Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1920, Page 39
Skýrsla,
I. Aðalfunður hins fslenzka Fornleifafjelags 1920.
Samkvæmt prentaðri auglýsingu í dagblöðunum og fundarboði
til allra fjelagsmanna í Reykjavík, var aðalfundur Fornleifafjelags-
ins haldinn laugardaginn 16 október kl. 5 síðdegis, í lestrarstofu
Þjóðskjalasafnsins Fundinn sóttu 12 fjelagsraenn.
Varaformaður, Matthias Þórðarson fornminjavörður, setti fundinn
og mintist fyrst fjelagsmanna, er látist höfðu síðan hinn síðasti aðal-
fundur var haldinn, þeirra sjera Lárusar Benediktssonar í Reykja-
vík, Sigurðar Sigurðssonar læknis í Búðardal, Gruðmundar kennara
Gunnlaugssonar frá Ærlækjarseli, Ludv. F. A. Wimmers prófessors
í Kaupmannahöfn, Jóns Jónssonar Aðils prófessors, Jóns Jónssonar
prófasts á Stafafelli og Pálma yfirkennara Pálssonar, formanns fje-
lagsins síðan á aðalfundi 1917. Mintist varaforroaður með nokkrum
vel völdum hlýjum orðum starfsemi hins látna formanns í þarfir
íslenzkrar fornminjafræði, bæði sem umsjónarmanns Forngripasafns-
ins og ritara og síðan formanns Fornleifafjelagsins; gat þess hvílíkt
skarð væri orðið fvrir skildi við fráfall hans og hvílíkur missir
Fornleifafjelaginu væri í honum. — Fundarmenn tóku undir eftir-
mæli varaformanns með því að standa upp.
Þá las varaformaður upp nöfn 6 nýrra æíifjelaga og 43 ársfje-
laga, erlendra og innlendra, sem i fjelagið höfðu gengið á síðast-
liðnu og þessu ári
Þá las varaformaður upp og lagði fram endurskoðaðan ársreikn
ing fjelagsins fyrir síðastliðið ár. Um reikninginn voru engar at-
hugasemdir gerðar Birtist hann hjer á eftir.
Þá var gengið til kosningar formanns i stað Pálma sál. Páls-
sonar og leitað skriflegra atkvæða. Var varaformaður, Matthías
Þórðarson fornminjavörður, kosinn formaður með 9 atkvæðum. Var
þá í stað hans kosinn varaformaður Jón Jacobson landsbókavörður
með 8 atkvæðum
í fulltrúaráð var kosinn í stað Matthíasar Þórðarsonar Einar