Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Page 54
MAGNÚS GESTSSON
VEGGSKÁPURINN ÚR JÖRFAKIRKJU
Þegar ég fór um bæi í Dalasýslu sumarið 1968 og safnaði til byggðasafns,
áskotnuðust mér allmargir hlutir á Saursstöðum í Haukadal, er varðveittir
höfðu verið í gamla bænum sem þá var nýbúið að rífa. Meðal munanna var
veggskápur, líkur að lögun og bollaskáparnir gömlu. Ekki gafst tími til í þetta
skipti að ræða um hlutina við bóndann Jón Hjálmtýsson. Sumarið 1976 vann
ég að því að koma mununum fyrir í húsnæði sem safnið hafði þá fengið til
umráða. Þegar ég nú fór að hreinsa upp veggskápinn frá Saursstöðum, fannst
mér skreyting á hurð og dyraumgjörð minna á frágang kirkjugripa og þá helst
altarisskápa.
Við tækifæri spurðist ég betur fyrir um skápinn, og sagði þá Jón bóndi að
faðir hans Hjálmtýr Jóhannsson hefði sagst hafa fengið skápinn hjá Guð-
brandi Árnasyni bónda á Jörfa, næsta bæ, og hefði Árni Jónsson (f. 1862, d.
1933) faðir Guðbrandar, og fyrr bóndi á Jörfa, sagt að það fylgdi sú sögn
skápnum að hann væri úr kirkjunni á Jörfa.
Á Jörfa var hálfkirkja fyrr á öldum og var lögð niður með konungsbréfi
17/5 1765 (Prestatal og prófasta, 2. útg. bls. 160).
Skápa er getið í kirkjum í vísitasium biskupa og prófasta allt fram á 18. öld.
Úr vísitasíu Steins biskups í Laufási 1715 (Bps. B. III, 13): „..botnlaus skápur
stendur sunnanvert við altari með hurðu fyrir, sem annar skápur lítill innlæst-
ur.” Þegar kirkjan á Jörfa var lögð niður 1765 hefur hún vafalaust verið
orðin gömul og að falli komin, og því varla byggð seinna en um aldamótin
1700. Skápurinn er fornlegur að gerð og gæti hafa verið úr eldri kirkju.
Biskupar og prófastar hafa yfirleitt ekki vísiterað hálfkirkjur og ekki tókst
Herði Ágústssyni að finna úttekt á Jörfakirkju.
Frá því að kirkjan á Jörfa var lögð niður og þar til bóndinn á Saursstöðum
fær skápinn hjá Jörfabónda, hafa bændur á Jörfa verið sömu ættar eða tengd-
ir og því eðlilegt að skápurinn er kyrr á staðnum.
Skápurinn er að utanmáli: hæð 73 sm, breidd 54 sm, og dýpt 22 sm, og er
með tveimur hillum. Hann hefur verið læstur, en skráin, sem hefur verið all-
stór eftir úrtökunni að dæma, er farin, en lykillaufið eitt er eftir.
Bolur skápsins er úr tommuborðum, geirnegldur á hornum, og er afturhlut-
inn, 13 sm aftanfrá, með opinni geirneglingu og eru tapparnir uppúr og