óliJclegt að ekk-
ert örnefni minni á það, enda þó það sjálft væri horflð. Ör-
nefni voru þó viða kennd við hof, þó ekki sjáist þar hofrústir.
Þannig má nefna Hoftorfu í Steinsholti fyrir framan Þórsmörk,
Hofið hjá Melstað o. fl., að ógleymdu Hraunshofi. Vist er um
það, að á ýmsum stöðum má gera ráð fyrir, að hof hafi verið,
er sje horfið og gleymt; en í nágrenni við annað hof, eins og
hjer, er óþarfi að hugsa sjer það, þegar ekkert bendir til
þess.
Það er i engri mótsögn við hið áður sagða, þó sögur nefni
»Þórodd goða á Hjalla»: Samkværat því átti hann þar annað
bú einmitt á því tímabili sem hann var mestur höfðingi ogkem-
ur helzt við sögur; og Hjalli varð svo nafnkunnur bær á dögum
Skafta, að eðlilegt væri þó Þóroddur, sem þar var svo mjög við-
riðinn, væri allstaðar kenndur við Hjalla þar sem hans er getið.
En langt er þó frá að svo sje: Hann er venjulega nefndur »Þór-
oddur goði í Ölfusu — eins og t. d. «Hjalti í Þjórsárdal*, —en
bæjarnafninu sleppt. Getur það nú ekki bent til þess, að bær-
inn að Hrauni hafi í fyrstunni verið nefndur: at Álfósi, en síðar
skift nöfnum, eins og ýmsir aðrir bæir hafa gjört ? Hraun er
að minnsta kosti næsti bær við árósinn Ölfusmegin og á land
meðfram honum til sjávar. Og þar með sjónum er Víkarslceið
(nú Hafnarskeið) þar sem hin forna þjóðsaga lætur kynfylgju
Þórodds goða, risann, koma á móti finninum, er fór i hamför til
Islands. Vel má hugsa sjer, að þegar hið fyrra nafn bæjarins
— o: Alfós—Ölfus — var orðið viðtekið sveitarnafn, hafi þurft
að gefa bænum nýtt nafn, og hafi hann þá, ef til verið nefndur
eptir hinu nýja eldbrauni. En vel mátti líka kenna Þóroddgoða