Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Qupperneq 62
66
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Tvennt er það einkum sem vert er að draga fram að nýju úr þeirri athugun.
Ólafur Stefánsson amtmaður, seinna stiftamtmaður, á Hóla á seinnihluta 18.
aldar og lætur reisa þar kirkju 1774 og ber allan kostnað af sem sannur
kirkjubóndi. Þar sem ég nú er að lesa texta Ellen Marie Mageroy, sem fyrr
segir, rifjast skyndilega upp fyrir mér setning úr kirkjustól Hóla og greininni í
Árbókinni: ,,Yfir kirkjudyrum er ,,ein fjöl með bíldhöggvaraverki og
proprietarii hr. amtmannsins Ólafs Stephanssonar nafni þar á,” eins og segir í
kirkjustólnum 1776.”15 Þessi kirkja er með óyggjandi vissu reist árið 1774.
Nú spyr ég undir lokin, þarf fleiri vitna við? Er þá ekki eftir allt saman komið
eitt brotið enn úr hinum fornu og horfnu kirkjum í Hólum og hefur villst vel
af leið? Farið fyrst til Kaupmannahafnar uppúr 1853 að kirkja amtmannsins
er rifin, síðan heim aftur árið 1930 og endað í Þjóðminjasafni íslands.
Þeir Thorlaciusar í Miklagarði, Saurbæ og Hrafnagili áttu Hóla lengi. Nú
er vitað að bræðurnir séra Einar í Saurbæ og séra Hallgrímur á Hrafnagili rit-
uðu sóknarlýsingar fyrir Bókmenntafélagið. Einnig stóð séra Einar í
bréfaskiptum við Finn Magnússon í Höfn. Það verður því að teljast líkleg
tilgáta að annarhvor þeirra bræðra hafi sent dyratréð til Hafnar til þess að
seðja fornleifahungur Finns. E.t.v. væri hægt að fá skorið úr þessu með
nánari athugun.
í ljósi þess er nú hefur verið rakið er nauðsynlegt að athuga á ný
listsögulega stöðu dyratrés Ólafs amtmanns. Eðlilegast er að vísa málinu til
dr. Ellen Marie Mageroy, hún er auðvitað allra manna færust til að kveða upp
þann dóm.
4. Ætterni prédikunarstóls
í fræðunum er aldrei of vel á varðbergi staðið gegn munnmælum, sögu-
sögnum og getgátum. Gott dæmi um þetta er prédikunarstóllinn í Vídalíns-
safni, löngum kenndur við Guðbrand biskup Þorláksson og honum eignaður
sem smíð. Þegar 1908, er stóllinn barst Þjóðminjasafninu að gjöf ásamt
öðrum góðum gripum frá konsúl Vídalín, telur Matthías Þórðarson stólinn
skorinn af Guðbrandi biskupi. „Stól þennan hefur Guðbrandur biskup, sem
var formætur bíldhöggvari sjálfur skorið,” segir Guðbrandur Jónsson í hinu
mikla verki sínu „Dómkirkjan á Hólum,” sem út kom á árunum 1915-1929.16 í
„Myndir úr menningarsögu íslands” er þess getið árið 1929 að líklegt sé „að
biskup hafi látið gera stólinn, og er sagt að hann hafi sjálfur skorið hann
út.”17 Sjálfur hef ég gengið út frá því sem vísu að stóllinn væri frá 1594 í
grein, sem ég ritaði fyrir nokkrum árum og hef líklega talið hann verk bisk-
ups.18
Hvað áttu menn að halda? Stóllinn kirfilega merktur biskupi, ártalið auð-