Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1920, Blaðsíða 15
15
syðsta er að 1. 3'/a m., hið næsta 3, hið næst, nyrzta 3l/a og hið
nyrzta 2 hér um bil, en stærri munu þau þó hafa verið í fyrstu,
því að suðurgaflinn og milliveggirnir hafa flazt út og sýnast nú
breiðari en þeir hafa verið meðan þeir stóðu uppi. Milliveggurinn
milli norðurherbergjanna er mjög óljós; hafi hann verið, sýnast helzt
hata verið dyr á honum milli herbergjanna við austurvegginn. Dyr
virðast hafa verið á norðurgafli miðjum óg á vesturvegg sínar á
hvoru suðurherbergjanna nyrzt, en ekki á milliveggjunum. Þar á
móti sýnast kunna hafa verið dyr á austurveggnum, syðst á næst-
nyrzta herberginu. Frá þeim og fyllilega jafnlangt norður og þessi
aðalbygging er hér við austurvegginn nyrzt sérstök, en áföst, tóft,
6Va m- ^ð 1. og 4*/a að br. Eru dyr á norðurgafli hennar, nær því
vestast við vesturvegginn.
Mjög er bæjartóft þessi hlaupin i þúfur að norðanverðu.
Litlu sunnar eru 2 smátóftir sérstakar.
Allmiklu norðvestar, Jbeint norður frá bænum, sem nú er, eru
fornar tóftir utanvert við hinn forna túngarð, þétt við hann. Snúa
þær einnig frá norðri til suðurs. Þær eru 4 saman, hver við ann-
arar hlið, sbr. 2. m. Hin austasta er lengst, um IS'/a m.; en þver-
veggur í henni litlu sunnar en um hana miðja, og virðast hafa verið
mjóar dyr á honum miðjum. Hann er um 1 m. að þykt og álíka
þykkir eru hinir veggirnir einnig, nema norðurgaflinn, sem er nokkru
þykkari. Út frá honum gengur garðurinn austur og vestur. Breidd-
in á þessari tóft er um 4 m.
Næsta tóft við, sem er nokkru ógreinilegri, nær ekki lengra
suður en á móts við þvervegginn í hinni austustu; hún er ámuna
breið, og þó máske heldur breiðari. Ekki hafa verið dyr á milli