Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Side 129

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Side 129
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1979 133 Almennt um safnstörfin Hin föstu störf í safninu voru með svipuðum hætti og venja er til, skráning- arstörf, ýmis minni háttar rannsóknarverk og dagleg fyrirgreiðslu- og útlána- störf af margvíslegu tagi, sem öll mega heita í föstum skorðum frá ári til árs. Mikið verk var unnið í sambandi við sýningar, einkum Ljósið kemur langt og mjótt, sem opnuð var í Bogasal 13. janúar og Steinþór Sigurðsson listmál- ari og leikmyndateiknari skipulagði ásamt starfsmönnum safnsins, en einnig Snorrasýningu, sem opnuð var 22. júní og safnið stóð að í samvinnu við Landsbókasafn íslands og Stofnun Árna Magnússonar, svo og myntsýningu, sem Myntsafnarafélagið stóð fyrir og safnið tók þátt í. Hún var opnuð 20. október. Þá ber að geta, að safnið tók upp þá nýlundu að fá að láni fjórar þjóðhátta- kvikmyndir frá Noregi, sem sýndar voru í fornaldarsal safnsins tvo sunnu- daga, 11. og 18. febrúar. Voru sýningarnar vel sóttar og tóku menn þessari nýbreytni vel. Þá tók safnið þátt í sýningu í Laugardalshöll, Bíllinn 75 ár á íslandi, sem Fornbílaklúbbur íslands stóð fyrir. Safnið lánaði þangað ýmsa hluti og myndir, en einkum þrja gamla bíla, sem það hefur eignast, fólksbíl frá 1928, snjóbíl frá um 1930 og Ford vörubíl frá 1917, sem Pétur G. Jónsson hafði gert snilldarlega upp og vakti mikla athygli, enda elsti bíll landsins og því merkis- gripur. Þessi sýning var vel sótt. Ole Villumsen Krog ljósntyndari hélt áfram um tíma myndun sinni og könnun á gömlu silfri með tilstyrk safnsins. Þjóðminjavörður flutti um haustið úr íbúð þeirri sem hann hefur haft í hús- inu allt frá upphafi. Er í ráði að þangað verði fluttar skrifstofur safnsins og vinnustofur, en miklar breytingar þarf þó að gera á húsnæðinu til þess. Verð- ur að því gríðarlegt vinnuhagræði að hafa allar skrifstofur á einum og sama stað í húsinu með sérstökum inngangi. í lok ársins voru teknir burtu miðstöðvarkatlar í kjallara, en þeir hafa aldrei verið notaðir nema allra fyrstu mánuðina sem húsið var í notkun, rneðan hita- veita var ekki komin í það. Var í ráði að gera verkstæðisaðstöðu í kjallaranum þar sem katlarnir höfðu verið, en allt vinnupláss er ntjög takmarkað í húsinu. Á árinu vann Elsa E. Guðjónsson m.a. að rannsókn á íslenskum heimildum um sprang og á sprangi varðveittu á íslandi. Þá kom í leitirnar merkilegur silkisaumaður korpóralsklútur í kirkjunni á Staðarfelli, sem kirkjunni hafði verið tillagður á árunum 1725-1733 af Katrínu Björnsdóttur. Var klúturinn léður Þjóðminjasafni til nánari athugunar (sjá grein Elsu E. Guðjónsson, Tveir rósaðir riðsprangsdúkar, í Árbók 1979).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.