Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Blaðsíða 40
ARNI IUORNSSON
GEISLADAGUR
i
Svo nefnist 13. janúar í prentuðum íslenskum almanökum frá fyrstu tíð,
nánar tiltekið frá 1576.1 Einnig kemur nafnið fyrir í rímhandriti frá 15. öld.2
Það er algengt í dagsetningum fornbréfa frá 14. og 15. öld og kemur nokkrum
sinnum fyrir í Biskupasögum, Sturlungu og ártíðaskrám.3 Ekki er þó unnt
að benda á það í handritum, sem eldri eru en frá 14. öld, og það er t.a.m. at-
hugunarvert, að í Kristinna laga þætti Grágásar í Konungsbók og Staðarhóls-
bók frá 13. öld heitir dagurinn einungis átti dagur frá hinum þrettánda degi
jóla. En í Skálholtsbók frá því um 1360 stendur hinsvegar geisladagur á sam-
svarandi stað.4
Hingaðtil hefur engin viðhlítandi skýring fengist á þessu heiti dagsins, og
ekkert samsvarandi nafn er að finna í nálægum tungumálum. Innan katólsku
kirkjunnar er hann almennt helgaður hinum franska dýrlingi HUaríusi biskupi
frá Poitiers (d. 369), en í Noregi og Svíþjóð fyrrum oft nefndur tuttugasti
dagur jóla (tjugendag, tjugondedag), því að víða var hneigð til þess að fram-
lengja jólahaldið um eina viku frá þrettánda. í Svíþjóð og austanfjalls í
Noregi var hann auk þess kallaður Knútsdagur, eftir að Svíar færðu minningu
þess dýrlings frá 7. janúar til hins 13. á 17. öld. Danir héldu hinsvegar fast við
7. janúar, daginn sem Knútur var svikinn og drepinn.5
Nú er alkunna, að helgir menn voru stundum kallaðir geislar, einsog Einar
skáld Skúlason nefndi Ólaf konung helga geisla miskunnar sólarf Hitt mundi
meiri undrum sæta, að heilögum Hilaríusi væri einum veittur slíkur heiður í
íslensku tímatali, þar eð nánast hver dagur ársins hefur sinn dýrling. Yrði þá
helst að gera ráð fyrir einkar sterkum frönskum áhrifum á einhverju skeiði.
Sú var þó skoðun Finns biskups Jónssonar, og taldi hann ekki síst til verðleika
Hilaríusar sem baráttumanns gegn villukenningu Ariasonar.7
Enn fráleitari sýnist þó skýring Finns Magnússonar í goðfræðiorðasöfnum
hans þess efnis, að heiti dagsins sé dregið af nafni eins af hestum ásanna, Gísl
eða Gilsf
Líklegast verður að telja, að gagnsæjasta merkingin sé jafnframt nærtæk-
ust: að heiti dagsins þýði eitthvað í líkingu við Ijósahátíð. Það er hinsvegar