Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1920, Qupperneq 10

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1920, Qupperneq 10
10 Annað mál er það, við hvað Snorri goði hefir átt, með þvi að svara Flosa þannig. Hann hefir sýnilega ekki viljað kannast blátt áfram við það, að hann væri að veita mótstöðumönnum hans lið, vitað að Flosi sá það, þótt hann spyrði þannig Hann hefir og sýnilega viljað erta hann og ergja með háðslegu svari, sem hann vissi að Flosi skildi. Eu víst er broddurinn í svarinu ekki eins sár fyrir það, að Snorri gefur óvœttunum á staðnum sök á mótstöð- unni gegn Flosa, og hefir hann líklega hagað orðum sínum svo af ásettu ráði. 2. Vísuhelmingur Snorra goða. Þegar þeir Asgrími' gengu fyrir Guðmund ríka í liðsbón sinni, vékst hann betur við en nokkur annar, hét að berjast með þeim, »þó at þess þurfi við, ok leggja mitt líf við yðvart lífc, sagði hann. »Ek mun ok því launa Skapta, at Þórsteinn holmuðr son hans skal vera i bardaganum með oss, því at hann mun eigi treystast öðru en gera sem ek vd, þar sem hann á Jódísi dóttur mina. Mun Skapti þá til fara at skilja oss«. (140. kap) Þetta gekk eftir, »Skapta Þór- oddssyni var sagt, at Þórsteinn holmuðr son hans var í bardaga með Guðmundi hinum ríka,- mági sínum, ok þegar Skapti vissi þetta, gekk hann til búðar Snorra goða ok ætiaði at biðja Snorra, at hann gengi til með hánum at skilja þác. En þá var það að Ásgrímur skaut spjótinu til Skapta og í gegnum báða fætur hans. »Skapti fell við skotit ok fekk eigi upp staðit; fengu þeir þat eina ráðs tekit, er hjá vóru, at þeir drógu Skapta inn í búð sverðskriða nokk- urs flatan«. — Er Kári hafði felt Eyjólf Bölverksson kom Snorri goði að með flokk sinn og »var þar þá Skapti í liði með hánum, — ok hljópu þegar í milli þeirra. Náðu þeir þá eigi að berjast. Hallr gekk þá í lið með þeim ok vildi skilja þá«. — Tveir af helztu mönnum í liði Flosa, Hólmsteinn Spak-Bersason frá Bersastöðum og Þórkell Geitisson frá Krossavík, »hrukku undan* þar sem Þórgeirr skorargeirr sótti að þeim, og er lið Flosa flýði suður með öxará að vestanverðu, varð Sölva matsuðumanni að orði: »Hvárt munu þessir allir ragir Austfirðingarnir, er hér flýja? — ok jafnvel rennr hann Þórkell Geitisson, ok er allmjök logit frá honum, er margir segja hann hug einn, en nú rennr engi harðara en hann*. Ekki getur söguritari þess, að þeir Hólmsteinn og Þórkell hafi felt eða vegið neinn í bardaganum. Annan dag eftir bardagann gengu menn til lögbergs, segir sag- an. Hallr af Síðu mælti þá fyrir sáttum, en þeir Kári og Þórgeirr vildu fyrir sitt leyti hvorugur sættast. Söguritari segir að Skapti

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.